Nesfréttir - 01.04.2022, Blaðsíða 4
4 Nesfrétt ir
Fullbúinn leikskóli á haustmánuðum 2024
Gert er ráð fyrir að nýr leikskóli á svokölluðum
Ráðhúsreit verði fullbúinn á haustmánuðum
2024. Nýtt deiliskipulag er nú á lokametrunum
og styttist í að farið verði í lokahönnun á
nýjum leikskóla. Þór Sigurgeirsson segir
að frambjóðendur á lista Sjálfstæðismanna
á Seltjarnarnesi hafi hug á að vinna út frá
verðlaunatillögu Andrúms arkitekta í smækkaðri
mynd samhliða því sem endurbætur verða
gerðar á húsnæði Sólbrekku og Mánabrekku.
Þór segir að hugmyndin sé að ný leikskólabygging
rúmi sex til átta deildir og verði um 1200 fermetrar
að stærð. Sólbrekka og Mánabrekka eru um
1300 fermetrar til samanburðar. Samanlagt ættu
byggingarnar að rúma um 300 leikskólabörn og
aðstaða og aðbúnaður starfsfólks og barnanna
verða stórbætt um leið. Hann segir mikilvægt
að útfærslan verði unnin í nánu samstarfi við
stjórnendur leikskólans og að þeir verði með
í ráðum í hönnunarferlinu. Þessu til viðbótar
verði Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness áfram
starfræktur í gamla Mýrarhúsaskóla.
Fyrsta skóflustungan um leið og
hönnunarferli er lokið
Í dag eru um 230 leikskólapláss í boði í bænum
og börn hafa fengið leikskólavist að hausti frá
14 mánaða aldri. Stefnt er því að með nýrri
glæsilegri leikskólabyggingu verði hægt að
færa inntökualdurinn niður í 12 mánuði, þegar
fæðingarorlofi sleppir, og leikskólinn geti auk
þess annað aukinni þörf vegna fjölgunar íbúa með
tilkomu Gróttubyggðar. Þór segir að samkvæmt
hugmyndum Sjálfstæðismanna muni ný bygging
passa inn í aðalskipulag og ættu því ekki að verða
neinar tafir á að hægt
sé að hefjast handa nú
þegar við lokahönnun.
Byggt að vinningstillögunni
Tillagan byggir sem fyrr segir á vinningstillögunni
en er mun hagkvæmari auk þess sem kolefnisspor
er umtalsvert minna en ef þær byggingar sem eru
fyrir yrðu fjarlægðar. Gert er ráð fyrir að nýja
leikskólabyggingin verði á tveimur hæðum, verði
um 1200 fermetrar að stærð með möguleika á
enn frekari stækkun og að áætlaður kostnaður
sé liðlega einn milljarður króna. Sjálfstæðismenn
stefna á að fyrsta skóflustungan verði tekin um leið
og hönnunarferli er lokið og að leikskólinn verði
fullbúinn á haustmánuðum 2024. Á fundi bæjarráðs
þann 7. apríl var samþykkt að fela bæjarstjóra
að hefja undirbúning flutnings Fögrubrekku svo
hægt sé að undirbúa byggingu nýs leikskóla
á Ráðhúsreitnum.
Hugmynd að nýjum leikskóla á Seltjarnarnesi.
U m h v e r f i s v æ n í s l e n s k h ö n n u n
Þrjú framboð
á Nesinu
Þrír framboðslistar verða til bæjarstjórnarkosninga á Seltjarnarnesi
14. maí næst komandi.
Þeir eru listi Sjálfstæðisflokksins sem hefur listabókstafinn D.
Slisti Samfylkingar og óháðra sem hefur listabókstafinn S og listi
Framtíðarinnar með listabókatafinn A. Yfirkjörstjórn Seltjarnarnesbæjar
hefur staðfest lögmæti listanna.