Feykir - 22.09.2021, Qupperneq 19
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: :Kambur.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Hvað finnst þér
skemmtilegast
að baka?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Annað en umtöluð vandræði
haha? Kannski bara kleinurnar
hennar ömmu Góu.“
Lydía Ýr Gunnarsdóttir
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Augnablik getur verið teygjanlegt hugtak og fer eftir því við hvað er miðað.
Brot úr sekúndu er eitt augnablik og sumir segja að mannsævin sé eitt
augnablik í veraldarsögunni. Ótrúlegt, en kannski satt, er orðið „jiffy“ elsta
tæknilega orðið sem notað var yfir þann tíma sem tekur ljósið að ferðast
einn sentímetra í tómarúmi, eða u.þ.b. 33.3564 píkósekúndur.
Tilvitnun vikunnar
Heiðarleiki er besta stefnan – ef hægt er að græða á henni. – Mark Twain
„Mér finnst skemmtilegast að baka
skrautlegan marengs sem er þá
bókstafur eða tölustafur.“
Guðrún Elísabet
Guðmundsdóttir
„Ég mundi segja bara allt
mögulegt úr gerdeigi,
súkkulaðikökur og bökur með
góðum fyllingum.“
Rakel Sturludóttir
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Og svo nýta kosningaréttinn.
F
Útbúðu þitt eigið
kosningakaffi...
Já hvað er þjóðlegra en að fara í kosningakaffi á sjálfan kjördag,
dressaður upp í fínasta púss, sjá mann og annan og spjalla.
Það er fátt held ég... En um næstu helgi verður eitthvað lítið
um kosningakaffi á þessu svæði og þá verður maður að redda
sér sjálfur og henda í nokkrar Hnallþórur
En smá pæling... af hverju eru svona rjómatertur kallaðar
Hnallþórur? Ég fór á stúfana og fann út að þetta orð er komið frá
persónunni Hnallþóru í bókinni Kristnihald undir Jökli eftir
Halldór Laxness. Annað orð yfir kökur af þessu tagi er stríðs-
tertur. En orðið hnallur er haft um barefli, kylfu eða lurk og
einnig um tréáhald til að merja hráefni í matargerð. Hnallurinn
er notaður með mortéli sem er ílát til að mylja í hörð efni.
RÉTTUR 1
Gamaldags íslensk
rjómaterta
- tekið af alberteldar.com
Svampbotnar – 2 stk
3-4 egg
2 dl sykur
11/2 dl hveiti (u.þ.b. einn bolli)
1/2 – 1 tsk lyftiduft
1 msk kartöflumjöl
Aðferð: Þeytið egg og sykur
saman. Bætið þurrefnunum var-
lega saman við og hrærið vel.
Setjið í tvö tertumót. Bakið
við u.þ.b.. 180°C hita í um 30
mínútur. Kælið botnana.
Til að setja á milli botnanna:
1 heil dós af koktelávöxtum
1 l rjómi
Aðferð: Setjið annan botninn á
tertudisk og dreifið hluta af safa
af kokteilávöxtum á. Stífþeytið
rjóma, blandið helmingnum af
kokteilávöxtunum í rúmlega
þriðjunginn af rjómanum og
setjið á botninn. Látið hinn
botninn ofan á, vætið með
restinni af safanum. Skreytið með
rjómanum og ávöxtum.
RÉTTUR 2
Dísudraumur
- tekið af alberteldar.com
Svamtertubotn: 1 stk
2 egg
70 g sykur
30 g hveiti
35 g kartöflumjöl
Aðferð: Eggin þeytt vel og sykri
síðan bætt við. Deigið þeytt mjög
vel. Hveiti og kartöflumjöl sigtað
saman og blandað varlega við
deigið. Sett í smurt tertuform
með lausum botni. Bakað í 12
mínútur. Fyrstu 5 mínúturnar er
deigið bakað við 200°C en síðan
við 185°C.
Marensbotn: 1 stk
3 eggjahvítur
150 g flórsykur
Aðferð: Eggjahvíturnar þeyttar
vel og flórsykrinum síðan bætt
við og deigið þeytt vel þar til stíft.
Bakað við 100°C í 2 klst.
Krem:
4 eggjarauður
4 msk. flórsykur
50 g brætt suðusúkkulaði
1/2 l þeyttur rjómi
Aðferð: Eggjarauður og flórsyk-
ur þeytt saman. Suðusúkkulaði
brætt og hrært saman við deigið.
Þeyttum rjóma blandað varlega
saman við með sleif. Að auki er
½ lítri af rjóma þeyttur til að setja
á milli.
Samsetning tertunnar:
1 svamptertubotn
1 sm lag rjómi
1 sm lag krem
marensbotn
1 sm lag rjómi
afgangur af kremi
Hliðarnar eru annað hvort
skreyttar með þeyttum rjóma eða
búinn til stærri skammtur af
kreminu og því smurt á hliðarnar
í stað rjómans.
Verði ykkur að góðu!
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is
Gamaldags rjómaterta. MYND TEKIN AF ISLANDSMJOLL.IS
„Það eru liklega kökur.“
Amelía Rún Jónsdóttir
36/2021 19
Vísnagátur Sveins Víkings
Fjalls við brúnir ferlegur.
Flókna lagða greiðir.
Í ástabralli eldrauður.
Ókind gráa veiðir.