Morgunblaðið - 18.06.2022, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2022 5
Kennari
í pípulögnum
Laus er til umsóknar 100% staða
kennara í pípulögnum við
Borgarholtsskóla frá 1. ágúst 2022
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða kennslu hinna ýmsu greina pípulagna
en einnig undirbúningur kennslu pípulagna sem
nýrrar námsgreinar við skólann.
Hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa iðnmeistararéttindi í
greininni og kennsluréttindi.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða 100% starf. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnana-
samningi Borgarholtsskóla. Á heimasíðu skólans,
www.borgo.is, eru upplýsingar um skólann og starf-
semi hans. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir
til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir
Upplýsingar um starfið veitir Aðalsteinn Ómarsson,
deildarstjóri málmiðngreina, adalsteinn.omarsson@
borgo.is, sími 856-1714. Skriflegar umsóknir ásamt
prófskírteinum, sakavottorði og upplýsingum um fyrri
störf sendist í tölvupósti til Ástu Laufeyjar Aðalsteins-
dóttur, skólameistara Borgarholtsskóla,
asta.adalsteinsdottir@borgo.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2022.
LEITARAÐ
STARFSMANNI
Umsóknir berist til kristjan@fastlind.is
fyrir 1. júlí 2022
Lind fasteignasala auglýsir eftir starfsmanni
í bókhald og önnur tengd verkefni í 50% starf.
Umsækjendur þurfa að hafa kunnáttu
á bókhaldsstörfum og DK hugbúnaðinum.
hagvangur.is
Fasteignafélagið Íþaka leitar að fjármálastjóra sem sýnir frumkvæði, hefur metnað og
kraft til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Helstu verkefni eru fjármálastjórnun og miðlun
fjárhagsupplýsinga, fjármagnsskipan félagsins, áætlanagerð og kostnaðarstýring, samskipti við
viðskiptamenn, fjármálastofnanir og endurskoðendur. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra.
Um er ræða spennandi og krefjandi starf hjá vaxandi fasteignafélagi.
Meðal verkefna fjármálastjóra
• Rekstrar- og fjárfestingaáætlanir
• Undirbúningur endurskoðunar og reglubundin uppgjör
• Aðstoð við undirbúning stjórnarfunda
• Greining á leiguverði fasteigna og þróun á líkönum
• Mat á arðsemi nýrra fjárfestingaverkefna
• Umsjón með innleiðingu og þróun UT verkefna
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi, t.d. í fjármálum og reikningshaldi
• Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Reynsla af reikningshaldi og uppgjörum
• Áhugi á nýtingu tækni til aukinnar skilvirkni
• Færni í mannlegum samskiptum
Fjármálastjóri
Íþaka ehf. er fasteignafélag sem rekur og leigir út
atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að
mæta húsnæðisþörf fyrirtækja. Íþaka leggur áherslu
á skilvirkni og skjóta þjónustu, heilnæmt, sveigjanlegt
og umhverfisvottað húsnæði sem uppfyllir þarfir
atvinnulífsins á hverjum tíma. Aðalsmerki okkar eru
gæði, traust, fágun og sveigjanleiki. Sjá nánar á ithaka.is.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 11.07.2022.
Upplýsingar veita Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir,
yrsa@hagvangur.is, og Katrín S. Óladóttir,
katrin@hagvangur.is
Sótt er um störfin
á hagvangur.is