Sambandstíðindi - 24.11.1980, Blaðsíða 4
Verkfallsnefnd
Á fundi stjórnar og samninga-
nefndar SÍB, varastjórnar og
formanna starfsmannafélaganna
17. nóvember 1980, þar sem
samþykkt var aö boöa til verk-
falls SlB frá og með 3. desem-
ber 1980, var samþykkt eftir-
farandi tillaga um verkfalls-
nefnd:
Fundurinn samþykkir aö koma á
fót verkfallsnefnd, sem hafi
meö hönum framkvæmd verkfalls.
Nefndin tekur allar nauðsyn-
legar ákvarðanir í ágreinings-
málum og um vafaatriði, sem
upp kunna að koma við fram-
kvæmd verkfallsins.
Nefndin heldur gerðarbók og
skilar stjórn SÍB skýrslu dag-
lega. Orskurðir nefndarinnar
eru endanlegir, nema stjórn
SÍB geri þar á breytingar á
næsta stjórnarfundi eftir úr-
skurð verkfallsnefndar.
I verkfallsnefnd skal eiga
sæti einn fulltrúi frá hverju
starfsmannafélagi, eftir til-
nefningu þess, og einn til
vara. Verkfallsnefnd skal
kjósa úr sínum hópi þriggja
manna framkvæmdastjórn.
Starfsmannafélögin brugðu
skjótt við og tilnefndu full-
trúa í verkfallsnefndina sam-
dægurs. Nefndin kom saman til
fundar á fimmtudagskvöld 20.
nóvember og kaus sér þriggja
manna framkvæmdastjórn. Hana
skipa: Jón Ivarsson, Lands-
banka, Unnur Hauksdóttir,
Alþýðubanka og Gísli Jafets-
son, Reiknistofu bankanna.
Framkvæmdastjórnin er þegar
byrjuð að starfa og mun næstu
daga skipuleggja í samvinnu
við skrifstofu SlB þau marg-
víslegu verkefni, sem verk-
fallsnefnd mun standa frammi
fyrir í verkfalli , komi til
þess í desember.
Verkfallssjóður
Með aðild sinni að NBU ,
Norræna bankamannasambandinu,
hefur Samband íslenskra
bankamanna aðgang að sameigin-
legum verkfallssjóði norrænu
bankamannasambandanna, sem nú
er að upphæð 175 milljónir
sænskra króna. Samböndin hafa
öll undirritað gagnkvæma ábyrgð-
arskuldbindingu vegna aðstoðar
I vinnudeilum, sem bitna á
aðildarsamböndum NBU.
Ef til verkfalls SÍB kemur í
desember, öðlast sambandið
sjálfkrafa rétt til framlags
úr sjóðnum, að upphæð 10
milljónir sænskra króna strax,
sem sambandið getur notað til
styrkja og greiðslna á kostnaði
vegna verkfalls.
Þá á SlB nokkra upphæð sjálft
í verkfallssjóði, sem gripið
verður til í desember, ef þörf
krefur.
Á síðasta þingi SÍB var samþykkt
reglugerð um kjaradeilusjóð
sambandsins. Tilgangur sjóðsins
er skilgreindur þannig í reglu-
gerðinni:
A) Að bæta félagsmönnum SÍB
eftir því sem við verður komið
á hverjum tíma tekjutap vegna
kjaradeilna SÍB við atvinnurek-
endur.
B) Heimilt er að greiða kostn-
að tengdan kjaradeilum, svo sem
verkfallsvörslu.
Stjórn sjóðsins skipa eftir-
taldir: Hulda Ottesen, Ll.,
Guðmundur Gíslason, ÖÍ., og
Pálmi Gíslason, Sl.
Stjórn sjóðsins kom saman til
fundar 21. nóvember til þess
að ræða starf sitt I desember,
komi til verkfalls bankamanna.
Stjórnin mun á næstu dögum
ákveða nánar um starfsemi sína,
svo sem um úthlutunarreglur og
væntanlega beiðni um fjárfram-
lag úr sameiginlegum verkfalls-
sjóði norrænu bankamannasamband-
anna.