Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022
MENNTUN
B
ókasöfn eru auðlind, kyrrðar-
staður í hröðum heimi nútím-
ans. Bókasafn Vestmanna-
eyja er í samstarfi við verkefnið
Kveikjum neistann, sem ætlað er að
auka lestur og bæta líðan grunn-
skólabarna. Bókasafnið getur orðið
að liði við að mæta þeim áskorunum
sem við sem þjóðfélag glímum við
hvað varðar læsi og allar þær alvar-
legu afleiðingar sem vandi á því
sviði hefur í för með sér.
Meðal þeirra áskorana sem við
stöndum í sívaxandi mæli frammi
fyrir eru þær staðreyndir að:
! Málskilningi og orðaforða hrakar
hjá börnum á leikskólaaldri og börn-
um og unglingum á grunnskólaaldri.
! Sífellt fleiri teljast ekki geta lesið
sér til gagns eftir 2. bekk.
! Þeim fækkar sem lesa sér til
gagns í lok grunnskólans, við 15 ára
aldur (19% stúlkna og 34% drengja).
Ástæðan fyrir þessum vanda er
einkum skortur á þjálfun og stóra
áskorunin er: Hvernig aukum við
bókalestur barna og unglinga,
hvernig eflum við þjálfun í lestri og
hvaða leiðir eru bestar til að glæða
áhugann á lestri bóka?
Fjölbreytt úrval bóka
forsenda þjálfunar
Rannsóknir einstaklinga á borð við
Kate Nation, prófessor við Oxford-
háskóla, hafa í æ ríkari mæli beint
athyglinni að mikilvægi þjálfunar í
námi barna og unglinga sem bestu
leiðarinnar til að auka og efla mál-
og lesskilning. Kate hefur sýnt fram
á hversu nauðsynlegt það er að
bjóða ævinlega upp á sem fjöl-
breyttast úrval bóka sem geta vakið
áhuga og vilja til að lesa meira. Að
barnið hafi úr nógu efni að velja á
hvaða stigi þroska og leshæfni sem
það er statt á hverju sinni.
Af þeim sökum eru bókasöfn svo
mikilvæg, bæði skólabókasöfnin sem
nærstofnun, en ekki síður bæj-
arbókasöfnin um allt land með sitt
fjölbreytta úrval bóka. Bókasafn
Vestmannaeyja er í hópi stærstu
bókasafna utan suðvesturhornsins
og Akureyrar og þar hafa börn og
ungmenni aðgang að yfir 12.000
bókum sem voru sérstaklega gefnar
út fyrir þann markhóp. Auk þessa
eru þúsundir bóka í þessu um
100.000 bóka safni sem henta börn-
um og ungmennum á ólíkum tímum.
Til þess að örva í sífellu bóklestur,
eins og vísindin leggja svo ríka
áherslu á, þurfa bókasöfnin að stíga
stórhuga inn í það verkefni að glæða
lestur grunnskólabarna með sínum
fjölbreytta bókaforða og bókasöfnin
verða að opna börnum og ekki síður
foreldrum þeirra og forráðamönn-
um betur dyr sínar svo að ævintýra-
veröld bókarinnar nái sem best til
barnsins.
Lestur og sköpun
En lestur á ekki að vera aðeins mót-
taka óvirks einstaklings, ef vel á að
vera þarf lesturinn að virkja sköp-
unarmátt barnsins. Þannig hafa
rannsóknir sýnt fram á að það er
ekki síður mikilvægt að efla skap-
andi skrif hjá börnum og unglingum
til að auka getuna til skilnings á því
sem lesið er. Lestur er hugarrækt,
við lestur skapast kúplingar innan
ákveðinna heilasvæða og netverk af
taugafrumum styrkist og þróast
samhliða því að minni batnar. Því
þurfa bókasöfnin einnig að bjóða
upp á aðstöðu fyrir börnin til að
vinna úr þeim hugsunum og hug-
myndum sem bóklesturinn kveikir.
Það er hið virka samtal barns og
bókar sem skapar kjöraðstæður til
þjálfunar, þar sem barnið les bók og
vinnur úr þeim hugmyndum sem
bókin vekur á sinn persónulega hátt.
Á þann veg er líklegast að barnið
sækist í að finna nýja bók sem talar
til þess með nýjum áskorunum. Þar
koma foreldrar og forráðamenn
sterkir inn í samstarfi við bókasöfn-
in.
Skemmtilegur og fræðandi
fjölskyldustaður
Í viðleitni til að virkja foreldra hefur
Bókasafn Vestmannaeyja í sam-
starfi við Kveikjum neistann og
Grunnskóla Vestmannaeyja haft
Opið hús á laugardögum – þegar co-
vid hefur leyft. Slíkur dagur var
laugardaginn 23. október sl. þar sem
Hermundur, Kári og Svava Þ. Hjal-
talín kynntu hvað bæjarbókasafnið
hefur upp á að bjóða öllum þeim
sem vilja hjálpa börnum sínum við
að auka lestrarfærni og lesskilning.
Starfsfólk bókasafnsins hafði lagt
mikla vinnu og mikinn metnað í að
útbúa barnadeild safnsins sem best
úr garði og uppskar ríkulega þar
sem fjöldi barna á öllum aldri mætti
og skemmti sér hið besta þrátt fyrir
að umgjörðin væri nokkuð í anda
komandi hrekkjavöku.
Markmiðið var að sýna að bóka-
söfn eru hvorutveggja skemmti-
legur og fræðandi fjölskyldustaður,
þar sem hægt er að fara með aðstoð
bókar og ímyndunaraflsins hvert
sem er og þar sem bókin getur vaxið
með barninu eftir því sem barnið
sjálft dafnar. Slíkur ævintýrastaður
er bókasafnið. Til að upplifa gald-
urinn þarf aðeins að tengja saman
rétta bók við barnið – akkúrat bók-
ina sem fangar það á þessum tíma
og á þessu þroskaskeiði, dregur það
til sín og sýnir því undralöndin, þar
til barnið vex upp til nýrra bóka.
Lengi býr að fyrstu gerð
En það má ekki gleyma því að leik-
skólarnir eru fyrsta skólastigið. Því
er það einstaklega ánægjulegt að
leikskólar bæjarins, Kirkjugerði og
Sóli, hafa lengi verið öflugir í því að
nýta sér bókasafnið. Þannig settu
starfsmenn Kirkjugerðis upp glæsi-
lega sýningu í tilefni af Opnu húsi
bókasafns í október sl. og kynntu
þar listsköpun barnanna.
Með því að verk yngstu barnanna
móti umgjörðina er verið að leggja
áherslu á mikilvægi hinnar snemm-
bæru íhlutunar þar sem leikskól-
arnir tengja saman að lesa fyrir
börnin og láta þau vinna á sínum
eigin forsendum úr því sem þau
hlusta á. Það verkefni er sameig-
inlegt átak leikskólans og foreldra.
Á Opnu húsi er því lögð megin-
áhersla á að fá foreldrana til að
koma með börnum sínum, sjá hvað
yngstu börnin eru að gera með
sköpunarkrafti sínum og síðan
hvernig virkja má þann sköpunar-
kraft til að byrja gönguna löngu – að
læra að lesa sér að gagni. Það verð-
ur að vera samfélagslegt verkefni
okkar allra og Kveikjum neistann er
tilraun til að sameina alla sem geta
orðið að liði undir einu merki. Þann-
ig næst best árangur. Hinn 21. októ-
ber er planlagt málþing um Kveikj-
um neistann í Vestmannaeyjum, þar
sem árangur og reynsla af fyrsta ári
verkefnis verður kynnt og rædd.
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is
Kári Bjarnason
Í Bókasafni Vestmannaeyja var haldið opið hús í haust undir merkjum verkefnisins Kveikjum neistann! sem snýst á að
auka áhuga á lestri og virkja sköpunarkraft barnanna til að „byrja gönguna löngu – að læra að lesa sér að gagni“.
Morgunblaðið/Ómar
Mikilvægi bókasafna fyrir læsi
barna og unglinga
’
Til að upplifa gald-
urinn þarf aðeins að
tengja saman rétta bók
við barnið – akkúrat
bókina sem fangar það á
þessum tíma og á þessu
þroskaskeiði, dregur það
til sín og sýnir því undra-
löndin, þar til barnið vex
upp til nýrra bóka.
Hermundur er prófessor við
Norska tækni- og vísindaháskólann í
Þrándheimi og við Menntun og hug-
arfar – rannsóknasetur við Háskóla
Íslands og Kári er forstöðumaður
Bókasafns Vestmannaeyja.
- meira fyrir áskrifendur
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 2.090 kr. færð þú netaðgang
að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.