Austurglugginn - 18.02.2021, Qupperneq 3
Laust er til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra hjá Hitaveitu Egilsstaða
og Fella ehf. (HEF). Leitað er að öflugum einstaklingi til að halda utan
um fjölbreytt verkefni HEF á sviði hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og
gagnaveitu á starfssvæði veitunnar í Múlaþingi. Verkefnastjóri mun
vinna náið með framkvæmdastjóra. Um er að ræða 100% starf.
• Stofnun, skipulagning, áætlanagerð og uppgjör verkefna.
• Eftirlit með verklegum framkvæmdum.
• Samskipti og tengsl við hagsmunaaðila.
• Reynsla af verkefnastjórnun.
• Framhaldsmenntun á sviði véla- lagna- eða jarðtækni er æskileg.
• Tölvufærni nauðsynleg og reynsla af teikniforritum (CAD) er kostur.
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Leiðtogahæfni, drifkraftur og frumkvæði.
ATVINNA
VERKEFNASTJÓRI ÓSKAST
Helstu verkefni:
Hæfni og þekking:
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., annast hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og gagnaveitu í sveitarfélaginu
Múlaþingi. HEF er sjálfstætt fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins.
Umsókn og ferilskrá sendist á
mannaudur@lifheimur.is, fyrir 22. febrúar 2021.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Jónsdóttir,
mannauðsráðgjafi í síma 860 8852 /
mannaudur@lifheimur.is
HEF | Einhleypingi 1, 700 Egilsstaðir | hef@hef.is | s. 4 700 780