Austurglugginn


Austurglugginn - 05.03.2009, Page 4

Austurglugginn - 05.03.2009, Page 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 5. mars Líklegt er að byrjað verði að bora Norð- fjarðargöng á næsta ári. Óvíst er hvenær hafist verður handa við Axarveg. Gefi borgarstjórinn í Reykjavík grænt ljós gæti bygg- ing 3.500 fermetra samgöngumið- stöðvar á Reykjavíkurflugvelli hafist á þessu ári. Þróunarfélag Austurlands leiðir markaðsvinnu fyrir flugvellina á Egilsstöðum og Akureyri og innan 18 mánaða verða 1.800 bæir um land allt komnir með háhraðanetssamband. Árið 2008 var mesta framkvæmdaár Íslandssögunnar í samgöngumálum. Kristján L. Möller, ráðherra sam- göngu- og byggðamála, segir að erf- iðleikaárið 2009 verði þrátt fyrir allt næst mesta samgönguframkvæmdaár sögunnar. Í dag séu í gangi fram- kvæmdir fyrir um 15 milljarða króna. Boðin verði út verkefni fyrir um sex milljarða í ár og sum af þeim verkum teygist yfir á næstu ár. Framkvæmdaárið nú hljóði því upp á 21 milljarð króna. Norðfjarðargöng Meðal þeirra útboða sem eru hafin má nefna Vopnafjarðarheiðina. Hún er boðin út í heilu lagi og tilboð verða opnuð 24. mars. Kristján segir nokk- urt vandamál að í því kreppuástandi sem ríkir sjái ekki enn til lands með fjárlög og áætlanir áranna 2010 til 2012. Það hefti getu manna til að sjá hversu mikið af verkum megi setja inn á þessi ár og hangi saman við vinnu ríkisstjórnarinnar að samsetn- ingu fjárlagaramma fyrir tímabilið og aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þar að. Þetta hafi til dæmis áhrif á fyrirhuguð Norðfjarðargöng. Öllum rannsóknum varðandi göngin er nú lokið. Göngin verða á milli 7 og 8 km löng, en hver km kostar að jafnaði um milljarð króna. Kristján segir óhagkvæmt hafa verið að bjóða út gangnagerð undanfarið, en hann sé sannfærður um að kostnaður við hana lækki hratt þegar líður á árið vegna stýrivaxtalækkana, styrkingar krónunnar og verðubólgulækkunar. Þegar einhverjar grunntölur liggi fyrir um fjárlög næstu ára verði hægt að segja til um hvenær göngin geti farið í forval og formlegt útboð á evrópska efnahagssvæðinu. Norðfjarðargöng verði þriggja ára verkefni og frá for- vali að verkbyrjun líði um hálft ár. Kristján vonast til að unnt verði að byrja að bora árið 2010 og segist bjartsýnn á framgang verkefnisins. Norðfjarðargöng séu næstu göng á landsvísu og Oddsskarðsgöng barn síns tíma og sómi sér best sem jarðgangasafn. Umhverfismat stendur yfir vegna Axarvegar. Kristján segir ekki óeðlilegt að deilt sé um Öxi og menn hafi sterkar skoðanir á því hvar vegir eigi að liggja og hvernig. Umhverfismatsferlinu var breytt á þann veg að bætt var við umhverf- ismati á vegaframkvæmdum í Berufirði og í Skriðdal. Öxi fór inn á samgönguáætlun við flýtifram- kvæmdir ríkisstjórnarinnar frá 10. júlí 2007. Kostnaður liggur ekki fyrir því að í umhverfismati og hönnunarferli er ekki niðurnjörvað hvar nákvæm- lega vegurinn á að liggja. Ótaldar eru framkvæmdir í Skriðdal, sem koma til útboðs í ár. Þar eru þrjár nýjar brýr og um 12 km vegarkafli. Framkvæmdir við Hólmaháls milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar og vegagerð í Hamarsfirði halda áfram og verið að ljúka framkvæmdum í Arnórsstaðamúlanum á Jökuldal. Borgarfjarðarvegur eystri er kom- inn með leyfi og fer í framkvæmd þegar vorar. Samgöngumiðstöð Fljótlega eftir bankahrun bað Kristján Möller Flugstoðir um að endur- skoða áætlun um byggingu sex þús- und fermetra flugstöðvar norðan Loftleiðahótelsins og átti hún að kosta um þrjá til fjóra milljarða. Nú liggja fyrir teikningar af 3.500 fer- metra samgöngumiðstöð sem dugar miðað við núverandi farþegafjölda. Hún er að sögn Kristjáns komin í viðráðanlegt verð eða rúman milljarð króna. ,,Ég hef átt fund með borg- arstjóra og lagt fram tvo kosti. Annars vegar norðan við Loftleiðahótelið þar sem ný samgöngumiðstöð átti að vera og hins vegar er hugmynd um að byggja þar sem Flugfélag Íslands er með flugafgreiðsluna núna. Kosturinn við það er að þá yrði byggt á okkar landi. Ég hef beðið borgarstjóra um að hraða þessari vinnu. Þetta hefur tekið allt of langan tíma í borgarkerf- inu og við fáum engin svör. Ef við fáum grænt ljós frá borgarstjórn fljót- lega byrjum við að byggja á þessu ári. Ég lít á þetta sem atvinnuskap- andi framkvæmd fyrir iðnaðarmenn á höfuðborgarsvæðinu og óskaði eftir að flugstöð yrði ekki hönnuð sem innflutt stálgrinda- og einingahús heldur byggð á staðnum með íslensku vinnuafli,“ segir Kristján. Fjarskiptabylting Kristján segist ákaflega hreykinn af samningum um háhraðanetstengingu við Símann fyrir skömmu. Margt hafi tafið en þegar upp er staðið sé það af hinu góða því nú liggi fyrir betri tæknilausnir og búnaður. ,,Þegar við buðum þetta út og opnuðum tilboð 3. september síðastliðinn var um að ræða tæplega 1200 bæi. Kostnaðaráætlun hljóðaði þá upp á 1,8 til 2,4 millj- arða króna. Við fengum 379 milljóna króna tilboð frá Símanum, sem er frábært tilboð. Þar að auki hafa 600 bæir bæst við, vegna þess að aðilar sem ætluðu að þjóna ákveðnum svæðum á markaðslegum forsendum, sem þýddi þá að við máttum ekki fara inn á þau svæði, eru hættir við einhverra hluta vegna. Bæirnir eru því 1800 talsins og verkefnið í það heila upp á um einn milljarð.“ Vinna hefst á næstu vikum og verkið verður unnið á 18 mánuðum eða skemur. Hafist verður handa um framkvæmd- irnar á Norðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum. ,,Menn munu fá háhraðanetstengingu og þjónustu eins og best gerist annars staðar og loks sitja þá allir Íslendingar við sama borð hvað þetta snertir og það gleður jafnaðarmannahjartað.“ Hvað gsm- samband út um land snertir segir Kristján eiga eftir að fínstilla saman ýmsa senda þegar fer að vora og þá náist vonandi að komast fyrir flesta skugga. Flugvellir Samgönguráðuneytið er að koma á fót nefnd sem verður undir for- ræði Þróunarstofu Austurlands og verður hún skipuð fulltrúum ráðu- neytisins, Flugstoða, Samtaka sveitar- félaga á Austurlandi og Eyþings á Norðurlandi. Nefndin á að kanna hvað unnt er að gera til að markaðs- setja betur flugvellina á Egilsstöðum og Akureyri, meðal annars með tilliti til millilanda- og fraktflugs. Vonast er eftir niðurstöðum á haustdögum. Kristján segir þetta jafnvel muni tengjast inn á vinnu að hugsanlegri sameiningu Keflavíkurflugvallar og Flugstoða og þá verði allir flugvellir reknir á einni hendi og tekjur þeirra og gjöld gegnum sama sjóð. KENNIR BRÁTT ÝMISSA GRASA Vorfiðringurinn er farinn að láta á sér kræla. Ég átta mig ekki á hversu stór hluti hans er eðlislæg þrá mín eftir að sjá bless- aða farfuglana raða sér inn tegund eftir tegund og gróður taka við sér. Einhver hluti er tvímælalaust þrá eftir pólitísku vori. Von um að orrahríðinni sloti og trúverðugt fólk gangi fram fyrir skjöldu sem boðberar einlægni, sannleika og gagnsæis í íslenskum stjórnmálum. Við erum öll kúguppgefin á þjóðmálunum. Á nálum og með böggum hildar um afkomuna frá degi til dags. Austfirskri umræðu um til dæmist málefni Heilbrigðissfnunar Austurlands og úlfúð sem hana einkennir var ekki ofan á annað bætandi. Né heldur uppnámi vegna hruns Kaupfélags Héraðsbúa og nú nýjum stíflum í samningagerð um yfirtökur reksturs félagsins eftir félagsfund fyrir síðustu helgi, þar sem samningsaðilar þverskölluðust við að opinbera félagsmönnum yfirtökusamningana. Þar eru lyktir ekki ljósar þegar þetta er ritað. Önugt er þetta og ekki nema von að menn ýfi sig. Vorið er að verða mitt haldreipi í darraðardansi þessara daga. Í gegnum pólitískan orðaflauminn greini ég bergmál af söng lóunnar og vængjaþyt, ímynda mér ilm gróðursins og liti. Fegurð hins smáa og nýkviknaða. Og víst mun kenna ýmissa grasa líka í pólitísku vori og ef til vill verða einhverjir þættir haldreipisins traustir og þess virði að grípa um og fylgja. Við bíðum átekta um sinn og reynum að greina kjarnann frá hism- inu. Í lokin vil ég endilega deila með ykkur hugmynd sem einn besti sonur Austurlands kom fram með þegar Davíð Oddsson yfirgaf Seðlabankann í síðasta sinn. Hann stakk upp á því að líkt og Jóni lærða forðum yrði Davíð boðin friðarhöfn á Austurlandi; næði til að sinna hugðarefnum sínum fjarri pólitískum óróa, hér í véum sátta og samlyndis. Hvað finnst ykkur? Steinunn Ásmundsdóttir Hallærisárið 2009 annað mesta samgönguframkvæmdaár Íslandssögunnar Framkvæmt fyrir 21 milljarð á árinu

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.