Morgunblaðið - 15.06.2022, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022
É
g hef verið svo heppin að fara vítt og
breitt um Vesturland og þekki þar
orðið marga króka og kima, enda hef
ég haft góða leiðsögn. Fjölbreytnin er
mikil í landslaginu, fegurðin endalaus og af-
þreying næg. Góðar sundlaugar eru víða.
Hreppslaug er í uppáhaldi og svo náttúru-
laugar, eins og til dæmis í Landbroti og
Rauðamelslaug. Ég kom í Berserkjahraun á
Snæfellsnesi í fyrsta sinn í fyrra. Það var
mjög gaman að sjá og minnir mann á að það
eru fallegir staðir víða sem vert er að heim-
sækja og jafnvel dvelja á, þótt ekki sé nema í
stutta stund og njóta dagsins,“ segir Marí-
anna.
Hún segir að Borgarnes og Borgarfjörð-
urinn hafi komið henni á óvart, þegar hún fór
að verja meiri tíma á svæðinu.
„Borgarfjörðurinn er minn uppáhalds-
staður og má nefna sérstaklega eyjarnar á
Mýrunum með miklu fuglalífi. Svo er Stykk-
ishólmur í sérstöku uppáhaldi, sem ég kynnt-
ist vel sem barn. Í Stykkishólmi er sérlega
skemmtilegur golfvöllur sem gaman er að
spila á og þar er alltaf gott veður. Borgarnes
hefur líka komið mér skemmtilega á óvart,
sem fallegur og vinalegur bær. Þar held ég
sérstaklega upp á Skallagrímsgarð, sem er
fagur og kyrrlátur staður. Þar er líka líf og
fjör á bæjarhátíðum. Bjössaróló er gaman að
heimsækja, bæði fyrir börn og fullorðna, og
svo eru sögustaðir úr Egils sögu á hverju
horni. Það eru skemmtilegar gönguleiðir í
Borgarnesi meðfram ströndinni og eftir einn
slíkan göngutúr er tilvalið að setjast niður á
Kaffi Kyrrð í Blómasetrinu. Þeir sem þekkja
mig vita að ég ver allnokkrum tíma á golfvell-
inum á Hamri en hann er að mínu mati falleg-
asti völlur landsins. Síðast má nefna fjöruna
við Seleyri þar sem oft má sjá veiðimenn og
fjöruna við Hafnarskóg. Hún er mjög falleg
og gaman að ganga þar,“ segir hún.
Hvar er besti maturinn á Vesturlandi?
„Besti maturinn í Borgarnesi er í Englend-
ingavík og á Landnámssetrinu. Það er gaman
að heimsækja leikfangasafn Soffíu og land-
námssýninguna í leiðinni. Svo eru bestu pyls-
urnar í skálanum hjá Braga við Deildartungu-
hver. Annar góður áfangastaður er svo í
Hraunsnefi. Þar er boðið upp á ljúffengan mat
frá sjálfbæru býli og Hreðavatnsskáli, sem er
rétt hjá, er frábær áfangastaður fyrir barna-
fjölskyldur. Í Stykkishólmi er Narfeyrarstofa
í uppáhaldi. Á Arnarstapa er landsins besti
fiskur og franskar hjá sómahjónunum Helgu
og Óla á veitingahúsinu Stapanum. Þar er
alltaf logn á pallinum og góðar móttökur.“
Þú lifir nú eiginlega tvöföldu lífi, býrð bæði
í Reykjavík og í Borgarnesi. Hvað gerir þú í
bílnum á leiðinni á milli staða?
„Ég hlusta mikið á útvarpið og stundum
hljóðbækur og nota svo tímann til að hringja
símtöl sem þurfa góðan tíma. Ég skipti alltaf
leiðinni í þrjá hluta, að göngum, göngin og svo
eftir göngin. Þá finnst mér leiðin aldrei löng,
enda er hún alltaf klukkutími frá húsi til húss
og auðvitað alltaf farin á löglegum hraða! Um-
ferðin hefur aukist mikið og því þýðir lítið að
flýta sér. Landslagið er aldrei eins og ég keyri
oft snemma á morgnana til vinnu í Reykjavík.
Þá finnst mér sérstaklega fallegt að horfa á
Botnssúlur þegar sólin skín á tindana og
Hafnarfjall er alltaf glæsilegt, sama hvernig
viðrar.“
Hvað kom þér mest á óvart þegar þú
kynntist Vesturlandi betur?
„Fjölbreytnin og fegurðin kom mér mest á
óvart eins og ég hef áður nefnt og er góð
áminning um að njóta stundarinnar og horfa
vel í kringum sig. Það er líka mikilvægt að
lesa sér til um umhverfið og skoða það sem
fyrir augu ber. Allra best er auðvitað að hafa
með sér fróðan leiðsögumann sem þekkir vel
til staðhátta og jafnvel spyrja heimafólk um
áhugaverða og fallega staði sem leynast út um
allt.“
Hvert er best geymda leyndarmálið á Vest-
urlandi?
„Berserkjahraun er alger paradís og auð-
vitað allt Snæfellsnesið. Þar má nefna Djúpa-
lónssand og Lóndranga. Fyrir þá sem hafa
gaman af hestamennsku er stórkostlegt að
ríða um Löngufjörur og þá mæli ég með túr
frá Lýsuhóli. Mér finnst alltaf gaman að
ganga um fjöruna á Hellnum og setjast svo
niður við Fjöruhúsið. Þá er gaman að heim-
sækja Rauðamelsölkeldu og
Gerðuberg, þar sem er fal-
legt stuðlaberg. Ég myndi
endilega fara í ævintýrasigl-
ingu um Breiðafjörðinn með
Sæferðum í Stykkishólmi og
ekki sleppa því að smakka
sjávarfangið sem veitt er í ferðinni! Fyrir
yngra fólk, sem man ekki eftir lífi fyrir göng,
mæli ég með ferð um Hvalfjörð og Kjósina. Í
Botnsdal eru skemmtilegar gönguleiðir og
fossinn Glymur,“ segir Maríanna.
Hvað mælir þú með að fólk geri sem vill
gera sér glaðan dag á þessu svæði?
„Það eru frábær tækifæri til útivistar víða,
golf á Hamri og þar er Icelandair Hotel Ham-
ar, hvar hægt er að gista eða njóta góðra veit-
inga eftir golfhringinn. Útivistarsvæðið í Ein-
kunnum er skammt undan fyrir þá sem vilja
ganga í grónu umhverfi. Svo er auðvelt að
ganga á Grábrók og útsýnið þaðan er stór-
kostlegt. Þá mæli ég með að heimsækja foss-
inn Glanna, ganga niður í Paradísarlaut og
jafnvel baða sig þar. Svo eru auðvitað mörg
glæsileg fjöll til að ganga á í Borgarfirði, svo
sem Hafnarfjall, Skessuhorn og Baula. Ekki
má sleppa því að stoppa við Hraunfossa á leið-
inni upp í Húsafell og þar er notalegt kaffihús.
Gaman er að koma í Surtshelli í Hallmundar-
hrauni. Víða eru líka sundlaugar til að slaka á
í eftir góða gönguferð eða fjallgöngu. Fyrir þá
sem vilja smá lúxus er hægt að fara í Kraumu
eða jafnvel Giljaböðin í Húsafelli og svo gista
á Hótel Húsafelli og þar er líka hægt að spila
golf.“
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
„Í sumar ætla ég að vera í Borgarfirðinum
og í Stykkishólmi og svo á Akureyri. Þar
verður spilað golf og örugglega á fleiri stöðum
á leiðinni, til dæmis á Sauðárkróki. Vænt-
anlega verða farnir skemmtilegir túrar um
nærsveitir þessara staða og svo vonast ég líka
til að njóta einhverra daga í
fjölskyldubústaðnum á Þing-
völlum en það er einn af mín-
um uppáhaldsstöðum á land-
inu,“ segir Maríanna.
Er einhver staður á Íslandi
sem þig dreymir um að heim-
sækja?
„Mig dreymir um að heimsækja Stuðlagil,
sem ég náði ekki að sjá í síðustu ferð austur á
land. Þá fórum við inn á Möðrudalsöræfi en
ég á enn eftir að koma inn að Herðubreiðar-
lindum og Öskju. Tveir staðir sem mig dreym-
ir um að heimsækja að fjallabaki eru annars
vegar Rauðibotn og hins vegar Rauðauga.“
Eyjarnar á
Mýrunum í sér-
stöku uppáhaldi
Maríanna Garðarsdóttir, forstöðumaður rannsóknaþjónustu Land-
spítalans, fann ástina í Borgarnesi og er því með annan fótinn þar, þótt
hún búi í Reykjavík. Hún segir að fegurðin í Borgarfirðinum sé engu lík
og þar sé til að mynda góður golfvöllur sem hún ver miklum tíma á.
MartaMaríaWinkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
Maríanna á 13. teig
á Hamarsvelli.
Miðnæturgolf á Hamarsvelli
er upplifun út af fyrir sig.
Fjöllin í miðnætursólinni
en hér má sjá Hafnarfjall
vinstra megin.
Hér er Ritan á flugi.
Hlúð að
æðarvarpinu.
Besti maturinn í
Borgarnesi er í
Englendingavík og
á Landnámssetrinu
Sigga Heimis og Maríanna Garð-
arsdóttir eru æskuvinkonur og spila
golf þegar vel liggur á þeim.