Æska og menntun - 01.06.1948, Blaðsíða 6

Æska og menntun - 01.06.1948, Blaðsíða 6
Andleg menning Eftir Ellen G. White Það ern (íuðs lög, sein gilda bœði fyrir líkama og sál, að þrek og þróttur fæst með æfingu. í orði sínu hefur Guð kennt okkur, hvernig við eigum að þroska huga okkar og sál. Biblían hefur inni að lialda allar þær meginregl- ur, sem við þurfum að þekkja til að vera hæfir til að lifa þessu lífi og vera undirbúnir undir hið kom- anda. En þessi undirstöðuatriði verða allir að skilja. Enginn, sem er hæfur til að meta og skilja kenning- ar þeirra, les nokkra einstaka grein eða setningu i Biblíunni án þess að uppgötva við það einhvern vísdóm. Kn menn læra ekki að skilja dásamlegustu kenningar og boðskap Biblíunnar með því að lesa samhengislaust. Hin dýpstu sannindi hennar eru ekki svo auðsæ, að hirðulaus og fljótfær lesari komi auga á þau. Margir fjársjóðir hennar eru fólgnir langt undir yfirborðinu, og menn finna þá ekki nema með kostgæfni og stöðugri athugun. Sannindin, sem Biblían varðveitir, verða menn að öðlast með því að lesa alla Biblíuna vandlega. Þeg- ar sannindin hafa þannig verið fundin, sést, að þau eru í fullu samræmi sín á milli. Guðspjöllin fylla hvert annað upp, einn spádómurinn skýrir annan, ein sannindi skýra önnur. Guðspjöllin gera einkenni stjórnarliátta Gyðinga auðskilin. Hver boð- skapur og staðreynd í Guðs orði er á sinum vissa stað. Og' öll Biblían vitnar um höfund sinn í einu og öllu. Slíkt meistaraverk gæti enginn annar en hinn eilífi Guð hafa hugsað upp og skapað. Til þess að atliuga gaumgæfilega og skilja hina ýmsu hluta Biblíunnar og koma auga á skyldleika þeirra þarf að einbeita öllum hæfileikum og skarp- skyggni mannlegs hugar. Enginn getur ráðizt í slíkt, án þess að andlegir hæfileikar hans þroskist. En hið andlega gildi þess að rannsaka Biblíuna er ekki eingöngu fólgið í því að finna sannindi hennar og sameina þau. Það er engu siður fólgið i þeim tilraunum, sem gera þarf til að rcyna að skilja þessi sannindi. Ef hugurinn fæst aðeins við eitthvað, sem er auðskilið eða hversdagslegt, hefur hann ekki skilyrði til að þroskast og verður ófrumlegur og hversdagslegur. Ef hann þarf aldrei að öðlast skiln- ing á mikilvægum og víðtækum eða torgætum sann- indum, glatar liann smátt og smátt öllum þroska- möguleikum og vaxtarmætti. En ekkert er eins örugg vörn gegn þessari hnignun og jafnmikil hvatning til þroska og það að rannsaka og sökkva sér niður í Guðs orð. Biblían cr áhrifameiri til andlegs þroska en nokkur önnur bók eða allar aðrar bækur til samans. Mikilleiki kenninga hennar, hin háleita einfeldni í framsetningu og hið fagra, líkingaauðuga mál æfir hugsunina og lyftir henni á flug fremur en nokkuð annað getur gert. Ekkert veitir jafn- mikinn andlegan kraft og þao að reyna að brjóta til mergjar hin ómælanlegu sannindi opinberunarinn- ar. Sá hugur, sem kemst i náið samband við hugs- anir hins eilífa Guðs, hlýtur að þroskast að skiln- ingi og styrkjast. En Biblían hefur jafnvel enn meiri mátt tit að göfga eðli andans. Maðurinn, seni skapaður er til að lifa i samfélagi við Guð, getur aðeins í slíku samfélagi þroskazt og fundið hinn raunverulega tilgang lífsins. Sá, er finnur Guð í æðstu gleði sinni, finnur ekkert annað, sem getur fullnægt þrám hjartans, satt hung- ur og þorsta sálarinnar. Sá, er með einlægum og námfúsum huga les og rannsakar Ritninguna og leitast við að finna og skilja sannindi liennar, mun komast í náið samband við höfund hennar. Og ef hann er nægilega viljasterkur, eru engin takmörk fyrir því, live miklum þroska hann getur náð. f öllu hinu óþrotlega og fjölbreytta efni Biblíunn- ar er eitthvað, sem vekur áhuga og skírskotar til lijarta hvers einasta manns. Á blöð liennar er rit- uð hin elzta saga, hin lífsspakasta ævisaga, grund- vallarreglur til að stjórna ríki eða heimili, grund- vallaratriði og kenningar, sem standa framar öllu því, sem mannleg vizka nokkru sinni liefur upp- hugsað. Biblían innilieldur liina dýpstu heimspeki, hinn unaðslegasta og göfugasta skáldskap, en um leið ástríðuþrunginn og viðkvæman. Og jafnvel þótt einungis sé litið á hana frá þessu sjónarmiði, stendur hún óendanlega miklu framar verkum nokkurs mannlegs höfundar. En ef litið er á hana með tilliti til grundvallarboðskapar hennar og kenninga, hefur luin óendanlega miklu háleitara sjónarmið og' gildi, og ef hún er skoðuð í ljósi þessarar meginhugsunar, liefur hvert atriði í henni nýja og sérstaka þýðingu. í hinum einföldustu sannindum eru fólgin grundvallarlögmál svo háleit, að þau ná út yfir sjálfa eilífðina. Friimboðskapur Bibliunnar, sem allt annað snýst um, er friðþægingin, umbreyting mannssálarinnar í líkingu við Guð. Allt frá því, er hin fyrsta von var gefin í Eden, til hins síðasta dásamlega loforðs opinberunar- innar, „Og þeir munu sjá ásjónu hans, og nafn lians nmn vera á ennum þeirra" (Opinb. 22, 4), er sér- 6

x

Æska og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æska og menntun
https://timarit.is/publication/1699

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.