Austurglugginn


Austurglugginn - 05.03.2009, Qupperneq 8

Austurglugginn - 05.03.2009, Qupperneq 8
8 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 5. mars Markaðsstofa Austurlands (MA) er tíu ára og verður afmælinu fagnað 7. mars næstkomandi með ýmsum hætti. Þá verða kynnt nýtt merki og kjörorð sem ferðaþjónusta svæðisins mun kynna sig undir. Skúli Björn Gunnarsson er stjórn- arformaður MA. ,,Margt hefur áunn- ist og þá fyrst og fremst aukin sam- heldni og samvinna yfir mjög stórt svæði á sviði ferðaþjónustunnar,“ segir Skúli Björn. Að hans mati hafa stórframkvæmdir síðustu ára rennt styrkari stoðum undir ákveðna þætti eins og gistingu og rútufyrirtæki. Þær hafi hins vegar einnig á vissan hátt tafið fyrir eflingu á innviðum því að ferðaþjónustuaðilar hafi haft lítinn tíma aflögu fyrir þróunar- og félags- starf. Nú sé fólk aftur á móti að koma af krafti inn í slíka vinnu og MA muni einbeita sér að því að efla innra starfið næstu misseri. Markaðsstofan hefur eins og fleiri samvinnuapparöt á Austurlandi orðið fyrirmynd að stofnun annarra mark- aðsstofa í landinu. Þær eru nú sjö talsins og hafa myndað samstarf sín á milli og við Ferðamálastofu sem er mjög mikilvægt fyrir ferðaþjón- ustu á landsbyggðinni að mati Skúla Björns. Mikil endurnýjun hefur orðið í ferða- þjónustu á Austurlandi hin síðari ár og ungt fólk víða komið í heils- ársrekstur. ,,Nú koma menn inn á allt öðrum forsendum en fyrir 20 árum,“ segir Skúli Björn. ,,Þá horfðu menn á þetta sem starf hluta ársins og tekjurnar samkvæmt því. Fólkið sem nú er að taka við hefur ákveðið að helga sig þessari atvinnugrein og þróar sín fyrirtæki með það í huga, gjarnan með fjölbreyttri þjónustu. Ferðamynstur erlendra ferðamanna hefur einnig gjörbreyst. Áður voru 70-80% útlendinga í skipulögðum rútuferðum en nú er nánast sama hlutfall á eigin vegum. Það breytir öllu og flækir markaðsmálin aðeins. En til dæmis er auðveldara að vinna með þá grunnhugsun að lengja dval- artíma ferðamannsins á tilteknum stöðum. Við megum síðan aldrei gleyma því hér á Austurlandi að okkar nærtækasti markaður er á suð- vesturhorninu.“ Skúli Björn segir að viðhorf til ferða- þjónustu hafi einnig breyst og stjórn- völd geri sér orðið betur grein fyrir því að þetta sé einn af grunnatvinnuveg- unum. Einnig horfi ferðamálayfirvöld meira á landið sem heild heldur en áður. Hér heima fyrir þurfi menn þá að sýna frumkvæði og vera tilbúnir til að einhenda sér í verkefnin þegar stuðningur við þau fæst. Vatnajökulsþjóðgarður er hið risastóra verkefni ferðaþjónust- unnar sem aðeins er hægt að líta á í áratuga tímabilum. Skúli Björn segir menn eiga að flýta sér hægt þar og vanda grunnvinnuna. Það sem mest mæði á nú sé að auka fjöl- breytni í afþreyingu á Austurlandi. Menningarferðaþjónustan standi þokkalega, en ,,aksjón“-afþreyingu skorti og eitthvað annað fyrir fjöl- skyldufólkið en sund og gönguferðir. Gistirými sé ákveðinn flöskuháls yfir háönnina, sem hafi lengst, en sókn- arfæri séu í maí og september og vetrinum. Á það hefur verið bent af utan að komandi að styrkleiki Austurlands felist í nærumhverfi íbúanna. Þeir séu fáir á stóru landsvæði, sem skapi eft- irsóknarverða kyrrð og náttúruperlur séu margar og fjölbreyttar. ,,Hér fara tvö hundruð þúsund ferðamenn í gegn árlega en flestir trúa ekki þeirri tölu. Annað sem hefur gjörbreyst á þessum tíu árum er að dreifing ferða- manna yfir landshlutann er orðin allt önnur og miklu betri og Firðirnir komnir sterkir inn.“ Ný stefnumótun í ferðaþjónustu fyrir svæði MA hefur verið unnin und- anfarna mánuði með rýnihópum í hverju sveitarfélagi og vinnufundum ferðaþjónustuaðila. ,,Tækifæri og verkefni eru mýmörg og fólk er nú reiðubúið að fylkja sér undir sam- eiginlegum markaðshugmyndum. Það er eitt af því sem dregið verður fram í dagsljósið 7. mars; nýtt merki og kjörorð sem menn geta fylkt sér á bak við og notað til að kynna alla ferðaþjónustu á svæðinu. Síðan hafa meginstoðirnar verið greindar enn einu sinni og horft til hvernig vinna megi með ferðaþjónustu tengda til dæmis menningu, mati úr héraði, veiðum og gönguferðum, bæði sér- staklega og sameiginlega.“ Skúli Björn hvetur alla sem láta sig ferðaþjónustu varða til að mæta á dagskrá Markaðsstofunnar 7. mars. ,,Áður en við hefjum afmælisveisluna verður aðalfundur og síðan vinnu- fundur þar sem við munum vinna af krafti í aðgerðaáætlun út frá þeirri sýn sem hefur mótast á fundum síðustu mánuðina. Við slíka vinnu er mik- ilvægt að hafa sem flesta ferðaþjón- ustuaðila en einnig fólk sem kemur að ferðaþjónustunni úr öðrum áttum. Þannig verða aðgerðirnar betur skil- greindar og raðað í forgang eftir mati þeirra sem koma til með að hrinda þeim í framkvæmd. En gleðin verður ekki langt undan og auðvitað er aðalatriðið, nú sem endranær er, að menn vinni saman í samkeppni og þá er nauðsynlegt að menn geti líka skemmt sér saman.“ Mikil endurnýjun í ferðaþjónustu á Austurlandi hin síðari ár Tíu ára starfi MA fagnað Markaðsstofa Austurlands 10 ára www.east.is 10 ára afmælishátíð 7. mars Hótel Héraði, Egilsstöðum Kl. 15:00 - 18:00 AFMÆLISMÁLÞING • Ávarp menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur • Ávarp formanns MA Skúla Björns Gunnarssonar • Stofnun MA rifjuð upp Ásmundur Gíslason, fyrrum form. FAUST • Ferðaþjónusta á Austurlandi áður fyrr Sveinn Sigurbjarnarson • Ferðaþjónusta á Austurlandi í dag Berglind og Sævar á Mjóeyri Kaffihlé • Niðurstöður ferðamannakönnunar 2008 Rögnvaldur Guðmundsson • Stefnumótun kynnt, afhjúpað nýtt merki og kjörorð • Umræður og ávörp gesta Málþingsstjóri: Ásta Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri MA Kl. 18:00 Fordrykkur Kl. 19:00 Hátíðarkvöldverður með skemmtidagskrá • Frumkvöðullinn og Kletturinn veitt • Tónlist og skemmtiatriði Veislustjóri: Magnús Már Þorvaldsson 3ja rétta kvöldverður kr. 3.900. Ath. sérstakt tilboð á gistingu á Hótel Héraði Vinsamlega staðfestið þátttöku á heida@east.is fyrir 4. mars. Aðalfundur Markaðsstofu Austurlands verður haldinn laugardaginn 7. mars kl. 10 á Hótel Héraði. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins: 1. Skýrsla stjórnar 2. Skýrsla framkvæmdastjóra 3. Reikningar félagsins 4. Lagabreytingar 5. Kosningar 6. Lögð fram starfsáætlun ársins 7. Ákvörðun árgjalds 8. Önnur mál - Stefnumótun kynnt, nýtt merki og kjörorð borið undir fundinn Vegna breytinga á starfssvæði MA síðustu misseri leggur stjórn til svohljóðandi breytingu á 1. gr. samþykkta félagsins: Félagið heitir Markaðsstofa Austurlands. Starfssvæði þess nær frá Streitishvarfi í Breiðdal og norður að Langanesi við Bakkafjörð... verði Félagið heitir Markaðsstofa Austurlands. Starfssvæði þess nær frá Þvottárskriðum og norður á Sandvíkurheiði... Kl. 12:00 Hádegisverður Kl. 12:45 Vinnufundur Aðgerðaáætlun nýrrar ferðamálastefnu unnin á skemmtilegum vinnufundi í Hlymsdölum (gegnt Hótel Héraði). Þeir sem láta sig varða framtíð ferðaþjónustu á Austurlandi eru hvattir til að mæta. H ér að sp re n t Kjördæmisþing KFNA verður haldið sunnudaginn 15. mars í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum. Þingið hefst klukkan 12:00. Frambjóðendur á lista flokksins í kjördæminu munu kynna sig og síðan verður kosið í 8 efstu sæti listans. Atkvæðisrétt á þinginu sem aðalmenn hafa allir flokksbundnir framsóknarmenn sem voru skráðir félagar í framsóknarfélögum í kjördæminu þann 15. febrúar sl. Þeir sem ganga í framsóknarfélag í kjördæminu fyrir 8. mars geta setið á þinginu sem varamenn fyrir aðalmann úr sama félagi. Kjördæmissamband Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.