Austurglugginn


Austurglugginn - 07.08.2015, Qupperneq 6

Austurglugginn - 07.08.2015, Qupperneq 6
6 Föstudagur 7. ágúst AUSTUR · GLUGGINN Hreindýr voru að frumkvæði máls- metandi manna á Íslandi í samvinnu við dönsk stjórnvöld flutt til Íslands frá Norður-Noregi á síðari hluta 18. aldar í þeim tilgangi að verða búbót í íslenskum landbúnaði sem viðbótar- lífsbjörg fyrir landsmenn. Hlutverk hreindýranna var því í þeim skiln- ingi hliðstætt því sem innflutningur kartöflunnar á 18. öld þjónaði, þau skyldu verða ný fæða fyrir lands- menn sem á þessum tíma stríddu við harðindi, búfjárfelli, náttúru- hamfarir og hungur. Fyrstu innfluttu hreindýrin voru sett á land í Vestmannaeyjum árið 1771 en þau þrifust ekki þar og þau örfáu sem ekki drápust var forðað í land, nánar tiltekið til Fljótshlíðar en hverfa fljótlega úr sögunni. Næsti hópur var settur á land í Hafnarfirði 1777 og gekk sú hjörð á Reykjanesi og allt austur í Árnessýslu en dó út á fyrri hluta 20. aldar. Þriðja hópnum var sleppt í austanverðum Eyjafirði og dreifðust þau um Þingeyjarsýslur en hurfu af þeim slóðum á fyrri hluta 20. aldar. Dýrin í hjörðinni sem nú gengur villt á Austurlandi eru afkomendur síðasta innflutta hópsins sem settur var á land í Vopnafirði árið 1787 og fann sér fljótlega haga á öræfunum norðan Vatnajökuls þar sem enn eru landsins helstu hreindýraslóðir. Hreindýrin hafa mótað menningu á Austurlandi á margvíslegan hátt eins og gefur að líta á nýrri sýningu Minjasafns Austurlands. Það hefði þó getað farið öðruvísi í sögunni því dýrin sem flutt voru inn 1787 áttu að fara til Hofsóss en hafís kom í veg fyrir það og voru þau sett í land á Vopnafirði. „Það er greinilegt að hreindýrið hefur sinn sess í sögu og menningu Austurlands,“ segir Unnur Birna Karlsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, sem verið hefur drif- krafturinn í að koma upp sýningunni. Hún tók við safninu árið 2012 og segist þá hafa fundið fyrir vænting- um um að safnið setti upp sýningu sem gæti orðið áhugaverður áfanga- staður. „Rannsóknir og reynslan sýnir að ferðamenn koma fyrst og fremst til Íslands að skoða íslenska náttúru og hreindýrin eru eitt af sérkennum náttúru Austurlands, enda lifa þau ekki villt annars staðar hér á landi. Mér þótti því áhugavert að safna saman upplýsingum um lífshætti þessara dýra og sögu þeirra á Aust- urlandi og gera þær aðgengilegar í formi sýningar. Eftir að Náttúrustofa Austurlands hafði samþykkt að taka þátt í sýningarverkefninu og Vinir Vatnajökuls höfðu veitt því rausnar- legan styrk varð ekki aftur snúið. Næst var að afla viðbótarfjármagns, fá sýningarhönnuð og hefjast handa.“ Unnið var að sýningargerðinni í tvö ár og sýningin opnaði um miðj- an júní. Fjölmargir lögðu verkinu lið með heimildir og muni og um sýningarhönnun sá Björn G. Björns- son. Sýningin endurspeglar á ýmsan hátt þau áhrif sem dýrin hafa haft á Austurland. Eitt svæðið er til dæmis helgað rannsóknum og eftirliti Nátt- úrustofu Austurlands með stofnin- um en annað munum sem tengjast dýrunum en þar gefur að líta hönn- unar- og handverksvörur úr skinni og hornum. Dýrmætar frásagnir um hreindýraveiðar Aldrei varð af því að hér á landi kæmist á hreindýrabúskapur, eins og markmiðið með hreindýrainn- flutningi upphaflega var. Hér bjuggu því engir með tamin dýr eða hálf- villtar hjarðir líkt og tíðkaðist meðal hreindýrabænda og hirðingja á þeim slóðum sem íslensku hreindýrin eiga rætur að rekja til. Á Íslandi var farin sú leið að veiða villt hreindýr, frá og með að menn fóru að geta átt byssur á síðari hluta 19. aldar. Til er allnokkur íslenskur sagnaarfur um hreindýraveiðar og eru sýnis- horn slíkra sagna frá veiðislóðum á Austurlandi á hreindýrasýningunni. Í sögu sambúðar manna og hreindýra á Austurlandi eru margar þekktar hreindýraskyttur og er Elías Jóns- son bóndi á Aðalbóli í Hrafnkelsdal líklega meðal þeirra þjóðþekktustu í kringum 1900. „Hann þekkti vel öræfin og lífs- hætti hreindýranna og sögur fóru af færni hans við veiðar og úthaldi við að koma bráðinni úr óbyggðum til bæjar. Það þurfti þrek og skynsemi til að hreindýraveiði tækist giftu- samlega fyrir tíma vélvæðingar og nútímaskotvopna en það þurfti líka að þekkja vel öræfalandslagið, veð- urfar og háttu hreindýranna. Veiði- sögurnar eru þannig vitnisburður um sambúð manns og náttúru, sem heimildir um náttúrulæsi, lífsbaráttu og lífsviðhorf.“ Fjársjóður í myndum En meðan sumir veiða dýrin með byssum kjósa aðrir að fanga þau með myndavélum. Ljósmyndir Skarp- héðins G. Þórissonar, líffræðings hjá Náttúrustofu Austurlands, leika stórt hlutverk í sýningunni og líklega má segja að slíkt úrval myndefnis af hreindýrum á Íslandi sé ekki á boð- stólum utan Austurlandsfjórðungs enn sem komið er. „Það hafa engir getað komist jafn nálægt dýrunum og myndað þau árið um kring í þeirra árstíðabundnu nátt- úrulegu aðstæðum, líkt og Skarphéðinn hefur gert árum saman í starfi sínu við hreindýrarannsóknir og með því gert okkur hinum kleyft að fá að líta þessi föngulegu styggu dýr í gegnum myndavélarlinsuna sína,“ segir Unn- ur Birna. Eins gefur að líta myndir úr fleiri áttum sem fengnar voru á sýninguna. „Það er til fjársjóður af gömlum ljósmyndum, meðal annars frá veiðum, sem ekki hafa verið okk- ur öllum sýnilegar. Þær eru merki- legur vitnisburður um veiðiaðferðir og búnað fyrr og nú og þróunina í því allt frá fyrir 1900 til þessa dags.“ Viðburður þegar hreindýrin sjást Saga hreindýra á Íslandi snýst mik- ið um veiðar, iðkun þeirra og sögur Hreindýrin á Austurlandi Hreindýrin voru kartöflur á fjórum fótum

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.