Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2022 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 539.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 559.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,- STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 479.000,- TRATTO model 2811 L 145 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,- L 207 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,- L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 „Follow the Moskva. Down to Gorky Park,“ segir í upphafi Wind of Change, hins fræga friðarsöngs þýska málmbandsins Scorpions – eða öllu heldur sagði. Þeir félagar hafa nefnilega breytt textan- um vegna innrásar Rússa í Úkraínu; þar segir nú: „Now listen to my heart. It says Ukraine.“ Scorpions samdi lagið árið 1989 eftir að hafa komið fram á friðartónleikum í Moskvu og það varð skömmu síðar eins konar einkennislag fyrir fall kommúnismans og járntjaldsins. Í samtali við miðilinn Loudwire Nights segir Klaus Meine söngvari að í ljósi aðstæðna sé ekki lengur við hæfi að rómantísera Rússland og Moskvu og fyrir vikið hafi blasað við að breyta textanum. „Við vildum leggja okkar af mörkum til að styðja Úkraínu,“ sagði hann. Scorpions eru núna með aðsetur í Las Vegas og á tónleikum um daginn hvatti Meine gesti til að taka hátt og snjallt undir í Wind of Change. „Við tileinkum lagið hinum hugrökku íbúum Úkraínu.“ Klaus Meine á tónleikum í Las Vegas í lok mars. AFP/Ethan MILLER Afrússuðu Wind of Change Úkraínumönnum berst stuðningur úr ýmsum átt- um á þessum erfiðu tímum í sögu þjóðarinnar. AFP/Fabrice COFFRINI Scorpions breyta textanum í Wind of Change til að mótmæla Úkraínustríðinu. „Það hefir oft verið kveðið svo sterkt að orði, að hjúskapurinn væri hornsteinn þjóðfélagsins, og enginn hefir orðið til að bera brigður á það,“ stóð í Morgun- blaðinu um miðjan apríl 1952. „Þær koma því dálítið óþægi- lega við menn frásagnirnar um lausaleiksbörnin, að rúmlega fjórða hvert barn, sem fæðist á Íslandi, sé óskírgetið. Þeir, sem hafa kynnt sér þessi málefni bezt, segja þó, að hér sé ekki eins bölvanlega ásatt og líti út fyrir að vera. Að vísu eigum við heimsmet í fæðingum lausa- leiksbarna, en það sé af því, að Íslendingar giftist helzt ekki nema af einskærri ást, og því séu hjónaskilnaðir hér undrafáir.“ Fram kom að mörgum þætti of lítið gert fyrir þá, sem stofna vilja heimili. „Það er nú stað- reynd, að ekki er hægt að byrja búskap með tvær hendur tómar, ef lifa á mannsæmandi lífi, og eignalausir frumbyggjar eiga ekki aðgang að neinni lánastofn- un, geta í mesta lagi kríað út lán fyrir hringunum.“ Þessu var víst öðruvísi farið áður, þegar það nægði, að ungu hjónin ættu rúmflet eitt innan- stokksmuna og ein herbergis- kytra var feikinóg, þó að fjölgaði í kotinu. GAMLA FRÉTTIN Íslendingar giftast af ást Íslendingar giftust helst ekki nema af einskærri ást fyrir sjötíu árum. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞRÍFARAR VIKUNNAR Leifur Dagfinnsson framleiðandi Hugh Jackman kvikmyndaleikari Toni Kukoc körfuboltamaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.