Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2015, Side 4

Austurglugginn - 10.04.2015, Side 4
4 Föstudagur 10. apríl AUSTUR · GLUGGINN Leiðari Verkfallavorið mikla! Eftir áralangan frið á vinnumark- aði er allt útlit fyrir að 2015 fari í sögubækurnar sem verkfallaárið mikla. Árið hófst með árangurs- ríkum verkföllum lækna og enn á ný eru sjúkrahúsin vígvöllur kjara- baráttunnar með verkföllum nokk- urra hópa innan BHM. Rafvirkjar hjá RÚV eru að und- irbúa verkföll og Starfsgreinasam- band Íslands er að fara af stað með nýja atkvæðagreiðslu um verkfalls- boðun. Iðnaðarmenn hafa hótað verkföllum og fleiri hópar eru svo í startholunum. Ríkisstjórnin virðist algerlega úti á túni í þessum málum. Þegar Al- þýðusambandsfélögin og Samtök Atvinnulífsins gerðu umdeildan kjarasamning 22. desember 2013 gengu þessir aðilar út frá einhvers konar sátt og samvinnu milli vinnu- markaðar og stjórnvalda. Talsmenn ríkisstjórnarinnar gáfu lítið fyrir þær hugmyndir og á meðan atkvæða- greiðslu um þá kjarasamninga stóð dundu tilkynningar um hækkanir opinberra þjónustugjalda á fólki. Forsætisráðherra lýsti yfir í ára- mótaávarpi sínu þessi áramót – með nýja „hóflega“ kjarasamninga í höndunum – að nú væri svigrúm til að hækka lægstu laun. Svo urðu menn hissa á því að samningarnir kolféllu víðast hvar. Í yfirstandandi samningahrinu sækja menn ekkert til ríkisvalds- ins. Engar kröfur eru gerðar til hins opinbera og enginn málsaðila hefur óskað eftir nærveru stjórn- málamanna við borðið. Svo mikið ber á milli aðila – þ.e. verkalýðshreyfingar sem krefst 300 þúsund króna lágmarkslauna og SA sem býður enn og aftur til „ábyrgra kjarasamninga“ þar sem venjulegu launafólki er boðið að bera ábyrgð á stöðugleika – að engar líkur eru á að samningar náist fyrr en eftir talsverð átök. Í síðasta leiðara var að mati ein- hverra farið hörðum orðum um mál- efnafátækt og uppgjöf fjórflokksins svokallaða. Því miður er það svo að þrátt fyrir eyðimörk fjórflokksins – eru aðrir valkostir lítið skárri. Ef litið er til stefnumála Pírata, sem eru heitasta stöffið í þjóðmálum dagsins, kemur í ljós einhver óskalisti um alls konar – aðallega netfrelsi og borgaraleg réttindi en stefnu Pírata í efnahags-og atvinnumálum má súmmera upp í „það er ósanngjarnt að Íslendingar fái allt að helmingi lægri laun en nágrannalönd okkar en þurfi að vinna jafn mikið eða jafnvel meira.“ (Stefnumál Pírata www.piratar.is) Stefnumál Bjartrar framtíðar eru pínulítið eins og stefnuskrá Besta flokksins á sínum tíma „allskonar fyrir aumingja“ eins og Besti orðaði svo smekklega. Sumsé ættu allir að finna eitthvað fyrir sig. Athygli vekur samt að í stefnuskrá BF er að finna fróma ósk: „Fjármálakerfið sé heil- brigt og hrynji ekki.“ (http://www. bjortframtid.is/alyktun/) Einnig „að almennt ríki minna vesen“ og Ísland vinni Júróvisjón. Allt góð stefnumál og þó sérstaklega þetta með „almennt minna vesen“. Það má þó virða það við Pírata að stefnumál þeirra litast af hug- sjón – þ.e. hugsjóninni um upplýs- ingafrelsi og borgaralega þátttöku. Þetta brennur kannski á ungu fólki sem finnst það ráða litlu um örlög sín og í leyndar- og klíkustjórn- málum dagsins. En þegar kemur að skiptingu auðæfanna – ráðstöfun auðlinda og hvers konar samfélag við viljum – komum við að tómum píratakofa. Væntanlega tökum við þá upplýsta afstöðu til hvers máls fyrir sig. Það er eins og það þori enginn eða nenni að hafa hugsjónir í dag. Við erum öll alltaf að leita að þessari þverpólitísku samstöðu og á meðan við í kurteisi iðkum „samræðupóli- tík“ eins og er í tísku hjá þeim sem halda að þeir séu sósíaldemókratar – hlær yfirstéttin alla leið í bankann. - Salb. Ath. Höfundur hefur sterk tengsl við verkalýðshreyfinguna og þessi pistill er prívatskoðun höfundar og túlkar hvorki viðhorf Austurgluggans né annarra eigenda hans. Lesendum er velkomið að birta aðrar og öndverðar skoðanir á síðum blaðsins. Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Sverrir Mar Albertsson • Fréttir: 477 1750 / frett@austurglugginn.is Auglýsingar: 696 6110 / auglysing@austurglugginn.is • Áskriftarsími: 477 1571 • Umbrot og prentun: Héraðsprent. Efnisvinnsla og auglýsingasala: Austurfrétt ehf. • Gunnar Gunnarsson blaðamaður • Sigríður Lund Hermannsdóttir blaðamaður • Kristborg Bóel Steindórsdóttir blaðamaður • Stefán Bogi Sveinsson auglýsingastjóri • Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf., Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður Brandur Bjarnason Karlsson, sem fyrir rúmum áratug lamaðist fyrir neðan háls af völdum veikinda, ferð- aðist fyrir páska hringinn í kring um landið til að vekja athygli á aðgengis- málum fatlaðra. Almennt skorti ekki viljann til að gera betur en það vanti að einhver taki af skarið. „Það var sjokk fyrir mig eftir að ég veiktist að uppgötva hversu fáa staði ég gat farið á. Landið sem ég var búinn að ferðast um öll mín 20 ár lokaðist fyrir mér og allt í einu gat ég bara verið á sjúkrahúsum, í sérútbúnum félagsmiðstöðvum og nýbyggingum,“ segir Brandur. Hann og ferðafélagar hans fóru um landið í dymbilviku og héldu meðal annars fund á Egilsstöðum. Hann segir að með ferðinni hafi þeir viljað koma vitundarvakningu af stað um aðgengismálin auk þess að njóta þess að ferðast um landið og sjá aðstöðuna með eigin augum. Bara hægt að fara á ákveðna staði „Það er mjög erfitt að ferðast með hjólastól um landið og það er bara hægt að fara á ákveðna staði. Það er ekki aðgengi fyrir fatlaða á almenn- ingsklósett á svæðinu frá Hvolsvelli að Höfn. Það eru 365 kílómetrar eða eins og frá Reykjavík til Akureyrar. Það er hálf ömurlegt að þetta fái að vera svona í friði en það virðast ekki vera neinar reglur eða viðurlög um þetta,“ segir Gísli Steinar Jóhannsson, vinur Brands, sem var með í ferðinni. „Ég hef ekki hitt eina einustu manneskju sem vill hafa aðgengið eins og það er en ég veit ekki hvað þarf til þannig að þetta breytist.“ Félagslíf á takmörkuðum tímum Aðgengið nær þó engan veginn bara til ferðamannastaða heldur til daglegs lífs. Brandur segir óþægilegt að skrá sig til þátttöku í félagslífi en komast svo að því að ekki sé hjólastólaaðgengi til staðar. Snjórinn hamlar oft leið- um fyrir hjólastóla, eins og Gísli og Brandur sýndu fram á í stuttu stoppi sínu á Egilsstöðum. Á það var bent á fundi þeirra þar að ferðaþjónusta fatlaðra í sveitarfélaginu er aðeins rekin á milli klukkan 8:00 og 17:00. „Margir halda sig bara heima og láta ekki reyna á leiðirnar. Þegar ferðafrelsið takmarkast þá bitnar það á félagslífinu og ferðafrelsinu. Okkur hafa borist ýmsar ábendingar í kjölfar ferðarinnar og það er vilji til að bæta úr en kannski ekki akkúrat á þeim stöðum þar sem valdið er.“ GG Aðgengi fatlaðra Sjokk að upplifa hvernig landið lokaðist Upp þennan ramp við Kleinuna varð ekki komist – jafnvel þótt snjórinn væri ekki mikill. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.