Feykir - 22.09.2021, Blaðsíða 3
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Auglýsing
um skipan í kjördeildir
í Sveitarfélaginu Skagafirði
Við Alþingiskosningar sem fram fara laugardaginn
25. september nk. er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps
– kjörfundur hefst kl. 09:00
Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Höfðaborg Hofsósi
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild á Ketilási
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00
Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Staðar – og Seyluhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,
– kjörfundur hefst kl. 13:00
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin
frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa
hafa greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sam-
mála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00.
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki
frá kl. 09:00 til kl. 15:00 virka daga fram að kjördegi og
kl. 13:00-15:00 á kjördag þ. 25. sept. 2021.
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.
Yfirkjörstjórn
Byggðasafni Húnvetninga og
Strandamanna á Reykjum barst
góður gripur í gær þegar Örkin
var sett niður á safnasvæðið.
Um er að ræða bát í eigu Guð-
jóns Kristinssonar frá Dröngum
en smíðaður af föður hans,
Kristni Jónssyni.
Í skeyti frá Gunnari Rögn-
valdssyni, starfsmanni safnsins,
kemur fram að báturinn hafi
verið smíðaður í fjárhúsunum á
Seljanesi og tilbúinn árið 1981.
„Hér er um mjög merkilegan
bát að ræða en Örkin mun vera,
samkvæmt bestu heimildum,
síðasti báturinn sem smíðaður
var úr rekavið. Örkin var síðast
gerð út á handfæri og reyndist
gott og farsælt sjóskip. Guðjón
hefur lánað safninu bátinn og
Örkin komin á Reykjasafn
Síðasti báturinn úr rekaviði
Fyrir skömmu kom góður gripur á safnasvæði Byggðasafnsins þegar Örkin var
sett þar niður. MYND: GUNNAR RÖGNVALDSSON
Aðalfundur Drangeyjar-
smábátafélags Skagafjarðar,
var haldinn 18. september sl. Í
ályktunum sem samþykktar
voru má finna ákveðnar
áhyggjur gagnvart fiskveiði-
kerfinu og fiskmarkaðsmálum
í Skagafirði. Eftirfarandi eru
ályktanir aðalfundarins.
Aðalfundur Drangeyjar - smá-
bátafélags Skagafjarðar skorar
á stjórnvöld að endur-
skoða heimildir til
veiða með dragnót
upp í fjörur víða
um land. Þá krefst
Drangey þess með
vísan til fyrri
samþykkta félagsins
og sveitarstjórnar
Skagafjarðar að dragnóta-
veiðar á Skagafirði verði nú
þegar takmarkaðar í samræmi
við fyrra fyrirkomulag veið-
anna á firðinum, þ.e. að
svæðinu innan línu úr Ásnefi í
vestri í Þórðarhöfða í austri
verði lokað fyrir veiðum með
dragnót.
Þá er lýst yfir áhyggjum af
fiskmarkaðsmálum í Skaga-
firði og skorar félagið á
sveitarstjórn Skagafjarðar og
stjórn Fiskmarkaðs Íslands að
gera allt sem unnt er til að
tryggja áframhaldandi starf-
semi FÍ og viðhalda þannig
þeirri góðu þjónustu markað-
arins sem verið hefur til staðar
síðastliðin þrjú ár.
Ánægja er með fram-
komnar tillögur um breytingar
á deiliskipulagi hafnarsvæð-
isins á Sauðárkróki og skorar
félagið á sveitarstjórn að flýta
eins og unnt er fyrirhuguðum
framkvæmdum við smábáta-
höfnina, þ.m.t. byggingu ver-
búða fyrir útgerðir smábáta,
að höfðu samráði við þá aðila
sem hagsmuna eiga að gæta.
Þá er stöðvun strandveiða
18. ágúst mótmælt harðlega
og skorar félagið á stjórnvöld
að tryggja það með lögum að
þessar veiðar verði undan-
bragðalaust leyfðar í tólf veiði-
daga á mánuði í fjóra val-
kvæða mánuði á tímabilinu
frá apríl til september.
Lagt er til að heimilt verði
að veiða allt að 1.548 kg af ósl.
þorski í einni strandveiðiferð
enda fari hún ekki yfir 28 klst.
og teljist þá tveir
veiðidagar. Með
þessu næst m.a.
minni olíueyðsla
og þar með
minna kolefnis-
spor. Þess er
krafist í ályktunum
félagsins að flot-
vörpuveiðum á Íslands-
miðum verði tafarlaust hætt
enda kemur mikið af grá-
sleppuseiðum og öðrum fisk-
tegundum í veiðarfærið sem
meðafli.
Þá leggur félagið til að
byggðakvóta verði einungis
úthlutað til dagróðrabáta sem
eru minni en 30 brt. Þá verði
allt að tíu tonn eyrnamerkt til
þeirra útgerða sem átt hafa
heimilisfesti í byggðarlaginu
a.m.k. þrjú síðastliðin ár.
„Aðalfundur Drangeyjar-
smábátafélags Skagafjarðar
lýsir yfir þungum áhyggjum
vegna stöðu vistfræðilegra
rannsókna á fiskistofnum við
Ísland. Ljóst er að vísindalegar
forsendur veiðiráðgjafar t.d. í
þorski, grásleppu og fleiri teg-
undum hafa engan veginn
staðist og skýringar Hafrann-
sóknastofnunar ótrúverðugar
og án viðunandi rökstuðnings.
Skorar félagið á nýtt Alþingi
að beita sér sem fyrst fyrir því
að úttekt verði gerð á stofn-
uninni af hlutlausum aðilum
og stefna hennar tekin til gagn-
gerrar endurskoðunar.“ /PF
Drangey – smábátafélag Skagafjarðar
Ályktanir samþykktar
á aðalfundi
mun Örkin ugglaust draga að
sér athygli vegfarenda og gesta
safnsins,“ segir Gunnar.
Benjamín safnvörður tók
vel á móti Örkinni enda
gjörkunnugur hverju borði
og saum í handaverki föður
síns.
Sjá nánar á Feykir.is. /PF
36/2021 3