Fréttamolinn : óháð fréttablað - 29.01.1985, Page 4
Fréttamolinn
Jón H. Sigurmundsson:
íþrótta og æskulýðsmál
Það voru undirrituðum mik-
il gleðitíðindi þegar þeir Hjör-
leifur Brynjólfsson og Einar
Gíslason komu til mín um
miðjan janúar þeirra erinda
að biðja um grein í bæjarblað,
sem þeir hugðust hleypa af
stokkunum. Erbæjarblað ekki
einmitt eitt af því sem okkur
vantar hér til að lífga upp á
bæjarlífið. Ég óska þeim til
hamingju með framtakið og
vona að þeim gangi vel.
Meiningin var að ég skrifaði
hér nokkur orð um
íþrótta- og æskulýðsmál en
þau eru nú mjög í brenni-
depli. Unglingarnir eru að
leita sér að stað sem þau geta
hittst og verið saman á
kvöldin, spilað plötur, rabbað
saman, tekið í spil, teflt, farið
í bobb, borðtennis og yfirleitt
stundað sín áhugamál, þetta
yrði vísir að félagsmiðstöð.
Þessi málaleitan unglinganna
hefur fengið góðar undirtektir,
en ekkert heppilegt húsnæði
er fyrir hendi, þó hefur orðið
að ráði að Kiwanisklúbburinn
Ölver ætlar að lána þeim hús
sitt eitt kvöld í viku til reynslu.
Öll ábyrgð verður í höndum
unglinganna sjálfra og verður
aðeins haft eftirlit með þeim,
vonandi er að þessi starfsemi
gefi góða raun, því þá gæti hún
orðið vísir að einhverju meiru.
Ungmennafélagið Þór er 25
ára nú á þessu ári og er hug-
myndin að reyna að gera
eitthvað sérstakt í tilefni af
því. Ekki er enn afráðið hvað
gert verður og verður það að
ráðast af fjármálum.
Upp hefur komið sú hug-
mynd að halda afmælishóf og
reyna að ná þar saman sem
flestum stofnendum félagsins.
Starf félagsins hefur verið
með nokkuð hefðbundnum
hætti nú undanfarin ár þó
hefur smá aukist fjölbreytni í
þeim greinum sem æfðar eru,
má þar nefna sund, kvennafót-
bolta og einn félagi hefur
keppt í lyftingum fyrir félagið.
Árangur hefur verið upp og
ofan, bestur árangur hefur
náðst í sundinu þar sem við
höfum eignast Islandsmeist-
ara, íslandsmet og landsliðs-
fólk, þar eru fremst í flokki
systkinin Magnús, Bryndís,
Hugrún og Arnar. Þökk sé
þjálfaranum Hrafnhildi
Guðmundsdóttur fyrir hennar
framlag í þessum málum.
Til að framgangur sund-
deildarinnar yrði enn meiri
vantar fleiri krakka til að not-
færa sér ágæta aðstöðu og
frábæra tilsögn Hrafnhildar.
Knattspyrnuþjálfun í sumar
var í höndum þriggja manna.
Stefán Garðarsson stjórnaði
meistaraflokk, þeir fóru nokk-
uð seint af stað en með miklum
krafti og áhuga, sem því miður
dvínaði þegar á leið sumarið,
árangur var viðunandi en bet-
ur má ef duga skal, gull vannst
þó í HSK keppninni.
Hólmar Sigþórsson og
undirritaður sáu um þjálfun
og keppni hjá kvenfólkinu og
3. 4. 5. og 6. flokki. Allir
kepptu þessir flokkar í HSK
mótinu og 3. og 4. flokkur í
íslandsmótinu. Konurnar
unnu til gullverðlauna í HSK
mótinu, 3. flokkur fékk silfur
og 4. og 6. flokkur brons.
Þetta verður að teljast við-
unandi árangur, en þyrfti þó
að vera betri einkum hjá þeim
yngri.
I sumar var 2ja mánaða
íþrótta og leikja námskeið fyr-
ir börn og ungíinga. þátttaka í
þessu námskeiði var mjög góð
eða yfir 80 börn og unglingar.
Endað var á frjálsíþróttamóti
og diskóteki, sem mæltist mjög
vel fyrir. Vonandi er að þessi
starfsemi geti orðið árviss at-
burður. Ölfushreppur styrkti
þetta starf mjög vel eins og
aðra starfsemi félagsins, þökk
sé þeim fyrir þennan skilning
sem að þeir hafa sýnt þessari
starfsemi.
f vetur hefur Hólmar Sig-
þórsson, verið með þrek og
knattspyrnuæfingar í félags-
heimilinu, sem hafa verið vel
sóttar. Einn galli er þó á gjöf
Njarðar, það er húsnæðið, og
aðstaðan í félagsheimilinu er
alls ófullnægjandi, lá við að
banna yrði alla notkun bolta í
húsinu þegar einangrun var
sett í loftið. Segja má að
íþróttahús þurfi sem fyrst að
líta dagsins ljós, enginn vafi er
á að öll þessi starfsemi mun
vaxa og dafna með tilkomu
þess.
Mjög brýnt er nú orðið að
ganga almennilega frá gras-
vellinum og koma þar upp
einhverri aðstöðu fyrir frjálsar
íþróttir, sem því miður hafa átt
undir högg að sækja hjá okkur.
Allt kostar þetta mikla pen-
inga sem aldrei er til of mikið
af og fjöldi annara mjög
brýnna verkefna bíða úrlausn-
ar, allt er þetta spurning um
forgangsröðun verkefna.
Þar sem ég er farin að tala
um þeninga er ekki úr vegi að
minnast lítilega á aðal höfuð-
verk ungmennafélagsins, þ.e.
peningaleysið. Á þessu ný-
liðna ári hefur tekist að
minnka hallarekstur félagsins
nokkuð, en betur má ef duga
skal.
Sem dæmi um stöðuna má
nefna að sumir þjálfarar fé-
lagsins hafa ekki fengið greidd
laun sín frá því í sumar, sem
þeir þó sannarlega hafa unnið
fyrir, því ásamt því að þjálfa
hafa þeir orðið að sjá um
fjáraflanir og allar fram-
kvæmdir á kappleikjum ásamt
öðru sem þurft hefur að gera.
Mikil nauðsyn er nú á að
enn fleiri verði virkir í starfi
félagsins, áhuga almennings
þarf að stór auka.
Stöndum nú saman og stór
aukum starf ungmennafélags-
ins.
Jón H. Sigurmundsson.
Bryndís Ólafsdóttir, sunddeild U.M.F. Þórs. íslandsmet-
hafi í 100 m skriðsundi og 100 m. flugsundi.
VERSLUNIN HILDUR
Selvogsbraut 41 - Þorlákshöfn
Nú er þorrinn kominn
Hjá okkur fæst allur þorramatur í trogið, allt
sem með þarf á þorrablótið, ennfremur okkar
vinsælu þorrabakkar með 15 tegundum.
Úrval í kjötvörum, fiski og öðrum matvörum.
Kíkið á ódýru fötin í fatahorninu.
VIDEÓLEIGA: Myndbönd, myndbandstæki,
ný tt efni vikulega.
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL: 22.00.
VERIÐ VELKOMIN!
VERSLUNIN HILDUR
Selvogsbraut 41 - Þorlákshöfn
Símar 3681 & 3861. Símar
kvöld og helgarsölu 3681
Unubakki 11 Þorlákshöfn
Vélsmiðja Þorlákshafnar hf.
Heimasímar: 3856 & 3782
Tökum að okkur viðhald og nýsmíði fyrir
útgerð og fiskvinnslu.
Rennismíði, vélaviðgerðir.
Útbúum háþrýstislöngur fyrir vökva-
kerfi.
Umboð fyrir loft- og vökvastýribúnað frá
Landvélum h.f.
Byggingafélagið STOÐ s.f.
Tökum að okkur stór og smá verkefni á
sviði byggingaiðnaðar.
Gerum föst tilboð ef óskað er.
Höfum til sölu raðhús í smíðum: 125
fermetra [ 42 fermetra bílskúr.
Einnig úrval teikninga af timburhúsum.