Austurglugginn - 05.03.2009, Page 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 5. mars
Brekkugata 9, 730 Reyðarfjörður
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Steinunn Ásmundsdóttir
frett@austurglugginn.is
Auglýsingastjóri: Erla Sigrún Einarsdóttir
Fréttasími: 477 1750
frett@austurglugginn.is • www.austurglugginn.is
Auglýsingasími: 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is
Íþróttasvið: Gunnar Gunnarsson, s. 848-1981 - zunderman@manutd.is
Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com
Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 854 9482 - kompan@vortex.is
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf.
Umbrot og prentun: Héraðsprent.
Blúshátíðin Norðurljósablús
verður haldin í fjórða sinn á Höfn
í Hornafirði dagana 5. til 7. mars
næstkomandi. Það er Hornfirska
skemmtifélagið sem stendur að
vanda fyrir hátíðinni. Aðgangur er
ókeypis.
Aðaltónleikarnir hvert kvöld hátíð-
arinnar verða á Hótel Höfn. Eftir
þá verður blúsað samtímis á þremur
stöðum í bænum, Hótel Höfn,
Kaffi Horninu og Veitingahúsinu
Víkinni. Þannig geta gestir gengið
milli staða og hlustað á margskonar
blús.
Sveitirnar sem koma fram á hátíðinni
eru B-Sig frá Reykjavík, Guðgeir
Björnsson ásamt hljómsveit frá
Egilsstöðum, Pitchfork Rebellion
frá Húsavík og Vax frá Egilsstöðum.
Tvö hornfirsk bönd leika á hátíð-
inni, Mæðusveitin Sigurbjörn og
Hulda Rós og Rökkurbandið.
Einnig kemur saman á ný gamalt
húsband úr Sindrabæ frá 1968 og
leikur á hátíðinni og kalla þeir sig
Blúsvíkingana. Þá eru ótaldir feðg-
arnir Guðmundur og Örn Elías sem
betur eru þekktir sem Mugison og
Papa Mug en þeir munu skemmta
matargestum á Humarhöfninni.
Að sjálfsögðu verður blúsdjamm á
hátíðinni þar sem allir geta fengið
að taka í hljóðfæri eða syngja og
oft hefur myndast einstök djamm
stemmning á Norðurljósablús.
Samtökin Austfirskar krásir – matur
úr héraði voru stofnuð fimmtudag-
inn 26. febrúar, á fjölmennum stofn-
fundi á Egilsstöðum. Tilgangur
samtakanna er að efla austfirska
matarmenningu og vera sam-
starfsvettvangur þeirra aðila sem
stunda rekstur með hráefni svæð-
isins. Starfssvæði samtakanna
nær frá Þvottárskriðum í suðri að
Sandvíkurheiði í norðri.
Samtökin eru opin öllum sem stunda
eða hyggjast stunda rekstur sem
byggir á austfirsku hráefni, hvort
sem það er við matvælaframleiðslu
eða veitingarekstur. Jafnframt geta
gengið í samtökin einstaklingar,
fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og
félög sem láta sig varða staðbundið
hráefni, rekjanleika vöru, gæði mat-
væla og markaðssetningu austfirsks
hráefnis.
Á stofnfundinum voru eftirtalin
kosin í stjórn og varastjórn: Elísabet
Kristjánsdóttir frá Fjalladýrð, Elísabet
Þorsteinsdóttir frá Klausturkaffi,
Eymundur Magnússon í Vallanesi,
Hrafnhildur Geirsdóttir frá
Hrefnuber, Klas Poulsen frá Hótel
Öldunni, Guðveig Eyglóardóttir á
Valþjófsstað og Þórólfur Sigjónsson
frá Selsburstum.
Atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs
hefur ráðið Þórarinn Egil Sveinsson í
starf atvinnufulltrúa sveitarfélagsins.
Alls bárust 41 umsókn um starfið.
Þórarinn Egill er með masterspróf á
sviði iðnaðar- og matvælaverkfræði.
Undanfarin ár hefur hann rekið
eigið fyrirtæki á sviði ráðgjafar og
verkefnastjórnunar. Þórarinn hefur
unnið ýmis ráðgjafarstörf fyrir
Bændasamtök Íslands, hann var á
árunum 2000 til 2003 forstöðumaður
Matvælaseturs Háskólans á Akureyri
og kennari við skólann. 1979 til 2000
var Þórarinn aðstoðarkaupfélags-
stjóri hjá KEA og þar áður mjólk-
ursamlagsstjóri á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
atvinnufulltrúa eru að vinna að
þróun sérstakra atvinnuverkefna,
meðal annars á sviði ferðamála, stýra
kynningar- og markaðsmálum sveit-
arfélagsins, vinna að framkvæmd
atvinnumálastefnu og vera tengiliður
þess við atvinnulífið og stoðstofn-
anir.
Sjónvarpsfréttir
í áratug
Hinn 1. mars voru tíu ár liðin frá
því að Svæðisútvarp Austurlands
hóf reglulega vinnslu sjónvarps-
frétta. Þá var Jóhann Hauksson
forstöðumaður svæðisútvarpsins
og réðst hann í hið nýja verkefni
ásamt Hjalta Stefánssyni kvik-
myndatökumanni. Frá þessum
tíma hafa um tvö þúsund og fimm
hundruð sjónvarpsfréttir og inn-
skot verið fullunnin hjá RAUST
fyrir Sjónvarp.
Hjalti hóf fyrst að kvikmynda
fréttaefni á Austurlandi árið
1995 í verktöku og áður hafði
Guðmundur Steingrímsson, þáver-
andi tæknimaður svæðisútvarpsins
sent eitthvað af efni í Sjónvarp úr
fjórðungnum. Í dag er sjónvarps-
fréttagerð snar þáttur í starfsemi
svæðisútvarpsins á Austurlandi.
Hjalti er þekktur fyrir naska kvik-
myndatöku og ekki síst er hann
lunkinn við að ná einstökum nátt-
úrulífsmyndum. Hann mun eiga
drjúgan hluta myndefnis í nýrri
íslenskri kvikmynd sem frumsýnd
verður í apríl og byggir á bókinni
Draumalandinu.
Sveitarstjóri hættir
Björn Ingimarsson, sveitastjóri
Langanesbyggðar, er hættur
störfum. Hann hefur í hyggju að
snúa til starfa á nýjum vettvangi og
varð að samkomulagi með honum
og hreppsnefnd Langanesbyggðar
að hann léti af störfum fyrir sveitar-
félagið frá og með 1. mars 2009.
Björn gefur kost á sér í 3. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
NA-kjördæmi og var meirihluti
sveitarstjórnarinnar ekki sáttur við
það. Björn hefur verið sveitarstjóri
frá nóvember 2001. Ekki er búið
að ráða nýjan mann í starfið.
Menningarstyrkir
Menningar-, íþrótta- og ferða-
málanefnd Fjarðabyggðar úthlut-
aði nýverið styrkjum til menn-
ingarmála í sveitarfélaginu. Alls
bárust 36 umsóknir um rúmlega
15 milljónir króna. Eftir yfir-
ferð umsókna og flokkun þeirra
samþykkti nefndin úthlutun á
tveimur og hálfri milljón króna.
Hæstu styrkina fengu Kirkju- og
menningarmiðstöð Fjarðabyggðar
í uppfærslu Jesus Christ Superstar,
Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi,
Tírólakvöld Oddsskarðs og
Daníel Arason. Aðrir aðilar sem
hljóta rekstrarstyrki frá nefnd-
inni árið 2009 eru Sjóminjasafn
Austurlands, Franskir Dagar,
Brján, Minningarsjóður Jóns
Lunda og Listasmiðja Norðfjarðar.
Þessir aðilar fá samtals 2.088.000
kr.
Nýr atvinnufulltrúi
Fljótsdalshéraðs
Blúsað á Höfn í boði Hornfirska
skemmtifélagsins
Andlitsmyndir
af blindum
Björn M. Sigurjónsson port-
rettlistamaður opnar sýningu á
níu andlitsmyndum af félögum í
Ungblind á efri hæð Sláturhússins á
Egilsstöðum 7. mars næstkomandi.
Ungblind er félagsskapur blindra og
sjónskertra ungmenna. Sýningin
fjallar um hóp einstaklinga sem
búa í sameiginlegum aðgreindum
heimi. Verkefnið á að draga athygli
hinna sjáandi að því hve háðir þeir
eru spegilmynd sinni og ímynd.
Einstaklingarnir í sýningunni sjá
ekki spegilmynd sína og eru því
óháðir henni. Sýningin stendur yfir
til 15. mars, opið frá kl. 16-18.
Fimmtungur
framkvæmdafjár
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur
ákveðið að taka tilboði um skulda-
bréf að andvirði þrjú hundruð millj-
ónum króna á 6,6% vöxtum. Er
þetta gert til að mæta fjármögnun
verkefna á vegum sveitarfélagsins
næstu mánuði, en allt í allt mun
þurfa um einn og hálfan milljarð
króna til að ljúka áætluðum verk-
efnum á árinu. Þar á meðal er
viðbygging við Grunnskólann á
Egilsstöðum. Reiknað er með að
þrjú hundruð milljónirnar fleyti
verkefnum fram til vors en sveitar-
félagið mun samhliða leita fleiri
fjármögnunarleiða.
Leiðrétting vegna
reiðhallar
Í 7. tbl. Austurgluggans var frétt um
að Fljótsdalshreppur hefði lagt 5
milljónir króna til byggingar reið-
hallar við Iðavelli og eignaðist þar
með hlut í höllinni. Hið rétta er að
Fljótsdalshreppur hefur samþykkt
að veita 5 milljóna kr. framlagi
til Hestamannafélagsins Freyfaxa
vegna byggingar reiðhallarinnar.
Sveitarfélagið eignast ekki hlut í
höllinni, heldur veitir hestamanna-
félaginu framlag, sem væntanlega
eykur þá hlut Freyfaxa í hlutafélagi
sem Fljótsdalshérað og Freyfaxi hafa
stofnað um bygginguna. Er beðist
velvirðingar á ranghermi þessu.
Samtökin Austfirskar
krásir stofnuð