Austurglugginn - 04.11.2021, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 4. nóvember AUSTUR · GLUGGINN
„Ég bara vaknaði upp einn fallegan
morgun og hugsaði með mér hvers
vegna ekki. Það elska allir kleinur
og hvað er íslenskara en kleinur
og kleinubakstur,“ segir Ingunn
Þráinsdóttir, sem hefur gefið út
bók með þeim lágstemmda titli:
Bestu kleinur í heimi. Þar má finna
57 mismunandi uppskriftir að
kleinum auk ýmiss annars fróðleiks
um þetta sívinsæla fyrirbæri.
Þrátt fyrir bókarheitið er hér ekki
um það að ræða að Ingunn líti stórt
á sig í kleinugerð. Þvert á móti því
þótt hún baki kleinur annars lagið
þá eru engar uppskriftir eftir hana
sjálfa í bókinni. Þetta er samansafn
mismunandi uppskrifta annarra frá
öllum landshlutum og bæði ungum
sem öldnum.
„Það elska jú allir kleinur og öllum
á Íslandi finnast kleinurnar hennar
ömmu sinnar eða mömmu sinnar
bestar í heimi. Þaðan kom bæði
hugmyndin að bókinni og nafninu
líka,“ útskýrir Ingunn. „Mér hefur
alla tíð fundist merkilegt að næstum
hver einasta fjölskylda á sína eigin
sérstöku kleinuuppskrift. Kleinugerð
er þó ekki föst í fortíðinni eins og
einhver gæti haldið. Þvert á móti þá
eru allnokkrir ungir áhrifavaldar á
samfélagsmiðlum að gera kleinum
ágæt skil og sumir þeirra eru með
í bókinni.“
Útgáfan hrein tilviljun
Þrátt fyrir áhuga Ingunnar var útgáfa
bókarinnar tóm tilviljun. „Það er
löng og skemmtileg saga en í stuttu
máli þá fékk vinur minn Albert
Eiríksson, Albert Eldar, veður af
því að mig langaði að gera bók um
kleinur. Hann minnist á þetta við
einhverja vini sína í fjölmiðlum og
það skiptir engum togum að innan
skamms hringja þeir frá Mannlega
þættinum á Rás 1 og taka við
mig viðtal. Það viðtal heyrir Ívar
Gissurarson hjá bókaútgáfunni
Nýhöfn, hefur samband í kjölfarið
og vill gefa bókina út.“
Kleinugerð merkilegt
fyrirbæri
„Mér finnst það mjög merkilegt að
þó kleinugerð sé í grunninn einfaldur
bakstur að þá eru svo ótalmargar
mismunandi leiðir til að baka þær
og margir mjög fastir á að þessi
tiltekna leiðin sé málið. Sumir bæta
í baksturinn einhverju óvenjulegu
eins og karamellubúðingi, enn aðrir
dreifa til dæmis yfir þær kanil. Svo
sýnist sitt hverjum um hvað skal
nota mikið af hveiti, smjöri, hvað
skal hnoða deigið lengi eða hve
steikingartíminn á að vera langur.
Sumir steikja aðeins úr tólg en aðrir
vilja ekki sjá það. Þetta finnst mér
allt mjög heillandi heimur.“
Á vit draumanna
En það er fleira spennandi að gerast
hjá Ingunni en útgáfa bókarinnar. Í
byrjun næsta árs er fjölskyldan að
rífa sig upp með rótum og halda
erlendis í tóma ævintýramennsku
eins og Ingunn kallar það sjálf.
Þau hjónin ætla að henda öllu sínu
hafurstaski hérlendis inn í geymslu
og taka flugið til Spánar þar sem þau
ætla að leita sér að íbúð með lengri
búsetu í huga.
„Ég er nýorðin
fimmtug og langar
að lifa aðeins lífinu
utan við þetta
hefðbundna hér á
landi þar sem kappið
er mikið og erill
daginn út og inn.
Draumurinn lengi
verið að eiga lítið
kot í Andalúsíu
og nú ætlum við
að láta reyna á
hvort það er ekki
hægt að láta þann
draum rætast. Við
förum utan með
ekkert meðferðis,
leigjum okkur bíl
og keyrum svo um þangað til við
finnum einhvern spennandi bæ
eða þorp sem heillar okkur bæði.
Okkur langar að finna kot eða hús
sem mögulega væri hægt að breyta
í lítið gistihús svona í og með en
það verður að koma í ljós hvort það
gengur upp.“
AE
„Fátt íslenskara
en kleinur“
Kleinugerð í allri sinni mynd í veglegri nýrri
bók Ingunnar Þráinsdóttur
Hver fær ekki vatn í munninn þegar rjúkandi nýjar og girnilegar kleinur eru á boðstólnum?
Mynd: SPH
Ingunn er grafískur hönnuður og því skal ekki koma á óvart að bókin
er listavel upp sett og mikill fjöldi mynda.
Kleinubakstur í undirbúningi. Mynd: SPH
Íslenskar kleinuuppskriftir
og skemmtilegur
fróðleikur um
kleinur
KLEINUR
Í HEIMI
BESTU
INGUNN ÞRÁINSDÓTTIR
Uppskrift A eftir
Huldu Ragnarsdóttur:
1 kg hveiti
350 gr sykur
100 gr brætt smjörlíki
8 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
½ AB mjólk
3 egg
1 glas kardimommudropar
1 glas vanilludropar
Steikja í ISIO4 olíu
Uppskrift B
eftir Ástu Þórleif Jónsdóttur:
1 kg hveiti
200 gr sykur
100 gr smjörlíki
2 egg
6 tsk lyftiduft
1 ½ tsk hjartarsalt
Kardimommudropar blandaðir
sítrónudropum
250 ml mjólk
250 ml súrmjólk
Hnoðað