Ylfingablaðið - 01.05.1937, Qupperneq 5

Ylfingablaðið - 01.05.1937, Qupperneq 5
YLFIN G ABL AÐIÐ o eftir ylfingalögunum. Ylfingar lilíðið gamla úlfinum. Ylfingur gefst aklrei upp. Munið að við meg- um aldrei gefast upp, heldur ná því takmarki sem við höfum sett okkur. Eitt er ]>að, sem ]>ið verðið lika að muna, og breita eftir, og það er Ylfingaheitið, sem er tákn þess, sem við erum allir að vinna að, en það er svona: í^g lofa að reyna eftir megni að lialda Ylfingalögin og að gera á hverjum degi eitthvað öðrum til gleði og hjálpar. Y?kkar einl. Axel L. Sveins. Fréttir. Rciuðir í 1. sveit. Starfið hefur verið sæmilegt í vetur og haldnir 10 - 15 fundir, á þeim hefur ýmislegt verið rætt, og hefur meðal annars ver- ið stofnaður hópssjóður, gjaldkeri var kosinn Geir Hallgrímsson, og á sjóðurinn nú fimm krónur, sem hann hefur unnið í blaðasamkeppni. Var þá selt Skátablaðið, fyrsta tölublað þriðja árgangs, seldi hópurinn 39 eintök. Annars eru fundirnir allir eins, undirbúningur undir fyrstu stjórn. Sex menn eru í hópnum, og hafa venju- lega fjórir til fimm mætt á hópsfundum. Frétt frá hópsforingja Geir Hallgrímssyni. Kaflar úr ylfingabókinni. Eftirleiðis mun koma öðru hvoru kafli undir þessu nafni í blaðinu og vonast ég til, að hann mælist vel fgrir. Ritstj. Búálfarnir. Úli i skógi var gömul ugla. Hún hafði stór, kringlótt, gul augu, og tvo fjaðratoppa ofan á höfðinu eins og eyru. Litlir krakkakjáuar voru hræddir við hana, ])ví að hún sást aðeins um nætur; og ó! - þá vældi húu svo ógeðslega, sögðu þeir. En allir duglegir drengir vissu, að uglan var meinlaust, gamalt Iiró, sem vissi þó léngra en nef hennar náði. Skraddari hjó í þorpinu þar rétt hjá. Hann átti tvo sonu, Gvend og Jón. Mamma þeirra var dáin, og nú var amma þeirra lijá þeim. Henni þótti ósköp vænt um þá, en sá samt, að þeir voru mestu gallagripir. Þeir voru latir, gleynmir og sóðalegir. Þegar þeir voru að leika sér, voru þeir ósköp liáværir, veltu stólunum um og brutu þá, og rifu fötin sín. „Þeir eru al- veg óviðráðanlegir", sagði amma þeirra. „Þeir skeyta því ekkert, þó þeir séu öðrum til ama, aðeins ef þeim finnst sjálfum skemmtilegt". „En það var þá skemmtilegra áður, meðan álfarnir voru liér“, sagði amma. Drengirnir vildu fá að heyra, hvernig álf- arnir voru. „Já, þeir voru ósköp litlir vexti. Þeir komu iim í húsið, áður en nokkur var kominn á fætur á morgnana. Þá voru þeir búnir að bera út öskuna og kveikja upp eld- inn. Þeir höfðu sótt vatn og hitað morgun- kaffið. Þeir höfðu tekið til í stofunni, hreinsað illlgresi úr garðinum og gert margt annað til þarfa. En aldrei sáust þeir. Alltaf voru þeir farnir, áður en fólkið kom á fætur. En þeir voru heimilinu til blessunar. Allt fólkið var glatt og ánægt, og húsið var svo ljómandi hjart og hreint og vinalegt“. Gvendur og Jón vildu endilega vita, livar liægt væri að ná í þessa g'óðu álfa. ,,.íæja“, sagði amma. „Þá er hezt fyrir ykkur að spjæja ugluna. Hún er allra líklegust til að vita eitthvað um þessa hluti“. Gvendur og Jón klóruðu sér vandræðalega í liöfðinu við þetta svar; en svo kom þeim saman um, að Gvendur, sem var eldri, skyldi taka að sér að leita ugluna uppi. Þegar dimmt var orðið, fór Gvendur út og vældi eins og uglan. Er liún svaraði, kom Gvendur og har upp erindi sitt. „Við Jón er- um píndir með allskonar leiðinlegum störfum, sem við verðum að vinna fyrir önnnu og pahha, og fáum aldrei að leika okkur í friði“, sagði Gvendur. „Og nú datt okkur í hug, hvort ekki væri hægt að fá álfa í húsið, til þess að 46 „Úhú, hú-hú-hú. Hú-hú-hú-hú-ú-ú-ú“, vældi uglan. „Hvað segirðu?“ mælti Gvendur. „Ég er að spyrja, hvort þú sjáir ekki ána“,

x

Ylfingablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ylfingablaðið
https://timarit.is/publication/1697

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.