Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Síða 19
17.4. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 HÖNNUN Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! SKODA SUPERB IV SPORTLINE COMBI Nýskráður 05/2021, ekinn aðeins 7 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid), sjálfskiptur (6 gíra). 19“ álfelgur og dekk. DRÁTTARKRÓKUR (ekki hægt að bæta við eftirá!). Rafdrifinn afturhleri, hiti í öllum sætum. Raðnúmer 253737 0 M.BENZ A 250e AMG- LINE Nýskráður 06/2020, ekinn 26 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 69 km drægni), sjálfskiptur (8 gíra). BURMESTER hljóðkerfi, Apple CarPlay, Android Auto, Night pack (Næturpakki), AMG line innan og utan. Raðnúmer 253735 0 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn VIÐ ERUM EKKI AÐ FARA NEITT ÞÚ FINNUR OKKUR Á FUNAHÖFÐA EITT Hlökkum til! Indriði Jónsson s. 771 8900 og Árni Sveinsson M.BENZ EQC 400 4MATIC POWER 2021 Nýskráður 12/2020 ekinn aðeins 9 Þ.km, rafmagn (408km drægni), sjálf- skiptur, fjórhjóladrifinn. Alveg hlaðinn aukabúnaði s.s. AMG-line bæði innan og utan. Sjónlínuskjár, 21“ álfelgur, rafdrifin framsæti, skynvæddur hraðastillir, 360° bakkmyndavél. BURMESTER hljómkerfi og hellingur í viðbót. Raðnúmer 254037 0.0009 Spilar maður ekki betur ef manni líð- ur vel í flottum og þægilegum fatn- aði? Heildarpakkinn skiptir máli, þú berð þig betur ef þú ert ánægð með þig.“Hefur þú mætt í gallabuxum út á völl? „Ég myndi aldrei mæta í öðru en golffatnaði út á völl. Meira að segja ef ég er áhorfandi á mótum finnst mér eitthvað skrítið við að vera í gallabux- um í þessu umhverfi. Ég er „all in“ hvað það varðar.“ Mesta tískuslysið þitt? „Ég reyni að forðast slysa- gildrurnar en ef ég dett í þær reyni ég að losa mig við slysin, það vantar alltaf pláss í skápinn. Ég er yfirleitt ekki fljótfær í fatakaupum.“ Áttu þér tískufyrirmynd? „Amma mín var alltaf svo fal- lega klædd og fylgdist með tískunni alla tíð, hún bjó í miðbænum og fór reglulega og skoðaði í búðirnar á Laugaveginum. Hún var líka svo flink að sauma og kenndi mér að horfa á frágang og gæði í fatnaði.“ Hvað er á óskalistanum fyrir vorið? „Nú eru hæg heimatökin í golffatn- aði, ég gæti alveg hugsað mér að fá mér flottar hvítar golfbuxur og peysu í stíl. Og fyrir þá daga sem verða ekki á golfvellinum væri fínt að fá sér nýj- ar gallabuxur, strigaskó og já eins og einn sumarlegan kjól, þá er ég tilbúin í sumarið.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Útlitið skiptir líka máli í golfinu. Ítalska tískuhúsið Gucci er í uppá- haldi hjá Katrínu. F yrirtækið Space Perspective kynnti á þriðjudag nýjung í geimferðamennsku. Viðskiptavinum verður boðið upp á ferð í efstu lög lofthjúpsins um jörðina í eins konar geimloftbelg frá Kennedy-miðstöð- inni í Flórída. Ferðirnar eiga að hefjast seinni hluta árs 2024 og hafa þegar verið seldir 600 miðar á 125 þúsund dollara (16 milljónir króna) hver. Gluggarnir á geimhylk- inu eru 1,5 metra háir, sætin djúp og lýsingu stillt í hóf, segir í frétt frá AFP, og því bætt við að það sé ólíkt hvít- um og dauðhreinsuðum innréttingum keppinautanna. Í fréttinni segir að deila megi um hvað teljist geim- ferð. Loftbelgurinn nái 30 km hæð og fari því ekki næst- um jafnt hátt og keppinautarnir Virgin Galactic sem fer í 75 km hæð og Blue Origin sem fer í 90 km hæð. Það er þó mun hærra en farþegavélar, sem fara í um 10 km hæð. „Við erum yfir 99% af lofthjúpi jarðar,“ sagði Jayne Poynter, einn af stofnendum Space Perspective, sem þýði að farþegar muni sjá bleksvartan geiminn. Ekki er þörf á sérstakri þjálfun fyrir ferðalagið. Loft- belgurinn hækkar flugið á um 19 km hraða á klukku- stund. Ekki verður þörf fyrir eldflaugaeldsneyti. Ætl- unin er að nota vetni unnið með endurnýjanlegri orku þannig að ferðunum fylgi enginn útblástur. Ferðin upp tekur tvær klukkustundir. Belgurinn mun síðan líða um háloftin í tvær klukkustundir áður en hann byrjar að lækka flugið og lendir í sjónum. Geimferð með Virgin Galactic kostar um 58 milljónir króna og ferðir Blue Origin eru taldar mun dýrari, en verðið er ekki gefið upp. Þótt ferðin kunni að vera léttari fyrir pyngjuna munu farþegar með Space Perspective hins vegar ekki upplifa þyngdarleysi líkt og viðskipta- vinir keppinautanna. Svona sjá menn fyrir sér útsýnið úr geimfari Space Perspective. AFP/Kynningarmynd/Space Perspective Munaður í geimnum Inni í loftfarinu verða ýmis þægindi á borð við bar og net- tengingu, stórir gluggar og lungamjúk sæti.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.