Viljinn - 01.01.1943, Page 2
EE LIFA \nLTU GLAÐUR
Ef lifa viltu glaður, bé léttu annars þraut
og láttu aldrei brosið iDverra á vanga;
því brosið getur, vinur, - sem einn eða annar hlaut
sent yl og birtu á leið hans. máske stranga.
•Ef- erfið finnst -þér leiðin- og át-al blæða sár,
og áttu máske fátækt við að búa,
eg veit, ef þú ert einn, falla af augvim þín’jm tár
Hve inndælt þá á Drottin mega trúa.
Því Drottinn er þinn hirðir og Drottinn æ þig sér,
og Drottinn veit um þarfir barna sinna.
Drottinn mest þig elskar, já, vor.glaður því ver
og vit: hjá Drottni er öruggt skjól að finna.
Himneskt er að lifa ef höndin manns er hraust
og hugur beinist upp til sólarlanda,
hvort vor er eða sumar, vetur eða haust,
þá veitir gleði starf vorra eigin handa.
Því standa reynum stöðug og styðjum hvern sem þarf
og störum beint til himins bjartra sala,
þá'hljóta munum gleði himinsins í arf
og heima þar við Jesúm munum tala.
i.
Björk