Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 1
ISSN1670-3561
Fréttablað Austfirðinga
Verð í lausasölu kr. 350
Fimmtudagur 10. apríl
14. tbl. - 7. árg. - 2008
ÞÚ ERT
Á GÓÐUM
STAÐ
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Mjóifjörður
Neskaupstaður
FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is
Snjócross í Stafdal
Alþjóðlegt Snjócross snjósleðamót fer fram í Stafdal í Fjarðarheiði á laugardag. Mótið er
alþjóðlegt, en það er lokamót ársins í keppni ökuþóra um Íslandsmeistaratitilinn. Sigurvegari
mótsins fær jafnframt þátttökumiða á X-games leikunum í Bandaríkjunum, en hingað sækir
nokkur fjöldi sterkra erlendra keppenda sem freista þess að vinna miðann á X-games.
Bræðurnir Stessi og Brói frá Egilsstöðum bítast hart um Íslandsmeistaratitilinn í meist-
araflokki, en alls eru það sex austfirskir ökuþórar sem taka þátt í Íslandsmótinu. Fimm
þeirra eiga möguleika á Íslandsmeistartitli í sínum flokki. Mótið hefst kl. 14:00.
Fjarðabyggð hefur fengið góðan liðsauka því á sunnudag samdi
Aleksandar Konjanovski við Fjarðabyggð um að spila með liðinu
í sumar. Aleksandar er 32 ára reynslumikill miðjumaður og spilar
í efstu deild í Makedóníu með félaginu FK Kumanovo. Hann
hefur spilað 31 leik þetta tímabil og skorað 5 mörk. Aleksandar
kom til móts við æfingahóp Fjarðabyggðar í Tyrklandi á föstudag
og hefur æft og spilað einn leik með liðinu gegn Tekstilshik.
KFF: Enn einn leikmaðurin
Austurglugginn hitti
ungan fjölskyldufaðir á
Egilsstöðum á föstudag.
Hann gat ekki mætt til
vinnu á föstudag, vegna
þess að það var ófært um
Fjarðarheiði. Þó átti hann
ekki að mæta til vinnu
á Seyðisfirði, heldur er
dóttir þeirra hjóna á leik-
skóla á Seyðisfirði.
Daglega keyra þau dóttir
sinni á Seyðisfjörð, en þau
hafa ekki í önnur hús að
venda. Hjá sveitarfélaginu
hafa þau fengið þau svör
að þau megi eiga von
á leikskólaplássi í sept-
ember á þessu ári. Í við-
tali við Austurgluggann
í dag segir Vilhjálmur
Vernharðsson lesendum
frá þeirri aðstöðu sem
fjölskylda hans er í.
Hann hefur meðal ann-
ars áhyggjur af því að
ungt fólk flytji úr sveitar-
félaginu vegna þessa.
Viðtal á bls. 4
Íbúi á
Egilsstöðum
í leikskóla á
Seyðisfirði
Codie afhentur
lögreglunni. Bls 10.