Sambandstíðindi - 27.10.1970, Side 1
sambands
ÚTG. SAMB. ÍSL BANKAM.
LAUGAVEGI 103,
SÍMI 26252
TÍÐINDI
Nr. 1.1.
Reykjavík, 27. oktober 1970.
RRÍCF GETUR ORÐIÐ ÞUNGT 'A METUNUM - SEGÐU ALIT ÞITT.
A stjórnarfundi norræna bankamannasambandsins, sem haldinn var
£ Reykjavík dagana 23. og 24. águst sl. , var samþykkt að efna til norrænnar
ritgerðarsamkeppni innan bankamannasamtakanna, þar sem þátttakendur, í
hæfilega löngu máli, leituðust við að svara neðangreindum spurningum:
A. Hvers vegna valdir þú þér bankastörf að atvinnu?
Hefur starfið samsvarað þeim vonum, sem þú gerðir
þér um það í upphafi ?
B. Til hvers ætlast þú af samtökum þinum hin næstu 10 árin?
Veitt verða verðlaun fyrir beztu ritgerðirnar í hverju landi fyrir sig.
Sá þátttakandi, sem fyrstu verðlaun hlýtur, fær í fyrsta lagi verð-
launagrip frá samtökunum, auk þess sem honum er boðið á aðalfund norræna
bankamannasambandsins 1971 sér að kostnaðarlausu.
2. verðlaun verða gjafakort að verðmæti kr. 5.000,00
3. verðlaun verða gjafakort að verðmæti kr. 2.500,00
4.-10. verðlaun verða gjafakort að verðmæti kr. 1.000,00
Hverjum þátttakanda í samkeppni þessari ber að velja sér merki eða
dulnefni, er skrifað sé ofan við grein hans eða greinar, en auk þess sé það skrif-
að utan á umslag, er nælt sé við greinina. 1 umslagið ber svo að leggja miða með
nafni höfundar og heimilisfangi.
Dómnefnd hefur verið valin af sambandsstjórn, en í henni eiga sæti:
Finnbogi Guðmundsson, landsbókavörður,
Indriði G. Þorsteins son, rithöfundur,
Hannes Páisson, formaður S. í. B.
öllum félagsmönnum samtakanna er heimil þátttaka (engin aldurstak-
mörk).
Ritgerðum sé skilað á skrifstofu S.Í.B. að Laugavegi 103, Reykjavfk,
í siðasta lagi hinn 15. janúar 1971.
Urslit keppninnar verða kunngerð af sambandinu i marzmánuði 1971.