Mosfellingur - 22.04.2021, Blaðsíða 20
Það var vel tekið á móti mér á fallegu
heimili athafnakonunnar og fagur-
kerans Maríu Mörtu Sigurðardótt-
ur í Helgafellshverfinu. Við fengum okkur
sæti í betri stofunni og María bauð upp á
kaffi og ljúffenga ostaköku.
María hefur starfað við innflutning á
ýmiss konar varningi í gegnum tíðina en
nú er hún að flytja inn falleg þurrblóm og
strá í hinum ýmsu litum og gerðum. Hún
segir þurrskreytingar mikið í tísku í dag
bæði fyrir fyrirtæki og heimili.
María Marta er fædd í Reykjavík 3. okt-
óber 1964. Foreldrar hennar eru þau María
Matthíasdóttir og Sigurður Jónsson en hann
lést árið 2003.
Systkini Maríu eru Sigurlína Guðfríður,
Jón og Sigríður Hrönn og samfeðra eru þau
Valdimar og Hjördís.
Afi sagði mér sögur úr sveitinni
„Ég ólst upp í Vesturbænum en bjó einnig
við Nesveg á Seltjarnarnesi, á báðum þess-
um stöðum var gott að búa. Við mamma
fórum oft til trillukarlanna við Ægisíðuna
til að kaupa rauðmaga og svo var komið við
í mjólkurbúðinni á leiðinni heim.
Ég var lánsöm því á æskuheimili mínu
bjó föðurafi minn, ég á margar dýrmætar
minningar úr æsku tengdar honum. Afi
kenndi mér bænir og vísur og sagði mér
sögur úr sveitinni, hann lést þegar ég var
16 ára.“
Alin upp á kristnu heimili
„Ég er alin upp á kristnu heimili, for-
eldrar mínir voru bæði með kristilegan
bakgrunn úr æsku. Borðbænir voru hafðar
fyrir máltíðir og sunnudagsmaturinn var
vanalega í hádeginu. Heima í stofu var svo
lítill sunnudagaskóli fyrir okkur systkinin.
Ég byrjaði skólagöngu mína í Mýrar-
húsaskóla og fór síðan í Melaskólann. Tók
stúdentspróf frá Kvennaskólanum og fór
síðan til Kenýa og var þar í þrjá mánuði hjá
systur minni og fjölskyldu sem
voru þar sem kristniboðar.
Þegar ég kom heim fór ég að
starfa hjá lyfjainnflutningsfyrir-
tæki í Garðabæ.“
Flutti úr foreldrahúsum
„Árið 1986 fór ég á árshátíð KFUM og K,
þar kynntist ég yndislegum manni, Ásgeiri
Markúsi Jónssyni, sem síðar varð eiginmað-
ur minn, faðir barna minna og besti vinur.
Ásgeir var búsettur í Mosfellsbæ, var ekkill,
átti tvö börn og starfaði sem flugvélstjóri
hjá Flugleiðum.
Árið 1987 flutti ég úr foreldrahúsum í
Bugðutangann og þar bjuggum við Ásgeir
okkur heimili til 28 ára. Ég tengdist yngra
barni Ásgeirs, Gerði Rós, sterkum böndum
enda áttum við sama heimili.“
Aldursmunurinn truflaði okkur aldrei
„Við Ásgeir giftum okkur 1987 og þrátt
fyrir 21 árs aldursmun þá truflaði hann
okkur aldrei, það var einstök ást á milli
okkar sem óx með degi hverjum.
Það sem skipti okkur mestu máli í lífinu
voru börnin okkar og þeirra farsæld en
við eignuðumst þrjú börn. Davíð f. 1988
starfar í Dalsgarði í Mosfellsdal,
Rakel f. 1990 er flugfreyja og
förðunarfræðingur og Samúel
f. 1996 starfar hjá Bakka í Mos-
fellsbæ og er nemi í Tækniskólanum. Þau
voru öll á leikskólanum Hlaðhömrum og
í Varmárskóla og ég verð ævinlega þakklát
fyrir hversu vel var haldið utan um þau af
einstaklega góðu starfsfólki á báðum þess-
um stöðum en eitt barna okkar þurfti meiri
þjónustu en venjan er.
Ásgeir hóf störf hjá Cargolux 1989 og
þá hófst tímabil í lífi okkar þar sem hann
var mikið fjarverandi. Í Lúxemborg áttum
við okkar annað heimili og við tengdumst
borginni fljótt.
Vorið 2003 keyptum við okkur sumarbú-
staðaland við Hafravatn og byrjuðum á að
setja niður tré og gera fínt í kringum okkur.
Við keyptum síðan hús frá Danmörku og
skiptum því út fyrir gamla bústaðinn. Sælu-
víkin okkar eins og hún heitir er griðastaður
og er uppfull af góðum minningum.“
Hann fól Drottni þetta verkefni
„Í maí 2008 hófst erfitt tímabil í lífi okkar
þar sem Ásgeir greindist með krabbamein.
Við tóku aðgerðir og
lyfjameðferðir en við
litum á þetta sem
okkar sameiginlega
verkefni eins og allt
annað. Ásgeir sýndi
einstakt æðruleysi
í veikindum sínum
og fól Drottni þetta
verkefni eins og öll
önnur í lífinu.
Hann lést 2015 og
höggið var gríðarlegt
og sorgin og sökn-
uðurinn óbærilegur.
Eftir stóð ég ung
ekkja með börnin þrjú en það sem
hjálpaði mér mest var hvað við hjónin
höfðum talað mikið saman og ákveðið
margt áður en hann lést.
Ég fékk einstakan kraft til þess að tak-
ast á við framhaldið og ákvað að standa
upprétt gagnvart börnunum mínum
og tengdabörnum. Við vorum umvafin
fjölskyldu og vinum sem studdu okkur.
Með hækkandi sól kom inn í líf mitt
ömmuprinsessa, Sigurbjörg María, sem
hefur veitt mér mikla gleði. Ég hef líka
verið lánsöm með börnin mín því þau hafa
staðið þétt við bakið á mömmu sinni, bæði
í gleði og sorg.“
Gekk í gegnum sömu lífsreynslu
„Þótt áföllin í lífi mínu hafi verið mörg
þá hef ég líka upplifað mikla gleði og ham-
ingju. Haustið 2015 kynntist ég góðum
manni, Tryggva Þorsteinssyni sölustjóra,
sem er ástin mín og kletturinn í lífi mínu.
Á árum áður vissum við af hvort öðru í
gegnum dætur okkar sem spiluðu saman
knattspyrnu með Aftureldingu.
Tryggvi gekk í gegnum sömu lífsreynslu
og ég en hann missti maka sinn, Jóhönnu
Gunnlaugsdóttur, úr krabbameini. Hana
þekkti ég og hún var vel gerð kona. Tryggvi
og Jóhanna eignuðust eina dóttur, Krist-
ínu.“
Útbjuggum myndavegg á heimilinu
„Við Tryggvi ákváðum að fara ekki
hratt út í hlutina barnanna vegna og eins
þurftum við tíma til að vinna úr sorginni.
Við höfum staðið við hlið hvors annars og
hjálpast að við að halda minningu Ásgeirs
og Jóhönnu á lofti. Fyrir jólin útbjuggum
við myndavegg á heimili okkar þar sem þau
eru í miðjunni og út frá þeim koma myndir
af okkur og börnunum okkar.
Við eigum saman vel gerðan og skemmti-
legan hóp af glæsilegu ungu fólki sem eru
börnin okkar, tengdabörnin Einar, Lovísa
og Guðmundur og tvær dásamlegar ömmu-
og afaprinsessur, þennan hóp köllum við
söfnuðinn.“
Hef alltaf haft áhuga á blómum
„Ég starfaði sem ritari í Lágafellsskóla
í nokkur ár og svo hef ég lengi starfað við
ýmiss konar innfluting. Núna er ég að flytja
inn þurrblóm og strá í mörgum litum og
stærðum. Þessar vörur eru mikið í tísku í
dag bæði fyrir fyrirtæki og heimili. Ég hef
einnig verið að gera samúðargjafir, skreyti
trékrossa, geri vendi og leiðisskreytingar.
Ég hef mikla ánægju af að skreyta heimili
mitt og vil hafa fallegt í kringum mig. Ég hef
haft áhuga á blómum allt mitt líf og hef sótt
nám í tengslum við þau. Ætli áhugi minn á
þeim og að raða saman litum sé ekki hug-
myndin að þessu öllu saman.
Ég vona að Mosfellingar taki mér vel og
komi og skoði úrvalið hjá mér en hægt er að
hafa samband við mig á stilkur.is. Ég kem
til með að vera með sérstakt tilboð fyrir
Mosfellinga út maí,“ segir María og brosir
um leið og við kveðjumst.
Ég fékk einstakan kraft
til þess að takast á við
framhaldið og ákvað að standa
upprétt gagnvart börnunum
mínum og tengdabörnum.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
HIN HLIÐIN
Hvaða bók lastu síðast?
Dag í senn, Karl Sigurbjörnsson,
lesning fyrir hvern dag.
Hvaða litur lýsir þér best? Rauður.
Draumaborgin? Lúxemborg, Köln
og San Francisco.
Hvað heillar þig í fari fólks?
Glaðlyndi, hlýleiki, heiðarleiki.
Bestu kaup sem þú hefur gert? Sælu-
reiturinn, Sæluvíkin mín við Hafravatn.
Hverju myndir þú breyta á Íslandi
ef þú ættir þess kost? Fátækt og að
útigangsfólk hverfi af Íslandinu góða.
Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu?
Börnin mín, maðurinn minn, heilsan mín.
Skrítnasta upplifunin? Þegar ég var
ófrísk á leið til útlanda og vegabréfið
gleymdist heima. Ég hringdi í nágranna
mína sem brutust inn hjá mér, fundu
vegabréfið og keyrðu svo með það til mín
á ólöglegum hraða til Keflavíkur. Vélin
beið aðeins eftir mér og ég komst með.
Fjölskyldan í Bugðutanganum, Samúel, Ásgeir, Rakel, María Marta og Davíð.
Ég vil hafa fallegt í kringum mig
María Marta Sigurðardóttir athafnakona og fagurkeri segir þurrblóm og lituð strá vera mikið í tísku í dag
- Mosfellingurinn María Marta Sigurðardóttir 20
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
fjölskyldan um áramótin 2020
maría 4 ára maría marta og tryggvi