Austurglugginn


Austurglugginn - 22.07.2021, Page 6

Austurglugginn - 22.07.2021, Page 6
6 Fimmtudagur 22. júlí AUSTUR · GLUGGINN „Ég var með bókasafnið í kjallaranum hjá mér en er búin að flytja það á skrifstofuna,“ segir Rósa Björg Jónsdóttir sem forseti Íslands sæmdi Fálkaorðunni nýlega. Hún bætir því við að hún eigi rúmgóðan kjallara. Við hittum Rósu á umræddri skrifstofu á rólegum laugardegi. Eitt af sjálfboðaliðastörfum Rósu er starf aðalræðismanns Ítalíu á Íslandi og fylgir skrifstofan starfinu. Allir veggir skrifstofunnar eru þaktir bókahillum með barnabókum á erlendum tungumálum. Rósa lætur þess getið að á skrifstofunni sé að finna um 7.300 bækur á yfir 85 tungumálum. Hún fékk Fálkaorðuna fyrir sjálfboðaliðastörf í þágu Móðurmáls, samtaka um tvítyngi, en á þeirra vegum hefur hún skráð og miðlað barnabókum á öðrum tungumálum en íslensku. Rósa Björg er varaformaður samtakanna og veitir bókasafni þeirra forstöðu. Hún hefur starfað í þágu samtakanna í meir en áratug. Flutti ung suður Rósa Björg Jónsdóttir er menntuð sem bókasafns- og upplýsingafræðingur og starfar sem sérfræðingur í skráningu á Landsbókasafni Íslands. Rósa er fædd árið 1972 og ólst upp á Eskifirði en hefur frá unglingsárum búið í Reykjavík. „Ég var hörð á því sextán ára gömul að ég vildi fara í nám í Verzlunarskólanum. Ég hafði engan áhuga á því að fara á heimavist,“ segir Rósa. „Það varð því úr að mamma og pabbi fluttu með mér suður sem er svolítið sérstakt en ég er einbirni. Amma og afi áttu íbúð í Vesturbænum og við fluttum fyrst í hana svo ég gæti haft heimili meðan á náminu stóð. Foreldar mínir keyptu svo íbúð í Vesturbænum þannig að við höfum alltaf búið þar í Reykjavík. Þegar ég svo keypti íbúð fyrir nokkrum árum var það í næstu götu við þau.“ Fram kemur í máli Rósu að meðan á dvölinni stóð í Verzlunarskólanum hafi hún unnið með náminu á bókasafni skólans þar til hún útskrifaðist 1992 og raunar einnig eftir útskriftina. „Sú vinna varð meðal annars til þess að ég fór í bókasafnsfræðinám í Háskóla Íslands,“ segir Rósa en hún útskrifaðist frá háskólanum árið 1997. Til Ítalíu gegnum Eramus Fyrstu kynni Rósu af Ítalíu voru sem skiptinemi í eitt ár á háskólastigi gegnum Erasmus. Ég tók ítölsku sem aukafag sem ég lærði í háskólanum í Pavia á Ítalíu. „Ég valdi Ítalíu vegna þess að mig langaði að prófa nýtt tungumál. Ég lærði bæði frönsku og þýsku auk latínu í Verslunarskólanum,“ segir Rósa. „Ég var í þessu námi í bænum Pavia í Lombardíhéraði og það var mjög skemmtileg lífsreynsla. Ég er enn í sambandi við vini sem ég eignaðist á þessu ári.“ Rósa segir að í Pavia hafi verið mikilvægast að ná tökum á ítölskunni en það er mál sem ekki er auðvelt að læra. „Ítalir eru lítt gefnir fyrir að nota ensku í samskiptum við útlendinga jafnvel þótt þeir kunni hana,“ segir Rósa. „En þetta gekk ágætlega hjá mér.“ Rósa bætir því við að hún sé enn í samskiptum við um tuttugu manns frá þessum tíma. Þau mynda hóp á netinu og eru dugleg í samskiptum á þeim vettvangi. „Í gegnum árin hef ég svo oft hitt einstaklinga úr þessum hóp á ferðum erlendis og þau hafa hitt mig ef þau eru á ferð hérlendis,“ segir hún. Flutti heim korteri fyrir hrun Eftir dvölina í Pavia kom Rósa aftur heim til Íslands og kláraði námið við háskóla. Eftir útskrift ákvað Rósa að flytja aftur til Ítalíu. Hún settist að í bænum Treviglio sem taldi þá um 25 þúsund manns en bærinn er einnig í Lombardíhéraði. Þar bjó hún með ítölskum sambýlismanni sínum en þau slitu svo sambúð 2008. Rósa segir að í upphafi hafi hún unnið á bæjarbókasafni Treviglio og síðan bætt við sig verkefnum fyrir önnur bókasöfn. Síðan þegar börnin komu til sögunnar var hún heimavinnandi. „Árið 2000 fæddist dóttir mín Aurora Erika og 2002 sonur minn Aron Flavio, svo í júní 2008 fluttum við til Íslands.“ segir Rósa. „Ég kom heim svona korteri fyrir hrunið en var svo heppin að fá strax vinnu við bókasafnið í Verzlunarskólanum. Og ég fékk inni hjá pabba og mömmu með börnin mín tvö.“ Allir veggir skrifstofunnar eru notaðir undir bókasafnið. Mynd FRI Frá veitingu Fálkaorðunnar. Rósa Björg er þriðja frá hægri. Mynd aðsend Bókasafnið úr kjallaranum og á skrifstofuna Rósa Björg Jónsdóttir sæmd Fálkaorðunni

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.