Austurglugginn


Austurglugginn - 07.12.2012, Síða 15

Austurglugginn - 07.12.2012, Síða 15
 Föstudagur 7. desember AUSTUR · GLUGGINN 15 Erla Sigríður Síðastliðinn föstudag, 30. nóvember, kom Ívar Ingimarsson í heimsókn í Íþróttaakademíuna (ÍÞA). Ívar er fyrrverandi atvinnumaður í knatt- spyrnu og spilaði m.a annars með Reading í ensku úrvalsdeildinni auk þess sem hann á 30 A landsleiki að baki auk mikils fjölda leikja með yngri landsliðum. Ívar sagði nem- endum frá ferli sínum með aðal- áherslu á lífsstíl atvinnumannsins en yfirskrift fyrirlestursins var „þú verður að eiga það skilið“. Ívar er, eins og kunnugt er, frá Stöðvarfirði en þar hóf hann einmitt ferilinn með Ungmennafélaginu Súlunni. Ívar svaraði eining spurningum frá nemendum en óhætt er að segja að þeir hafi verið áhugasamir ef marka má þann mikla fjölda spurninga sem atvinnumaðurinn fyrrverandi fékk. Meðfylgjandi mynd tók Elvar Jónsson kennari í ÍÞA. Menntamál hafa verið töluvert í umræðunni undanfarna daga. Tvennt kemur þar til: nýútgefin skýrsla um samþættingu mennta- og atvinnu- mála og fyrirhugað samkomulag ríkisvaldsins við framhaldsskóla- kennara um kjarabætur sem fellt var vegna mikillar andstöðu kennara. Skýrslan sem gefin var út af starfs- hópi á vegum forsætisráðuneytisins undir forystu Skúla Helgasonar alþingismanns og varaformanns menntamálanefndar þingsins útlistar helstu þætti og markmið í almennri menntastefnu á landinu, m.a. að allir Íslendingar ljúki framhaldsskóla- námi, að heildarnámstími verði styttur um allt að tvö ár og að færa þurfi íslenskt menntakerfi í átt að nútímanum og aðlaga það þörfum atvinnulífsins. Samkomulagið átti að skila 2% launahækkun til handa kennurum og 200 milljónum til handa skólastjórnendum til að m.a. koma til móts við kaup á yfirvinnu kennara vegna innleiðingar nýrra framhaldsskólalaga, sem tvisvar hefur verið slegið á frest. Hvortveggja hefur vakið gríðarleg viðbrögð, stór orð hafa fallið og svo virðist sem halli verulega á stjórn- völd, þau sögð veruleika- firrt og ýta vandanum á undan sér í einhverjum sýndarveruleika, sem gerði hvorki ráð fyrir innleiðingu laganna í fjárlögum né kostnaði, um 540 milljónir, vegna fyrirhugaðs samkomulags. Ég sem framhaldsskólakenn- ari get svo sannarlega tekið undir þessa gagnrýni. Fyrirheitin eru góð – og menntastefnan er skýr, eins og kemur fram í skýrslunni. Enda birtist þar framtíðarsýn í mennta- málum sem sett voru í lög fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla árið 2008 undir forystu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þáverandi mennta- málaráðherra og síðan þá, fjögurra ára tilraunaferli til þess að koma þeim í framkvæmd. Enn er sem sagt unnið að inn- leiðingu þeirra, eitthvað mjakast áfram, mjatlað er inn í svokallaða tilrauna- skóla til að fá starfsfólk til að tileinka sér nýja nálgun á námskrá, en ekki mikið meira en það. Og nú hafa kenn- arar sent menntamála- ráðherra, með því að hafna kjarabót í fyrsta sinn í sögu kjarabaráttu þeirra, skýr skilaboð; hingað og ekki lengra. Þessi skilaboð hljóta að þýða það að nánari útfærsla á framhaldsskólalög- unum þurfi að bíða. Skólamenn segja hún hafi einfaldlega beðið skipsbrot – raunverulegur hugur þurfi nefni- lega að fylgja máli. Það er ljóst að endurskoða þarf í heild sinni það menntakerfi sem við búum við í dag. Varðveita þarf þá sköpunargleði sem einkennt hefur leikskólastigið undanfarin ár. Við verðum að tryggja meiri samvinnu og samfellu á milli allra skólastiga og snúa til baka til þess að 10. bekkingar geti stundað nám á framhaldsskóla- stigi í sínum grunnskóla. Og fram- haldsskólaprófið svokallaða verður að verða að veruleika sem raun- hæfur valkostur fyrir alla. Þannig myndu grunnskólanemendur ljúka framhaldsskólaprófi 18 ára gamlir og þá valið leið hvað framhaldið varðar. Bætt við sig einu ári til undirbúnings fyrir háskóla með stúdentsprófi eða farið á samning og lært fag í verk- eða tæknigreinum. Þannig geta t.d. minni sveitarfélög/byggðarlög boðið nemendum sínum að vera lengur heima í héraði. Auka þarf sveigjan- leika og frelsi í starfsumhverfi skól- anna til að bjóða upp á fjölbreytt nám fyrir nemendur meðal annars með því að efla veg hinna skapandi greina, iðn- og tæknigreina og tengja það meira við atvinnulíf á hverjum stað. Við þurfum að hagræða enn frekar á háskólastiginu og hlúa að sérhæf- ingu háskóla. Þar hefur Háskólinn á Akureyri svo sannarlega lykil- hlutverki að gegna með sinni sér- stöðu í námsframboði. Einnig þyrfti að kanna grundvöll fyrir sérhæfðu háskólanámi, eins og t.d. skógfræði eða fjölmiðla- og upplýsingatækni, á Austurlandi. Við þurfum að hafa aðstöðu, tækjabúnað og þá sérfræði- þekkingu sem þarf til að börn okkar fái menntun við sitt hæfi og geti nýtt styrkleikana á sínum áhugasviðum. Við þurfum einfaldlega að koma kennslu og námi inn á 21. öldina. Til þess þurfum við fjármagn og skýran vilja til verka. Erla Sigríður býður sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi Verðum að láta verkin tala Þekkir einhver fólkið? Óþekkt mynd frá Ljósmynda- safni Austurlands Myndin af hjúkrunarkonunni og stúlkunni í sjúkrarúminu er úr mynda- safni Jóns Þórarinssonar frá Skeggjastöðum í Fellum. Hin er úr myndasafni Sigurðar Vigfússonar sem var Héraðsmaður í báðar ættir, sonur Vigfúsar Sigurðssonar frá Egilsstöðum í Fljótsdal og Soffíu Elíasdóttur frá Aðalbóli á Hrafnkelsdal. Þeir sem geta veitt upplýsingar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Arndísi eða Magnhildi í síma 471-1417 og/eða netföngin arndis@heraust.is, og magnhildur@heraust.is. Þú verður að eiga það skilið

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.