Nesfréttir - 01.04.2022, Blaðsíða 2
ÚT GEF ANDI: Borgarblöð ehf, Eiðistorgi 13-15, 172 Seltjarnarnes, Pósthólf 171. S: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
RITSTJÓRI: Krist ján Jó hanns son • ÁBYRGÐAR MAÐUR: Krist ján Jó hanns son
BLAÐAMAÐUR: Þórður Ingimarsson UM BROT: Valur Kristjánsson
NETFANG: borgarblod@simnet.is • HEIMASÍÐA: borgarblod.is
Nesfréttir koma út mánaðarlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi
2 Nesfrétt ir
www.borgarblod.is
Að sækja á ríkið
Þrír framboðslistar verða til bæjarstjórnarkosninga á
Seltjarnarnesi. Listi Sjálfstæðisflokksins, listi Samfylkingarinnar
og óháðra og listi Framtíðarinnar.
Kosningabaráttan er rétt að hefjast. Frídagavikurnar sem helgast
af páskum og fyrsta sumardegi hafa tafið baráttuandann eða
ef til vill heft hann.
Stundum er sagt að kosningar til sveitarstjórna snúist um að
vilja gera allt og gera það strax. Þannig hafa kosningaloforð
oft hljómað víða um land.
Sveitarstjórnum eru á hinn bóginn settar takmarkaðar skorður
af löggjafans hálfu til að láta pólitískar óskir stjórna gjörðum
sínum. Sveitarstjórnarmál snúast einkum um rekstur þeirrar grunn
þjónustu sem sveitarfélögum er lögboðið að sinna.
Á undanförnum árum hafa fleiri og fleiri málum verið ýtt til
sveitar félaganna. Slíkt kynni að vera af hinu góða ef fjármunir
hefðu fylgt með. Það hefur ekki orðið af ríkisins hálfu.
Því verður baráttumál margra ef ekki allra nýkjörinna sveitar
stjórna að sækja á ríkið um viðunandi rekstraraðstæður. Í dag
eru þær ekki fyrir hendi.
Leið ari Íbúaþing um
skólamál
Velheppnað íbúaþing um skólamál á
Seltjarnarnesi var haldið í Valhúsaskóla á
laugardaginn. Þátttakan var góð með afar
líflegum og uppbyggilegum umræðum.
Unnið var í vinnuhópum sem skiluðu af sér
fjölda gagnlegra ábendinga sem nú verður
unnið áfram með. Öllum sem þátt tóku er
sérstaklega þakkað fyrir að leggja sitt af
mörkum við endurmótun menntastefnu
bæjarins fyrir skóla og frístundastarf.
Baldri Pálssyni, Hildigunni Gunnarsdóttur
og Sigrúnu Eddu Jónsdóttur sem höfðu veg
og vanda að skipulagningu íbúaþingsins eru
einnig þakkir færðar fyrir alla umsýsluna og
mjög góða vinnu sem og Jóni Torfa Jónassyni
sem hélt stutta hugvekju í upphafi þingsins.
Myndir voru teknar á íbúaþinginu.
www.systrasamlagid.is