Kosningablað Alþýðulistans - 30.01.1938, Blaðsíða 3
KOSNIGABLAÐ
3
skemmtanir, og með því komið í
veg íyrir það, í bráðina, að róm-
verski háaðallinn yrði sviítur völd-
um. Með þessum dæmum hyggst
barnafræðarinn að sanna bardaga-
aðferðir okkar A-lista manna.
En með leyfi að spyrja: Var
rússneski glæframaðurinn Potemkin
alþýðuforingi? Var það alþýðan
rómverska, sem bauð upp á leiki
•og brauð ? Nei. Potemkin var hátt-
settur íhaldsmaðui', illræmdur af
allri alþýðu. Og Rómverjum var
ekki stjórnað illa af alþýðunni,
heldur af íhaldi þeirra tíma, sem
barðist fyrir því sama og íhalds-
menn gera nú, að yfirráð atvinnu
og fjármagns væri í höndum fá-
mennrar klíku, sem gæti Ieikið sér
að velferð alþýðunnar að eigin vild.
»Deildu og drottnaðu« var þeirra
kjörorð. Á meðan alþýðan þekkir
ekki mátt samtakanna, lifir íhaldíð
hátt á hennar kostnað. Það er eng-
in tilviljun, að dæmin, sem tekin
eru í Siglfirðing, og minnst er á
hér að framan, eru af íhaldsmönn-
um, því að þeir hafa frá fyrstu tíð
verið andstæðingar og kúgarar
allrar alþýðu.
Sameiníng alþýðunnar við þess-
ar kosningar er þyrnir í augum í-
haldsíns. Það er ekki ykkar vegna,
alþýðmenn og alþýðukonnr, að
þeir eru hræddir. Ykkar hagsmun-
ir eru ekki þeirra hagsmunir, held-
ur hið gagnstæða.
Standið því með ykkar eigin
stétt.
Notið vcpn ykkar — kjörseðil-
inn — rétt.
K J Ó SI Ð
A - L 1 S T Á N N.
ATKVÆÐ ASEÐILL
við atkvæðagreiðsiu um sérstakan bæjarstjóra.
Viljii þér fá sérstakan bæjarstjéra?
3A
NE8
Eftir að kjósandinn hefir greitt atkvæði
með því að fá sérstakan bæjarstjóra lítur
seðillinn þannig út:
ATKVÆÐ ASEÐILL
við atkvæðagreiðslu um sérsíakan bæjarstjóra.
¥iijið þér fá sérstakan bæjarstjóra?
Allir kjósendur á Siglufirði setja krossinn
fyrir framan 3á-ið.
Á föstudagskvöldið sagði bæjar-
fógetinn um hina smánarlágu leigu
á eignum hafnarsjóðs til Þormóðs
Eyjólfssonar sem samþykkt var
i hafnarnefnd og bæjarstjórn árið
1924.
»Ef eg hefði ekki greitt at-
kvæði á móti þessu, þá hefði
eg' svikið bæinn«.
Með þessum ummælum fullyrðir
bæjarfógetinn, að þeir sem greiddu
atkvæði með þessu, hafi svikið
bæinn.
Eji hverjir eru nú í kjöri við
þessar kosningar, sem sviku bæinn,
að dómi bæjarfógetans, árið 1924?
Guðmundur Hafíiðason og svo
höfuðsmaðurinn sjálfur Þormðður
Eyjóifsson.
Burt með þá báða. Al-
þýðan viíl ekki haía svikara
í bæjarstjórninni, jafnvei
ekki þött þelr séu inn-
fæddir Siglfirðingar.
Og Framsóknarmennirnir, þeir
þekkja af eigin reynslu, hvernig
bezt er að losna við óvinsæla for-
ingja, sem ofan á allt annað eru
íhaldsmenn. Þeir strika þá bara út,
eins og þeir gerðu á Akureyri
1934 við Brynleif Tobíasson. Þann-
ig munu einhverjir frjálslyndir
Framsóknarmenn fara með Þormóð
við þessar kosningar, en flestir
kjósa A-listann. Með því er yfir-
gangi hans og flokkssvíkum bezt
svarað.
Við skulum hiýða dómi bæjar-
fógetans um hans eigin flokks-
mann — svikarann við bæjarfé-
lagið. — Þeir eiga ekkert erindi í
bæjarstjórnina, neraá til þess að
auðga sig sjálfa.
BURT MEÐ P Á !
Með sigri A-listans eru vígtenn-