Austurglugginn - 08.03.2007, Side 10
10 AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 8. mars
Samgöngunefnd Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi (SASSA)
hefur sent frá sér umsagnir vegna
tillögu til þingsályktunar um
samgönguáætlun árin 2007-2010-
2018.
Athugasemdirnar
eru eftirfarandi:
a) Vegamál
SASSA fagnar þeim áföngum í
vegabótum á Austurlandi sem inni
á áætluninni eru, en vill jafnframt
benda á og mótmæla að ekki er
áætlað neitt ijármagn í heilsársveg
um Öxi.
Þá eru áætlanir um fækkun ein-
breiðra brúa of seint inni á áætl-
uninni og einnig er með öllu
óásættanlegt að þjóðvegur 1 sé
ekki kláraður á fyrsta tímabili áætl-
unarinnar. Þykir SASSA að þessi
atriði ættu að fá meira vægi í fyrsta
áfanga áætlunarinnar og vill benda
á margítrekaðar samþykktir SSA
um samgöngumál í því sambandi.
Auk þess bendum við á óviðunandi
ástand vega til Borgaríjarðar-eystri
og Mjóatjarðar, sem þurfa meira
fjármagn fyrr á áætluninni.
Auknir þungaflutningar á þjóðveg-
unum hafa rýrt umferðaröryggi og
m.a. þess vegna þarf að setja aukið
fjármagn í þjóðvegina til að bæta
það.
Leiðrétting
I frétt frá íbúafundi á Eiðum
í síðasta blaði gætir smá mis-
skilnings. Þar segir að ekkert
af framkvæmdum sem dreif-
býlis og hálendisnefnd Fljóts-
dalshéraðs þrýsti á um svo sem
veginn til Borgarfjarðar, út
Hlíð, upp Fell og vegna þunga-
flutninga frá Litla-Bakka sé á
samgönguáætlun til „2018”,
en á að sjálfsögðu að vera til
2011, nema kannski vegurinn
upp Fell að einhverju leiti.
Á tímabilinu frá 2011 - 2014
er reiknað með 200 millj-
ónum í Borgarfjarðarveg og á
tímabilinu frá 2015 - 2018 er
reiknað með 860 milljónum.
Fjárveitingar til tengivega
mun hækka þó nokkuð frá og
með 2008 svo meira verður til
ráðstöfunar.
SigAð
SASSA um samgönguáætlun
Meira fyrr
b) Jarðgöng
í jarðgangamálum vill SASSA lýsa
yfir ánægju sinni með þá áfanga sem
þar eru inni, en vill jafnframt benda
á að margítrekað hefur verið ályktað
um það á vettvangi SSA að næstu
jarðgöng á Austurlandi eigi að vera
Norðljarðargöng annars vegar og
Vopnafjarðargöng hins vegar. Þykir
það því skjóta skökku við að nú hafi
Vopnafjarðargöngum verið ýtt út af
áætlun, virðist því sem vettvangur
sá sem sveitarstjómarmenn á Aust-
urlandi hafi til að leggja áherslur á
forgang í samgöngum, sé virtur að
vettugi þegar á hólminn er komið.
Tenging Vopnafjarðar við Hérað
með umræddum jarðgöngum hefur
byltingarkennd áhrif á svæðin
beggj a vegna Helli sheiðar og að mati
Byggðastofnunar eina ásættanlega
leiðin til að rjúfa vetrareinangrun
svæðisins norðan Hellisheiðar.
Göng af þessum toga eru lykilatriði
til að ná þeim megin markmiðum
samgönguáætlunar um að bæta
umferðaröryggi, stytta leiðir og hafa
jákvæð áhrif á byggða-þróun. Með
slíkum göngum myndi leiðin frá
Vopnafirði til Egilsstaða styttast um
50 km, miðað við að fara svokallaða
Háreksstaðaleið og jafnframt verða
öll á láglendi.
SASSA vill einnig koma því á
framfæri að það hafi verið skiln-
ingur sveitarstjómarmanna á Aust-
urlandi, að Lónsheiðargöng væru
sértæk aðgerð og staða þeirra nú á
samgönguáætlun ætti ekki að hafa
áhrif á aðrar framkvæmdir í fjórð-
ungnum.
SASSA fagnar því að fjármagn
til rannsókna á svokölluðum mið-
fjarðagöngum er komin inn á
áætlun. Finna þarf leiðir til að flýta
rannsóknarferlinu. Meðal annars
má benda á nauðsyn þess að tryggja
sem íyrst ömggar heilsárssam-
göngur með jarðgöngum til og frá
Seyðisfírði (um Seyðisfjarðarhöfn)
sem er eina „vegtenging“ landsins
til Evrópu og hefur verið það allar
götur frá árinu 1975. Núverandi
ástand hamlar mikið vexti og við-
gangi kaupstaðarins.
c) Flugmál
SASSA fagnar því að Vopnaljarð-
arflugvöllur sé nú komin inn í
grunnetið, og að stækkun húsnæðis
og flugvallar á Egilsstöðum sé þar
inni einnig. Engu að síður er ljóst
að ekkert ijármagn er áætlað í flug-
vellina á Homafírði og Vopnafírði
og er það með öllu óásættanlegt í
ljósi þess mikilvæga hlutverks sem
þessir flugvellir gegna.
Lenging flugbrautar á Egilsstaða-
flugvelli þarf að koma fyrr inn í
áætlunina vegna hlutverks hans
sem varaflugvallar til eflingar flug-
öryggis í landinu. Því þarf jafnframt
að fylgja áætlun um veg um Egils-
staðanes.
d) Fjarskiptamál
SASSA vill að allir vegir að og á
milli þéttbýlisstaða á Austurlandi
verði nú þegar settir í GSM
samband, og vill benda á að stórir
hlutar þjóðvegar 1, em ekki með
samband og einnig fleiri vegir og
má þar nefna Vopnafjarðarheiði,
Vatnsskarð, Mjóafjarðarheiði,
Fagradal, Suðurljarðaveg, Skriðdal
og Öxi.
e) Hafnarmál
SASSA vill að 24. grein hafnarlaga
verði áfram inni og að ekki einung-
is verði tíminn framlengdur, heldur
einnig að aukið fjármagn komi inní
þennan málaflokk.
Einnig lýsir SASSA furðu sinni
á því að ekki er áætlað fjármagn
til endurbóta á ferjuaðstöðu við
Seyðisfjarðarhöfn. Þar er aðstaða
til tollskoðunar óásættanleg eins
og margoft hefur komið fram og
þá vantar þar aðstöðu fyrir frihöfn.
Þar sem Seyðisfjarðarhöfn er í
raun eina „vegtenging“ Islands við
Evrópu, eins og fram hefur komið
er það með öllu ófullnægjandi.
Ennfremur vill stjóm SSA vísa til
innsendra umsagna aðildarsveit-
arfélaga SSA á Austurlandi og áð-
ursenda samþykkt aðalfundar SSA
um samgöngumál frá aðalfundi
SSA á Homafirði 6.-7. okt 2006.
Yfirlýsing
Undanfarið hefur flogið fyrir að
ég myndi taka sæti á framboðslista
Frjálslynda flokksins í NA-kjör-
dæmi vegna Alþingiskosninga á
vori komanda.
Ég get staðfest að ég hef rætt við
ýmsa af talsmönnum flokksins í
kjördæminu og einnig formann
hans. Hef ég og ljáð máls á því að
taka sæti á listanum, en ekki þó í
neinu “lykilhlutverki”, þar sem
ég hef talið mig eiga fullt í fangi
með að sinna starfi mínu fyrir
Djúpavogshrepp á þeim erfíðu og
annasömu tímum, sem nú eru hér
uppi.
Undanfarið og raunar lengi hef
ég kynnt mér áherzlur Frjálslynda
flokksins, m.a. í fískveiðistjórn-
unarmálum. Á fundum með
Sigurjóni Þórðarsyni, verðandi
leiðtoga flokksins í kjördæminu,
hefur sú trú mín orðið enn sterkari
að núverandi kerfí sé vægast sagt
langt frá því að vera gallalaust.
Gleggsta dæmið um það er, að þrátt
fyrir að lengi hafí verið skorið við
nögl við úthlutun veiðiheimilda,
sjái þess óvíða stað að fískistofnar
hafi braggazt að sama skapi.
Yfirlýsing frá Birni Hafþór Guðmundssyni
Ég hef horft upp á neikvæðar t
afleiðingar “kerfisins” á tveim i
stöðum, sem mér eru mjög kærir, c
þ.e. á Stöðvarfirði og Djúpavogi. I
Ég tel því að þarft sé, að rödd s
flokksins m.a. í þessum málaflokki i
heyrist í kjördæminu. £
Af persónulegum ástæðum hef ég 1
þrátt fyrir framangreint, ákveðið að 1
gefa ekki kost á mér á umræddan
framboðslista vegna Alþingiskosn-
inganna. Þær ástæður get ég ekki
og þarf ekki að skýra frekar.
Ég undirstrika, að ástæðumar
snúa að engan hátt að samskiptum
mínum við Sigurjón Þórðarson eða
aðra talsmenn flokksins og óska ég
honum alls hins bezta í komandi
baráttu.
Bj. Hajþór Guðmundsson