Vesturbæjarblaðið - apr 2021, Blaðsíða 8

Vesturbæjarblaðið - apr 2021, Blaðsíða 8
8 Vesturbæjarblaðið APRÍL 2021 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Með tilkomu Reykja­ víkurhafnar breyttist bærinn úr þorpi í útvegskaupstað. Sjávarútvegur varð einn af mikilvægustu atvinnuvegum bæjarbúa ef ekki sá mikilvægasti. Fyrir hafnargerðina var Örfirisey eins og nafnið bendir til ekki landsföst en smám saman var hafnarsvæðið þróað og stækkað með landfyllingum. Þegar bygging hafnarinnar hófst var engin stórskipahöfn í Reykjavík sem gerði að verkum að leggja þurfti stærri skútum og skipum utarlega í höfninni og selflytja vörur og farþegar í land með minni bátum. Upp úr aldamótunum þegar komum stærri skipa tók að fjölga varð ljóst að eitthvað þyrfti að gera. Árið 1906 var farið af stað með undirbúning að viðamikilli hafnargerð í Reykjavík. Norskur hafnarstjóri Gabriel Smith að nafni var fenginn hingað til lands að tillögu kaupmanna í Reykjavík. Verkefni hans var að leggja mat á staðsetningu og kostnað mögulegrar hafnar. Þremur árum síðar skilaði hann greinargerð með tillögum að hafnarmannvirkjum í Reykjavík. Þetta leiddi til þess að hafist var handa við hafnarframkvæmdir í Reykjavík þann 9. mars 1913 sem stóðu yfir fram til ársins 1917. Eftir byggingu hafnarinnar var húsnæðisskortur viðvarandi vandi á hafnarsvæðinu en mannvirki tóku smám saman að rísa. Fiskvinnsluhús, íverustaðir og húsnæði til ýmiskonar starfsemi er tengdist útvegslífi og einnig vöruflutningum var smám saman byggt. Þar á meðal byggingarnar sem nú eru þekktar sem grænu hafnarbúðirnar. Stóru Hafnarbúðir byggðar Árið 1958 sótti bæjarsjóður Reykjavíkur um að fá að byggja þrílyft hús úr steini við Reykjavíkurhöfn austan gömlu hafnarbúðanna. Húsið átti að vera 340,60 fermetrar að grunnfleti og taka við af Verkamannaskýlinu sem var byggt á fyrstu árum þriðja áratugarins. Verkamannaskýlið stóð sjávarmegin við Tryggva­ götuna á þeim slóðum sem þá mættust Kalkofnsvegur og Tryggvagata. Verkamannaskýlið var byggt úr timbri og þar var aðstaða fyrir verkamenn og sjómenn. Í Verkamannaskýlinu einnig eins konar ráðningarskrifstofa. Þangað þyrptust verkamenn sem ekki höfðu fasta vinnu og biðu eftir því að einhver verkstjórinn á kajanum veitti þeim verk að vinna þótt ekki væri nema við eina uppskipun. Verkamannaskýlið var rifið fljótlega eftir að nýja húsið Hafnarbúðir var byggt, en það var tekið í notkun 1962. Í brunavirðingu frá þeim tíma segir að húsið sé þrjár hæðir og kjallari, byggt úr steinsteypu, einangrað með vikri og múrhúðað að utan. Þak er úr timbri, pappa og áli. Á fyrstu hæð Hafnarbúða voru anddyri, ráðningarstofa, fjögur herbergi og biðstofa fyrir verkamenn, böð, búningsklefar, fjórar snyrtingar og tveir stigagangar. Á annarri hæð voru vinnsluherbergi, eldhús, veitingasalur með afgreiðsluborði, fjórir klósettklefar og tveir stigagangar. Á þriðju hæð var sjómannastofa, níu gistiherbergi, skrifstofa og vaktherbergi. Þar voru einnig tveir baðklefar, þrjú klósett og tveir gangar. Í kjallara var geymslurými, búnings­ og snyrtiherbergi starfsfólks, geymslur og eldhús. Hafnarbúðir voru teiknaðar af arkitektunum Einar Sveinssyni og Aðalstein Richter. Ríkið eignaðist Hafnarbúðir 1972. Skrifstofur og félagsstarf Vestmanneyinga flutt í Hafnarbúðir Margt hefur verið til húsa í Hafnarbúðum í þá sex áratugi sem liðnir eru frá því Geir Hallgrímsson þáverandi borgarstjóri opnaði húsið með formlegum hætti 1962. Þar á meðal voru skrifstofur bæjarstjórnar og fógeta Vestmannaeyja fluttar þangað eftir að eldgosið í Eyjum hófst í janúar 1973. Þá var einnig komið fyrir aðstöðu fyrir félagsstarf Vestmanneyinga í veitingasal hússins um tíma. Rauði krossinn og Geðhjálp sýndu Hafnarbúðum áhuga Ýmsir hafa sýnt Hafnarbúðum áhuga í gegnum tíðina. Þar á meðal Rauði krossinn til þess að setja upp sjúkrahótel. „Það hefur lengi verið draumur okkar að eignast húsnæði, sem gæti orðið samastaður fyrir fólk utan af landi, sem leitar lækninga i Reykjavík, þ.e. fólk, sem ekki leggst inn á sjúkrahús, en þarf að dvelja svo og svo lengi í höfuðborginni fyrir og eftir aðgerðir á sjúkrahúsum o.s.frv.", sagði Eggert Ásgeirsson þáverandi framkvæmdastjóri Rauða krossins í samtali við Alþýðublaðið 30. mars 1973. Af því varð þó ekki. Annar heilbrigðisaðili sem var með aðstöðu í Hafnarbúðum og sýndi einnig áhuga á kaupum á húsinu þegar ríkiskaup auglýstu það til sölu. Geðhjálp sýndi áhuga á því en félagið var þá með aðstöðu á annarri hæð fyrir skrifstofu og félagsmiðstöð. Af því að Geðhjálp festi kaup á húsnu varð ekki. Spítalarekstur og langlegusjúklingar Spítalarekstur rataði í Hafnarbúðir árið 1977. Þá var húsið tekið undir deild fyrir langlegusjúklinga frá Borgarspítalanum í Fossvogi. Einnig var dagvistun fyrir aldraða í húsinu. Á fyrstu hæð þess var komið fyrir afgreiðslu, upplýsingaþjónustu, læknaherbergi og biðstofu. Einnig endurhæfingaraðstöða ásamt rúmgóðri snyrtiaðstöðu og sérinngangi, bað og Hafnarbúðir Á þessu líkani má sjá hluta af grænu hafnarbúðum, fyrirhugaða nýbyggingu og austast er stóra húsið sem byggt var í upphafi sjöunda áratugarins. Margvísleg hlutverk í gegnum tíðina Gömlu verbúðirnar við Geirsgötu hafa fengið nýtt hlutverk. Í stað beitinga og annarar útvegs- og fiskvinnlustarfsemi hefur veitngarekstur haslað sér völl í þessum húsum sem setja mikinn svip á hafnarsvæðið og skapað nýtt mannlíf.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.