Skíðablaðið - 13.12.1941, Page 1
Aulcablaf}.
4. árg
ÚTGEFANDl: SKÍÐANEFND í. R. A,
Akureyri, 13. desember 1940
1, tbi.
Glervörur. Viljið þér neyta matar yðar, kaffis eða annara hressinga á kyrlátum og vistlegum veitinga- stað, ættuð þér að líta inn hjá oss
í næstu viku fáum við mikið úrval af glærum og mislitum glervotum.
Kaupfelag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeild. Gildaskáli ^
Um snjó og snjóle/si.
Öskum viðskiftavinum
vorum
G leð ilegr'a jóla
og farsœls komandi árs.
Axei Krisfjánsson h.J.
Gleðileg jól!
Skóverzlun
M. H. Lyngdal.
Óska öllum viðskiptavin-
um mínum
gleð ilegr a jóla
og farsœls komandi árs
með þökk fyrvr viðskiptin
á liðnu ári.
Stefán Jónsson,
klæðskeri — Akureyri
Síðastliðinn vetur var, eins og
menn muna, með afbrigðum snjó-
léttur, má telja, að það hafi aðeins
verið um 3 vikur, sem snjór lá hér
á láglendi. Fannst þá mörgum ó-
vænlega horfa fyrir skíðaíþrótt-
inni, og óneitanlega hafði snjó-
leysi þetta ýms truflandi áhrif á
skíðalífið í landinu; þannig varð
t. d.'að aflýsa, vegna snjóleysis,
Landsmóti skíðamanna, sem ráð-
gert var að yrði í Reykjavík. Hér
á Akureyri varð þessara truflana
miklu síður vart, að vísu varð aö
fella niður sum atriði eins og
stökk og brun, en að öðru leyti
fór Skíðamót Akureyrar 1941
fram eins og ekkert hefði í skor-
izt, og voru ágætar keppnir haldn-
ar t. d, í svigi. Áhorfendur voru
af eðlilegum ástæðum miklu færri
en ella hefði orðið, þar sem
keppnin var haldin uppi í Akur-
eyrarfjalli. Mest var þó um það
vert, að skíðamennirnir voru í
góðri þjálfun og það þótt þeir
ættu nú miklu langsóttara í snjó-
inn en áður, fór þeim þar líkt og
spámanninum er fjallið ekki kom
til hans, þá kom hann til fjalls-
ins. Skíðamenn vorir hefðu í
fyrra reynzt öðrum skíðamönnum
landsins skeinuhættir, hefði þeim
gefizt kostur á að keppa við þá,
en af því gat ekki orðið. Nú líður
að því að tíma bært verði að
hugsa til þjálfunar undir mót þau,
sem ráðgerð eru á þessum vetri.
Enn er ekki afráðið hvar lands-
mót skíðamanna verður haldið nú
í vetur, í. S. í. ákveður það, en
Skíðanefnd í. R. A. hefir fyrir sitt
leyti sótt um að það yrði á Akur-
eyri. Eitt er þó afráðið, mótið
verður ekki láið falla niður, held-
ur verður það, — ef snjóleysi
hamlar á þeim stað, sem ákveð-
inn verður, — flutt til staðar, sem
hentugur þykir og nægur snjór er
á. Það er út af fyrir sig ekkert
aðalatriði að margir áhorfendur
komi á mótin, auðvitað er það á-
kaflega æskilegt íþróttinni til út-
breiðslu óg eflingar, Aðalatriðið
er, að hinn íþróttalegi grundvöll-
ur verði tryggður, efldur og
hækkaður. Síðastliðinn vetur
sýndu skíðamenn vorir algerlega
réttan skilning á þessu og stund-
uðu íþrótt sína af kappi, enda
mun skíðaíþróttin vera sú íþrótt,
sem með mestum blóma stendur
hér á Akureyri.
Eitt er og víst, að hvað, sern snjó
eða snjóleysi á láglendi líður, þá
munu skíðamennirnir ótrauðir
leita til fjallanna og fara þar á
skíðum eins fljótt og færi gefst.
Þangað sækja þeir lífsþrótt og
þrek, víðsýni og glaðar stundir.
Skíðamenn!
Kynnist norsku hetjunni Ro-
ald Amundsen með því að
kaupa og lesa bók hans
Sókn mín til
heimsskautanna,
í prýðilegri þýðingu Jóns Ey-
þórssonar, veðurfræðings.
Engin bók er heppilegri til
jólagjafa.
E D D A Akureyri.
Sími 334.
TILKYNNING
frá »Skíðaklúbb« í. R. A.
Þeir félagar, sem ekki hafa enn
tekið félagakort síri, vitji þeirra
sem fyrst á klæðskeraverkstæði
Braga Brynjólfssonar, Brekku-
götu 5. Ennfremur er þar hægt að
bæta við nokkrum nýjum félög-
um. — Um aðra skemmtun
„klúbbsins", sem haldin verður
skömmu eftir áramót, verður
nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Vöruhús Akureyrar
Kaupir:
Vefnaðarvörur
Smávörur
Matvörur
Ritföng
Búsáhöld
Tóbaksvörur
Öl, gosdrykki o. fl.
Selur:
un
Ullartuskur
Gærur
Ullarvettlinga
Ullarleista o. fl.
Prentverk
Odds Björnssonar
Símar 45 og 370 — Akureyri.
Fullkomnasica og stærsta
prentsmiðja. landsins
utan ReukjavlKur.