Austurglugginn - 05.03.2009, Page 10
10 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 5. mars
Verði þér að góðu
Ég skora á Ástu Birnu Jónasdóttur að vera næsti
matgæðingur Austurgluggans.
Dagmar Jóhannesdóttir
Sítrussoðinn silungur
Salat
Gratíneraður kjúklingur
Heitur drykkur í kuldanum
6 lime
6 sítrónur
1 msk olía
smá salt
ca ½ laukur, skorinn í örþunnar
sneiðar
ca 1 tsk Picanta krydd
1 gul paprika
1 rauð paprika
1 græn paprika
3 tómatar
1 rauðlaukur
1/2 rauður chili
1/2 grænn chili
1/2 búnt steinselja
oregano eftir smekk
4 kjúklingarbringur
1 pakki beikonkurl
1 hnef i döðlur
1 matreiðslurjómi
1 poki kasjúhnetur
ostur til að gratinera
Kryddið kjúklingabringurnar eftir
smekk. Steikið á pönnu og setjið
7 dl sterkt kaff i
100 g fyllt Nóa Síríus súkkulaði
(má líka vera hvaða líkjör sem er)
50 g súkkulaði 70%
2 dl matreiðslurjómi.
Silungurinn skorinn í þunnar
sneiðar og látinn í löginn. Passa
að vel fljóti yfir hann og settur í
kæli í 1 sólarhring.
Brytja mjög smátt og blanda
við silunginn í leginum tveimur
tímum áður en borið er fram.
Gott að hafa með þessu ristað
brauð eða Ritzkex. Þetta er gott
sem forréttur eða bara stakur
réttur.
í eldfast mót. Steikið svo beikonið,
blandið hnetunum og döðlunum
við og setjið yfir kjúklinginn. Hellið
rjómanum yfir og svo að lokum ost-
inum. Setjið í ofn við 180 gráður í
ca 40 mín.
Gott er að hafa með þessu soðið
bankabygg, hvítlauksbrauð og
salat.
Setjið kaffið í pott og brytið súkku-
laðið út í. Hitið þar til súkkulaðið
hefur bráðnað. Bætið matreiðslu-
rjómanum út í og hellið drykknum
í glös. Skreytið að vild, t.d. með
þeyttum rjóma og rifnu súkkulaði.
Ég rek Valaskjálf á Egilsstöðum. Búin að vera hér síðan í vor. Á þrjú
yndisleg börn og tengdadóttur. Er uppalin í Grindavík en hef búið í borg
óttans að mestu. Það sem ég ætla að nota þessa vikuna er silungur sem að
margir eiga enn í frysti eftir sumarið og saumaklúbbsrétt sem er vinsæll í
mínum vinahópi.
hverjir eru á myndinni?
Austurglugginn birtir
gamlar myndir úr eigu
Ljósmyndasafns Aust-
urlands. Eru lesendur
beðnir liðsinnis við að
bera kennsl á fólk á
myndunum. Upplýsing-
um má koma til Arndísar
Þorvaldsdóttur í síma
471-1417 eða gegnum
tölvupóstfangið arndis@
heraust.is. Myndin er úr dánarbúi Unu Brynjólfsdóttur. Gefandi er
Þorbjörg Bergsteinsdóttir. Ljósmyndasafn Austurlands má skoða á
vef Héraðsskjalasafns Austfirðinga; www.heraust.is.
Til sölu furu- innihurðir og keramik-baðvaskar. Nánari upplýsingar í
bif.auetal@googlemail.com eða síma 843 0862, Kópavogur.
Sérbýli óskast til leigu.
Hjón með tvö börn óska eftir að leigja einbýlishús, parhús eða raðhús á
Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði eða Eskifirði frá og með júlí/ágúst í a.m.k. eitt
ár. Sigríður s. 899 0459 netfang: vettlingur@gmail.com.
Það er mikið talað um starfskenn-
ingu fagstétta núna, hver starfsmaður
er hvattur til að vera meðvitaður
um á hvaða lífssýn og fræðum hann
byggir starf sitt. Það er meinhollt
fyrir alla að fara í svona naflaskoðun.
Ég held að það sé engri stétt hollara
en stjórnmálafólki að spyrja sig stöð-
ugt að því hvort það sé að vinna sam-
kvæmt sinni lífssýn og stefnu.
Pólitík snýst um að móta stefnu, að
forgangsraða, að taka ákvarðanir og
að framkvæma. En pólitísk umræða
á ekki að fara fram í reykfylltum bak-
herbergjum heldur úti á meðal fólks-
ins, í lýðræðislegu samstarfi almenn-
ings og þeirra sem hann hefur valið
sem fulltrúa sína í sveitarstjórnir og
til starfa á Alþingi. Starf stjórn-
málafólks á að vera að hlusta á raddir
umbjóðenda sinna um leið og það
þarf að hafa kjark til að taka erfiðar
og umdeildar ákvarðanir.
Löggjöf, reglugerðir og fyrirmæli
frá hinu opinbera má ekki setja fólk
í kassa sem allir eru eins. Tryggja
þarf sveigjanleika í heilbrigðismálum
fyrir misveikt fólk, í öldrunarmálum
fyrir mishresst fólk, í skólamálum
fyrir mishraða krakka og svo má
lengi telja.
Mér finnst verkefni samfélagsins
kalla hástöfum og mig langar til að
bregðast við kallinu með þá lífssýn
að vopni sem ber virðingu fyrir fólki
og hlustar á fólk.
Ég hvet ykkur til að taka þátt í opnu
prófkjöri Samfylkingarinnar 5.–7.
mars næstkomandi. Ég býð mig
fram til forystu á listanum og bið um
stuðning ykkar í 1. eða 2. sætið.
Höfundur er framhaldsskólakennari og
formaður bæjarráðs, Fljótsdalshéraði.
Hún býður sig fram í 1.-2. sæti á lista
Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi.
Forgangsröðun á
erfiðum tímum
Jónína Rós Guðmundsdóttir skrifar:
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
32
03
6
0
3/
20
06
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Umboðsmenn í Fjarðabyggð
// TM Neskaupstað
Hafnarbraut 6
740 Neskaupstaður
sími 477 1735
// Sparisjóður Norðfjarðar
Búðareyri 2
730 Reyðarfjörður
sími 470 1100