Austurglugginn - 25.11.2021, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 25. nóvember AUSTUR · GLUGGINN
Sautján erlendir kennarar
frá fimm löndum heimsóttu
Verkmenntaskóla Austurlands
(VA) í haust en skólinn hefur tekið
þátt í alþjóðlegu verkefni síðustu
þrjú ár. Covid-faraldurinn setti
töluverðt strik í reikninginn í
skiptiheimsóknunum.
VA hefur tekið þátt í samstarfs-
verkefninu Will2MotivatE(U)
með skólum í Ungverjalandi,
Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Noregi
en verkefnið er styrk af Erasmus+,
styrkjakerfi Evrópusambandsins.
Will2MotivatE(U) felst í því að efla
áhugahvöt nemenda og starfsmanna.
Verkefnið miðaði að því að kynnast
leiðum sem hægt væri að nota til að
efla áhuga nemenda á eigin námi.
Um leið taka þeir frekari ábyrgð á
námi sínu.
Hóparnir hittust í fimm daga
í senn í hverju landi og unnu að
þematengdum viðfangsefnum.
Nemendur voru með í sumum
ferðanna en aðeins starfsfólk í
öðrum.
Verkefnið hófst árið 2018 í
Ungverjalandi og síðan rak hver
ferðin aðra. Áætlað var að hóparnir
kæmu í Neskaupstað í apríl 2020
áður og verkefninu lyki í Króatíu
í júní sama ár. Rétt áður skall
COVID-19 faraldurinn á, sem setti
stórt strik í reikninginn. Af þeim
sökum var sýndur skilningur af hálfu
styrkveitanda á lokum verkefnisins.
Hann var þó ekki endalaus, gefinn
var frestur til loka ágúst 2021.
Síbreytilegar
landamærareglur
Þegar útlitið var farið að skána í
sumar hittust fulltrúar skólanna
á netfundi til að ákveða næstu
skref. Ákveðið var að fara til
Króatíu í júlílok og klára verkefnið
síðan á Íslandi um miðjan ágúst. Í
báðum þessum ferðum var aðeins
um starfsfólk að ræða og var það
í samræmi við skipulagningu
verkefnisins.
Fulltrúar flesta skólanna hittust
í Króatíu í lok júlí. Íslendingarnir
og Norðmennirnir áttu ekki
heimangengt en hinir unnu fjölbreytt
verkefni, fóru í hópeflisleiki og nutu
króatískrar náttúru og menningar.
Þegar nær fór að draga Íslandsför
breyttust reglur á landamærunum
afar reglulega en allir ferðalangarnir
reyndust með tilskilin vottorð til þess
að losna við sóttkví eftir komu. Hluti
kom fljúgandi í Egilsstaði en aðrir
keyrðu norðurleiðina.
Góðir dagar eystra
Þegar hóparnir voru loks komnir í
Neskaupstað hófst dagskráin. Fyrsta
daginn fengu þátttakendur kynningu
á skólanum, sem varð að ítarlegum
samanburði á íslensku skólakerfi og
skólakerfi hinna landanna. Einnig
voru kynningar á heilsueflandi
framhaldsskóla, forvarnastarfi
skólans, náms- og starfsráðgjöf og
vinnustofuskipulaginu sem tekið var
upp í upphafi vorannar 2021.
Á öðrum degi var haldið í áhuga-
hvetjandi siglingu til Mjóafjarðar.
Ferðin var bæði hugsuð til þess að
þjappa hópnum saman og ekki síst
til að kynna þátttakendur fyrir því
hvernig áhugahvöt getur virkað
sem drifkraftur til dæmis varðandi
búsetu á afskekktum svæðum. Segja
má að áhugahvötin sé sterk hjá
Mjófirðingum sem kjósa sér fjörðinn
til búsetu, þótt hann sé á margan
hátt lokaður af, fyrir utan seigluna
sem fólkið býr yfir.
Á þriðja deginum fóru þátt-
takendur í tvær vinnustofur, aðra
í Fab Lab Austurland og hina
varðandi kulnun. Í Fab Lab unnu
þátttakendur grip sem þeir tóku með
sér heim og í kulnunarvinnustofunni
lærðu þátttakendur ýmsar aðferðir til
að fyrirbyggja kulnun.
Í fjórða degi var verkefnið tekið
saman og rætt um framhaldið en
annað verkefni með sömu skólum
hefur verið samþykkt undir nafninu
DEPEND. Þar verður þemað ýmis
konar fíknir og ætla skólarnir að læra
hvor af öðrum hvernig best er að
vinna með þær. Línurnar voru því
lagðar fyrir það verkefni á þessum
fundi. Í lok dags naut hluti hópsins
sólarinnar í Vök á Egilsstöðum en
hluti keyrði suður á bóginn.
Síðasta daginn höfðu þátttakendur
frjálsan tíma sem nýttur var á ýmsan
hátt í sólinni á Austurlandi. Sumir
fóru í Stuðlagil og aðrir sleiktu
sólina á pallinum við Beituskúrinn
í Neskaupstað.
Öll kvöldin var sameiginlegur
kvöldverður þar sem skeggrætt var
um ýmsa hluti er snerta menntun
og skólamál í þessum löndum. Eftir
þetta fóru þátttakendur heim á leið,
einn hópur af öðrum og frábærri
viku lauk á örskotsstundu.
Verkefni sem víkkar
sjóndeildarhringinn
Það sem verkefni eins og þetta gefur
skólanum er gríðarlega margt. Við
höfum séð í gegnum verkefnið
hvernig þetta víkkar
sjóndeildarhringinn hjá
bæði nemendum og starfsfólki. Við
lærum ýmsar aðferðir sem við getum
tekið beint með okkur í kennslu og
svo lærum við ekki síst gríðarlega
mikið um mismunandi menningu og
aukum þannig eigið menningarlæsi.
Þetta er eitt af stóru markmiðunum
í Evrópustefnu skólans.
Eftir þessa daga hér í Neskaupstað
leið okkur eins og einni stórri
fjölskyldu, þótt við hefðum ekki
hitt hina hópana síðan í október
2019. Þá var eins og við hefðum
hist síðast bara daginn á undan.
Það segir manni ekki síst hvað svona
starf gefur mikið af sér. Við hlökkum
mikið til áframhaldandi samstarfs
og nú fara fleiri tækifæri að glæðast
en það eru geysilega mörg tækifæri
í Evrópuverkefnum fyrir nemendur
og starfsfólk í Verkmenntaskóla
Austurlands.
Birgir Jónsson
Áhugahvöt aukin í alþjóðlegu verkefni
Verkmenntaskóli Austurlands
Mynd: AE
Þátttakendur í verkefninu við Sólbrekku á Mjóafirði. Mynd: Aðsend
Salome Rut Harðardóttir frá VA kynnti heilsueflandi framhaldsskóla. Mynd: Aðsend Í FabLab-veri VA. Mynd: Aðsend