Austurglugginn - 29.08.2014, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 29. ágúst AUSTUR · GLUGGINN
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra, opnaði á mánudag
starfsstöð þýðingarmiðstöðvar
ráðuneytisins á Seyðisfirði. Fram-
kvæmdastjóri miðstöðvarinnar segir
reynslu þýðenda á Seyðisfirði hafa
skipt sköpum þegar þriðju starfs-
stöðinni á landsbyggðinni var val-
inn staður.
„Við erum með starfsstöðvar á Vest-
fjörðum og Norðurlandi og hugsunin
var að bæta við einni fyrir austan.
Seyðisfjörður varð fyrir valinu því
við höfum verið með mikla sam-
vinnu við þýðendur hér í gegnum
verktakavinnu sem þýddi að hér var
auðvelt að finna hæfa þýðendur með
reynslu til að vinna fyrir okkur,“ segir
Katrín Einarsdóttir, framkvæmda-
stjóri miðstöðvarinnar.
Fyrirtækið Sagnabrunnur annaðist
þýðingar í tengslum við aðildar-
viðræður við Evrópusambandið í
verktöku. Þegar mest lét störfuðu
11 þýðendur við þær á vegum fyrir-
tækisins. Þeim þýðingum var hætt
um leið og viðræðurnar voru settar
á ís en þrír af þeim sem áður unnu
við þýðingarnar hjá Sagnabrunni
eru nú orðnir starfsmenn utanríkis-
ráðuneytisins og starfa á Seyðisfirði.
„Þessi starfsstöð er komin til að vera.
Fólkið hér vinnur í samvinnu við
aðalskrifstofuna í ráðuneytinu og
þýðendur þar, á Ísafirði og Akureyri
í gegnum miðlægt tölvuforrit. Það
vinna allir að sömu verkefnum en
það eru mismunandi hópar þvert á
starfsstöðvarnar,“ segir Katrín.
Vonast til að sjá starfsstöðina
vaxa
Gunnar Bragi sagði starfsstöðina á
Seyðisfirði vera tilraun ráðuneytisins
til að efla atvinnu á landsbyggðinni.
„Utanríkisráðuneytið flytur engar
stofnanir út á land eins og sumir aðrir
en við getum verið með útibú til að
styrkja starfsemina á landsbyggð-
inni. Við sjáum fram á aukningu í
þýðingum og því var tilvalið að bæta
við starfsstöð. Hér á Seyðisfirði hafa
þýðendur starfað fyrir okkur í nokk-
urn tíma með mjög góðum árangri
og það var ekki erfið ákvörðun að
láta þetta gerast. Það er ráðuneytinu
mikið ánægjuefni að vera hér og ég
vona að við getum séð starfsemina
hér vaxa eins og annars staðar.“
Arnbjörg Sveinsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Seyðisfjarðar og varafor-
maður Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi sagði Austfirðinga fagna
stöðinni. „SSA hefur lengi sent frá
sér ályktanir um flutning opinberra
starfa út á land og þetta er þannig
séð áfangi á þeirri leið. Væntanlega
ályktum við áfram um það en við
þökkum fyrir þetta framtak. Það er
góður grunnur og við vonumst til að
fleiri feti sömu slóð.“
Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins
var stofnuð árið 1990 vegna viðræðna
um EES samninginn en meginhlut-
verk hennar er að þýða gerðir sem
heyra undir EES. Þá hafa starfsmenn
hennar einnig sérhæft sig í að þýða
alþjóðlega samninga, lagatexta og
aðra texta þar sem krafist er staðlaðs
hugtakaforða auk annarra tilfallandi
verkefna. Í heild starfa 37 starfsmenn
við þýðingar í utanríkisráðuneytinu,
þar af sex á Akureyri, tveir á Ísafirði
og núna þrír á Seyðisfirði.
GG
Utanríkisráðuneytið opnar starfsstöð á Seyðisfirði
Auðvelt að finna hæfa þýðendur
Nýtt skólaár fer vel af stað á Aust-
urlandi og er greinilegt að það er
mikill metnaður í skólameisturum
og starfsmönnum skólanna að bjóða
upp á nám sem er í takt við tímann og
fylgir tíðarandanum. Austurglugg-
inn heyrði í skólameisturunum í
Menntaskólanum á Egilsstöðum,
Verkmenntaskóla Austurlands og
Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað
til að forvitnast aðeins um hvernig
þetta nýja skólaár fer af stað.
Hússtjórnarskólinn
„Skólaárið hjá okkur rennur ljúflega
af stað og ekki er verra að fá svona
veður eins og við höfum fengið á fyrstu
metrunum“, segir Bryndís Fiona Ford
sem er nýráðin skólameistari Hús-
stjórnarskólans. „Það er 100% mæting
af þeim sem sóttu um en í ár eru 19
stelpur og 1 strákur á fyrstu önninni,
og kennararnir eru allir á sínum stað“
bætir hún við. Skólinn hefur verið
vel sóttur síðustu ár og virðist námið
alltaf jafn vinsælt. „Svona nám verður
aldrei úrelt og fer aldrei úr tísku. Hér
lærir þú hluti sem þú einfaldlega lærir
hvergi annarsstaðar. Þetta er sígilt og
skemmtilegt nám“, segir Bryndís.
Verkmenntaskóli Austurlands
„Hjá okkur er nemendafjöldi svipaður
og undanfarin ár en skólaárið fer vel af
stað“, segir Elvar Jónsson skólameist-
ari í Verkmenntaskólanum. „Aðsókn
í skólann í haust er með besta móti og
eru sumar brautir alveg fullar. Aðsókn
í rafiðnadeildina var yfirburða góð, en
hinsvegar þurftum við að fella niður
hársnyrtibrautina vegna dræmrar
aðsóknar“.
Verkmenntaskólinn mun bjóða upp á
nýja og spennandi hluti í vetur. „Já það
eru mjög spennandi hlutir að gerast
hjá okkur í VA, en þann 8. nóvember
verður nýtt „FabLab“ vígt hér í skól-
anum, en „FabLab“ er hátæknismíða-
stofa sem verður opnuð í samvinnu við
Austurbrú og Nýsköpunarmiðstöð
Íslands. Í framhaldi munum við svo
bjóða upp á nýsköpunar- og hönn-
unarbraut í skólanum, svo við komum
sterk inn í nýtt skólaár“, segir Elvar.
Menntaskólinn Egilsstöðum
„Við förum af stað af fullum krafti
inn í þennan vetur“, segir Helgi Ómar
Bragason skólameistari í Mennta-
skólanum á Egilsstöðum. Við vorum
að taka inn formlega nýjar brautir og
taka í gildi nýja námskrá, nýjar áfanga-
lýsingar og nýjar brautalýsingar. Eins
er spannakerfið orðinn fastur liður í
skólanum og eitt af því sem við höfum
upp á að bjóða, en spannakerfið hefur
verið til tilraunar í ME síðan 2011 og
hefur reynst mjög vel“.
Spannakerfið virkar þannig að í stað-
inn fyrir að skipta vetri í tvær annir
er honum skipt í 4 Spannir þar sem
tekin eru færri fög í einu með hraðari
yfirferð á skemmri tíma.
„Við erum einn af fyrstu skólunum á
Íslandi sem tökum þetta upp og erum
við mjög stolt af því“, segir Helgi.
„Við erum í feiknastuði fyrir komandi
vetur, aðsóknin er mjög góð og erum
við með 310 nemendur í dagskóla og
um 150 nemendur í fjarnámi svo það
verður nóg að gera“. SL
Framhaldsskólarnir á Austurlandi
„Erum í feiknastuði fyrir komandi vetur“
Spannakerfið hefur gefist vel í ME.
Gunnar Bragi Sveinsson opnar starfsstöðina. Mynd: GG