Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 11
Fimmtudagur 10. apríl AUSTUR · GLUGGINN 11
Djúpstætt ósamkomulag innan
Austurlandsfjórðungs um gerð heils-
ársvegar yfir Öxi vekur spurningar
um hvort oddvitar fortíðarinnar
muni síðar iðrast þess að hafa barist
gegn öllum samgöngubótum í formi
jarðganga sem fráfarandi ríkisstjórn
tók ákvörðun um á síðasta ári fyrir
vestan, austan og undir Vaðlaheiði.
Fram hafa komið efasemdir hjá
Vegagerðinni á Austurlandi og í
Reykjavík um að uppbyggður vegur
um Öxi verði öruggur í 530 m hæð
fyrir miklum blindbyl, snjóþyngslum
og veðurhæð sem farið getur í 30 til
40 metra á sekúndu. Hindrunarlaus
verður þessi vegur aldrei allan ársins
hring þegar veðrabreytingar hrella
vegfarendur. Fljótlega munu þeir
kalla þennan eltingarleik við, veð-
urfarið, slysahættuna í brekkunum
upp úr Berufirði og snjóþyngslin
í þeirri hæð sem Öxi stendur yfir
sjávarmáli leik kattarinns að mús-
inni. Með uppbyggðum Axarvegi
verður 80% erfiðara að losna við
öll snjóþyngslin í stað þess að grafa
tvenn veggöng inn í Breiðdal sem
tryggja heilsárstengingu Djúpavogs
við Egilsstaði og Fljótsdalshérað enn
betur. Slysagildra í stað jarðganga
verður þessi vegur líka kallaður af
þeim vegfarendum sem sett hafa
traust sitt á þessa framkvæmd.
Tímaskekkja að
byggja veg í 5-600
metra hæð
Á sama tíma og framfarir aukast
í jarðgangagerð viðurkenna sveit-
arstjórnirnar á landsbyggðinni að
það sé tímaskekkja að beina allri
vetrarumferð upp í 500 til 600 m
hæð. Þeir sem keyra stystu leið milli
Djúpavogs og Egilsstaða vara við
slysahættunni í brekkunum upp úr
Berufirði vegna mikillar hálku og
ennfremur að veðurskilyrði á Öxi séu
mjög erfið og ekki alveg hættulaus.
Það skýtur skökku við að fulltrúar
fortíðarinnar skuli leggja áherslu á
uppbyggða vegi á stórhættulegum
og snjóþungum svæðum á meðan
sveitarstjórnirnar berjast fyrir því
að þessir vegir fari niður fyrir 200
m hæð. Þingmaður Siglfirðinga sem
settist í stól samgönguráðherra á
síðasta ári fullyrti í Morgunblaðinu
1 febr. sl. að tími fjallveganna væri
liðinn. Sjaldan fæ ég skammir fyrir
þessar fullyrðingar frá stuðnings-
mönnum Héðinsfjarðarganga á
Austurlandi sem telja það hafið
yfir allan vafa að Austfirðingar þurfi
engin jarðgöng. Síðar myndu þeir
flýta sér til Reykjavíkur og biðja
samgönguráðherra um 10 km löng
veggöng úr Berufjarðardal undir
þennan snjóþunga þröskuld eða
tvenn stutt göng inn í Breiðdal sem
grafin yrðu úr Skriðdal og Berufirði
þegar snjómokstrar á Axarvegi verða
óframkvæmanlegir vegna blindbyls
og veðurhæðar.
Loforð um
veðurútlit
fæst ekki
Á meðan efasemdir um þessa fram-
kvæmd þagna ekki stendur talsverður
styr innan Austurlandsfjórðungs
og Vegagerðarinnar um hvort
Axarvegur í stað jarðganga undir
Breiðdalsheiði og úr innanverðum
Berufirði sé heppilegasta leiðin til að
tryggja sameiningu Djúpavogs við
Fljótsdalshérað. Líkurnar fyrir því
að Djúpivogur, og Fljótsdalshérað
verði eitt atvinnu- og þjónustu-
svæði með tilkomu Axarvegar
eru einn á móti miljón. Spurning
sem er hvort Djúpavogsbúar og
Berufirðingar vilji keyra í gegnum
Fáskrúðsfjarðargöngin og um
Fagradal ef Vegagerðin gefst upp á
snjómokstrum yfir Öxi vegna veð-
urhæðar sem farið getur upp í 35 til
40 metra á sekúndu. Til eru dæmi
um að Breiðdalsheiði hafi verið fær á
sama tíma og Öxi hefur lokast. Rök
þeirra sem vilja Axarveg tek ég góð
og gild, en loforð frá mér um að veð-
urútlit á þessum þröskuldi sé 100%
öruggt næstu áratugina fá þeir ekki.
Fljótlegra er að reikna svona dæmi
vitlaust þegar menn festast viljandi
í svikamyllu fortíðarinnar í stað þess
að leggja meiri áherslu á göng sem
tryggja öryggi byggðanna enn betur
en þessar slysagildrur í 500 til 600
m hæð. Hér eftir geta þær aldrei
í þessari hæð yfir sjó um ókomna
framtíð staðist alþjóðlegar kröfur
sem ganga jafnt yfir Ísland eins og
nágrannalöndin. Hverju svara þá
blessaðir erindrekar fortíðarinnar
ef Skipulagsstofnun ríkissins fellst
ekki á Axarveginn?
Guðmundur Karl Jónsson
farandverkamaður
BRÉF TIL BLAÐSINS
Í svikamyllu
fortíðarinnar
Guðmundur Karl Jónsson áhugamaður um
samgöngur skrifar frá Reykjavík
Þýski ferðalangurinn Mark Schorn á reið-
hjóli á Reyðarfirði í byrjun apríl.
Ferðalangur-
inn sumar-
daginn fyrsta
Markaðsskrifstofa
Austurlands vinnur
nú að undirbúningi
fyrir ferðalanginn
2008. Ferðalangurinn
er haldinn á lands-
vísu á Sumardaginn
fyrsta ár hvert, í
ár þann 24. apríl.
Höfuðborgarstofa
hefur séð um
skipulagningu
Ferðalangsins í sam-
starfi við sveitarfélög,
ferðamálafulltrúa og
aðila í ferðaþjónust-
unni.
Ferðlangur á heima-
slóð er skipulagður
með það í huga að fá
fólk á svæðinu til að
ferðast um svæðið í
einn dag og kynna
sér hina ýmsu hluti
og afþreyingu sem er
í boði. Markaðsstofa
Austurlands hvetur
sem flesta í ferðaþjón-
ustunni til að opna
dyr sínar þennan dag
og kynna sína þjón-
ustu, en átakið verður
auglýst á landsvísu í
hinum ýmsu miðlum.