Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 4
Garðinum eru sífellt að berast fallegar gjafir,
meðal annars listaverk og fleira sem gerir
hann einstaklega fallegan.
V
ilborg, eða Bogga eins og hún er
vanalega kölluð, hófst handa við verk-
efnið að koma upp Raggagarði
eftir að sonur hennar Ragnar
lést í bílslysi í Súðavík árið
2001, þá 17 ára gamall.
„Garðurinn er til minningar um
hann. Ætlun mín var að eyða tíma
sem ég hefði annars átt með Ragnari
heitnum í þennan garð,“ segir Vilborg,
sem er stöðvastjóri Olís á Akureyri í dag
og hefur verið búsett þar frá árinu 2014.
Hún kemur í öllum leyfum sem hún á til Súða-
víkur að styðja við uppbyggingu garðsins.
„Draumurinn um garðinn rættist með aðstoð
heimamanna, sumarbúa, gesta, fjölmargra vel-
unnara á öllum aldri og fjölda styrktaraðila.
Unnið hefur verið af alúð og umhyggju í sjálf-
boðavinnu í mörg þúsund klukkustundir hér frá
árinu 2004,“ segir hún.
Tæpar 50 milljónir króna hafa farið í garðinn
Fjár hefur verið aflað með ýmsu móti. Börn
hafa haldið tombólu og gefið garðinum pen-
ingana. „Ýmiss konar varningur hefur verið
seldur, margt af því gjafir til garðsins. Bökuð
hafa verið fjögur tonn af kleinum á þessum 11
árum og svona mætti lengi telja.
Í dag, árið 2022, er búið að framkvæma fyrir
tæpar 50 milljónir króna frá upphafi,“ segir Vil-
borg.
Skemmtileg aðstaða
„Í Raggagarði er svið ásamt áhorfendasvæði
ætlað fyrir fjölskyldusamkomur og listviðburði.
Nokkur útigrill eru á leikjasvæðinu til afnota
fyrir gesti. Við erum með sæti og borð eru fyrir
120 manns í öllum garðinum.“
Vilborg hefur upplifað margt skemmtilegt í
tengslum við Raggagarð.
„Ég auglýsti eitt sinn eftir fólki til að hjálpa
til við að klára að mála skjólvegg við salernið.
Það kom gamall maður keyrandi, einn elsti
Bolvíkingurinn okkar, og
spurði hvað hann ætti að
mála. Hann kláraði að mála
skjólvegginn og sagðist vera svo
glaður að geta lagt eitthvað af mörkum. Þegar
hann fór rétti hann mér umslag með 100 þús-
und krónum í og sagði að þar sem hann væri
gamall og vildi gera svo miklu meira þá væri
það lágmark að styrkja garðinn um smá aura.
Svona sögur eru óteljandi og hljómar eins og
skáldskapur og er efni í heila bók eða heimild-
armynd,“ segir Vilborg.
Ein af stærri perlum Vestfjarða
Uppbygging Raggagarðs er ennþá í gangi og
verður án efa um ókomna tíð.
„Í sumar er ætlunin að setja upp níu körfu
frisbí völl við í samstarfi við ungmennafélagið
Geisla í Súðavík og með styrk frá Olís, Hrað-
frystihúsinu Gunnvör í Hnífsdal og Verk Vest.
Mitt yndi er að geta komið í gömlu heima-
byggðina og haldið áfram og klárað verkefnið
sem ég byrjaði á.
Það veitir mér mikla ánægju að sjá alla
gleðina hjá börnum og fullorðnum sem heim-
sækja garðinn og njóta hans. Þannig að þá má
segja að ég sé hæst launaða manneskjan á land-
inu.“
Hvað með litla steinasafnið í Raggagarði?
„Litla steinasafnið eru steinar sem ég sjálf
safnaði meðan ég bjó í Súðavík. Þar sem ég var
að flytja ákvað ég að setja steinasafnið á
Boggutún sem er útivistarsvæði garðsins.“
Fjölskyldufólk, erlendir ferðalangar, eldri
borgarar og fólk á öllum aldri heimsækir garð-
inn.
„Á Boggutúni er margt skemmtilegt að
skoða varðandi sögu Súðavíkur og þar má segja
að þú getir séð sérkenni Vestfjarða á einum
stað. Auk þess eru nú sjö listaverk í garðinum
svo hér ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi.“
Vilborgu þykir einstaklega vænt um Súðavík.
„Það var dásamlegt að búa í Súðavík milli
fjalls og fjöru. Maður finnur fyrir orkunni í fjall-
inu Kofra. Í dag vantar sumarhúsabyggð svo
fleiri geti komið og dvalið í þessari paradís og
notið Raggagarðs og alls umhverfisins. Í fyrstu
átti ég hugmynd að garðinum en nú er eins og
garðurinn hafi tekið yfir og er hann orðinn einn
af stærri perlum Vestfjarða,“ segir Vilborg.
Eiginmaðurinn í „Vinnubúðum Vilborgar“
Vilborg hefur reynt ýmislegt í lífinu og er á
því að garðrækt sé allra meina bót og samvera
með fjölskyldunni.
Fyrrverandi eiginmaður hennar, Gunnar
Bjarki Vestfjörð, lést í snjóflóði 8. mars 1989.
Hún kynntist eiginmanni sínum Halldóri Má
Þórssyni árið 1994 og eiga þau tvö börn saman.
Með fyrri manni sínum átti hún tvö börn. Ann-
að þeirra var Raggi sem garðurinn er reistur til
minningar um.
„Það er mikilvægt að finna tilgang í lífinu og
að lifa lífinu í gleði á hverjum degi. Enginn veit
hvað hver og einn fær langan tíma í þessari
jarðvist,“ segir hún.
Vilborg er þakklát eiginmanni sínum fyrir
alla aðstoðina sem hann hefur veitt í gegnum
árin.
„Raggagarður á sig sjálfur. Hvorki ég né aðr-
ir í félaginu eru eigendur. Öll vinna mín og Hall-
dórs er okkar gjöf til Vestfirðinga og lands-
manna allra.
Maðurinn minn hefur stutt mig frá fyrstu tíð
og eytt ómældum tíma í að setja saman öll leik-
tækin, sett upp girðingar og fleira.
Hann hefur stundum kallað garðinn „Vinnu-
búðir Vilborgar“ og sagt að ég stýri verkefnum
með harðri hendi. Einnig er hefð fyrir því að
auglýsa vinnudag í Raggagarði á hverju ári.
Oftast koma allt að 15 einstaklingar að aðstoða
en eitt árið kom hjónaklúbburinn Laufið til
Súðavíkur og tóku þau flest þátt í vinnudeg-
inum og taldi það 28 manns í sjálfboðavinnu.
Það var mjög dýrmætt vinnuframlag til okkar.“
Hægt er að grilla góðan mat, leika sér í leik-
tækjum eða liggja í grasinu og lesa góða bók
svo eitthvað sé nefnt af því sem fólk gerir í
Raggagarði.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Fjölskyldufólk og erlendir ferðalangar koma í heim-
sókn í Raggagarð á sumrin. Það kostar ekkert inn
og staðurinn á sig sjálfur en fólk getur sett peninga í
bauk á staðnum þegar það kemur í heimsókn.
Vilborg Arnarsdóttir átti hugmyndina að
því að búa til fjölbreytta afþreyingu fyrir fjöl-
skyldur og ferðamenn á norðanverðum
Vestfjörðum. Með Raggagarði vildi hún
minnast sonar síns, Ragnars Freys
Vestfjörð heitins, sem lést 2001.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Þessi mynd var tekin þegar Raggagarður var
vígður í Súðavík á sínum tíma. Í tilkynningu til
fjölmiðla kom fram að garðinum væri ætlað að
vera góður hvíldar- og afþreyingarstaður fyrir
fjölskylduna. Hér má sjá mynd af Vilborgu fram-
kvæmdastjóra Raggagarðs fara sína fyrstu ferð
í aparólunni góðu sem finna má í garðinum.
„Garðurinn er
til minningar
umRagga“
Í vikunni hlaut Raggagarður
umhverfisverðlaun Ferða-
málastofu, sem er mikill
heiður fyrir Vestfirði.
Vilborg Arnarsdóttir,
frumkvöðull að
Raggagarði í Súðavík,
starfar sem stöðvar-
stjóri Olís á Akureyri
en kemur í sumar-
fríum sínum að reka
garðinn.
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022