Austurglugginn


Austurglugginn - 06.03.2003, Page 6

Austurglugginn - 06.03.2003, Page 6
6 - AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 6. mars Aðalheiður Birgisdóttir, SMS: „Kominn tími til ad tengja" Þegar fjarvinnslufyrirtækið íslensk miðlun ehf tilkynnti landsmönnum um útrás fyrirtækisins út á land í byrjun árs 1999 má segja að ákveðin tegund gullæðis hafi gert vart við sig í þeim bæjum þar sem fyrirtækið hafði í huga að setja upp starfsstöðvar. Stöðvarfjörður var einn þessara Ijónheppnu bæja sem fengi brátt fleiri tug starfa og gnægð verkefna, en síðsumars 1999 opnaði íslensk miðlun starfstöð sína þar. Þingmenn og ráðherrar töluðu fjálglega um hina nýju tækni og töldu líklegt að ríkið myndi nýta sér þessa þjónustu. Og menn skáluðu. En hvað klikkaði þá? Hvers vegna enduðu starfsstöðvar eins og á Stöðvarfirði í eins miklum vandræðum og raun bar vitni? Austurgluggirm leitaði svara hjá Aðalheiði Birgisdóttur. Aðalheiður Birgisdóttir fram- kvæmdastjóri SMS á Stöðvarfirði keypti nýlega, ásamt íjórum öðr- um Stöðfirðingum, hlut Stöðvar- hrepps í SMS. Aðalheiður hefur verið framkvæmdastjóri SMS frá upphafi en hafði umsjón með Islenskri miðlun frá opnun hennar í ágúst 1999, þegar hún flutti til Stöðvarijarðar. Aðalheiður hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu en áður en hún flutti austur var hún framkvæmdastjóri skiptinem- asamtakanna AUS. Þar á undan vann hún eitt ár í bandaríska þinginu og yfir 10 ár hjá Alþingi. Gjaldþrot og endurskipu- lagning íslenskrar miðl- unar - SMS verður til Eftir að stuttum líftíma Islenskrar miðlunar (Im) lauk, einu og hálfu ári efltir opnun á Stöðvarfirði, stofnuðu Stöðvarhreppur, Búða- hreppur og Byggðastofnun fyrir- tækið SMS ehf. Framkvæmda- stjóri var ráðinn Aðalheiður Birg- isdóttir, en hún hafði áður haft um- sjón með starfi Islenskrar miðlunar á staðnum, eins og áður segir. Aðalheiður segir að fljótlega eftir opnun Im, hafi henni fundist reksturinn vera í hálfgerðu skötu- líki. „Reksturinn var oft skelfilega erfiður - og í raun á hálfgerðum brauðfótum meira og minna ffá upphafi - og kannski fyrirsjáanlegt hvemig færi, þó ég héldi alltaf í vonina. Mér þykir reyndar mjög dapurlegt, hvemig fór og tók það afar nærri mér á sínum tíma, enda var upphaflega hugmyndin af- spymu góð. Það hvarflaði vissu- lega að mér að hreinlega gefast upp og fara héðan.“ En það gerði Aðalheiður alls ekki og eftir stofnun SMS í apríl „SMS vinnur núna að skráningu gamalla handrita í gagnagrunn i sam- vinnu við Heimildastofnun. Meðal þess sem við erum að skrá eru alþingis- hækur, svo það fór aldrei svo að við ynnum ekki við innslátt fyrir Alþingi, þó ekki vœri það á vegum Halldórs Blöndal. “ Aðalheiður Birgisdóttir keypti nýlega, ásamt fjórum öðrum, hlut Stöðvarhrepps íSMS fyrir eittþúsund krónur. 2001 hélt hún ótrauð áfram að svipast um eftir auknum verk- efnum til fyrirtækisins. „Eg segi stundum ég hafi talað við alla nema Guð almáttugan, og já, það er rétt, ég ræddi meðal annars við Halldór Blöndal forseta Alþingis á sínum tíma. Ég benti honum á að austur á Stöðvarfirði gætum við sem best tekið að okkur að skrá til dæmis eldri þingræður, sem ekki vom aðgengilegar rafrænt, sem og að svara í síma fyrir stofnunina. Halldórs þáttur Blöndal Og Halldór Blöndal greip hug- myndina á lofti og ákvað að eldri þingtíðindi yrði að komast á raf- rænt form - á Ólafsfirði! Þetta heyrði Aðalheiður óvænt í fréttum og varð óneitanlega hvumsa. Sam- skipti Aðalheiðar og Halldórs urðu síðan efni mikillar umfjöllunar íjölmiðla um málið. „Mér þótti það koma ansi spánskt fyrir sjónir að Halldór skyldi ekkert samband hafa við okkur, en flytja þess í stað störf við þingtíðindin til Ólafsfjarðar. Mér þóttu þetta léleg vinnubrögð hjá forsetanum sem síðan sagði blákalt að ‘skráning þingtíðinda væri ekki ný hugmynd’. Ég hélt því aldrei fram ég hefði fúndið upp skráningar - ekki frekar en ég fann upp hjólið - en hugmyndin að skráningum eldri árganga úti á landi var mín. Þetta var leiðinda- mál, sem Halldór Blöndal reyndi að snúa sig út úr með hártogunum. Hann gerði sér þó ferð austur hingað við annan mann hið snar- asta til að halda fúnd um ‘mis- skilninginn’. Á þeim fúndi til- kynnti hann okkur að ákveðið hefði verið í forsætisnefnd Alþing- is að skráningar þingtíðinda færu til Ólafsfjarðar en hluti símsvör- unar fyrir Alþingi flyttist á Stöðv- arfjörð. Og eftir því starfi bíðum við enn. En þetta kannski sannaði enn og aftur það sem mig hafði í raun grunað alveg frá upphafi vinnu minnar hér eystra að þau fögru fyrirheit sem ýmsir stjóm- málamenn höfðu viðhaft hér á Stöðvarfirði fyrir síðustu kosn- ingar reyndust ekki annað en orðin tóm. Þá riðu menn um hémð og tilkynntu að ekkert yrði til sparað að koma hingað störfúm tengdri fjarvinnslu. Þar hefúr hins vegar lítið gerst, eins og dæmin sanna,“ sagði Aðalheiður. Fjölbreytni í atvinnu styrkir byggð Þau tvö ár sem SMS hefúr verið starfrækt hefúr rekstur að hennar sögn gengið upp og niður. „Við höfum nýtt tímann undan- farið til samninga og greiðslu skulda félagsins, en sjáum nú von- andi fram á bjartari tíð eftir þær breytingar á eignarhlut sem orðið hafa,“ segir Aðalheiður og vitnar til kaupa fimm Stöðfirðinga á 64% hlut Stöðvarhrepps í SMS. Aðalheiður var ein þessara ijár- festa sem keyptu hlut hreppsins á eitt þúsund krónur. En hvað skyldi valda því að fimm einstaklingar á Stöðvarfirði ijárfesta í fyrirtæki sem vægast sagt hefur gengið illa að reka miðað við núverandi for- sendur - er hugmyndin um ijar- vinnslu úti á landi ekki bara

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.