Sambandstíðindi - 03.06.1981, Qupperneq 3

Sambandstíðindi - 03.06.1981, Qupperneq 3
KÖNNUN SÍB VEGNA KJARAMÁLA Síðasta sambandsþing fól SlB að safna ákveðnum upplýsingum um kjör félagsmanna SÍB, vegna væn- tanlegrar kjarasamningagerðar. Því var leitað til allra trúnað- armanna SÍB og þeim falið að fylla út sérstakt eyðublað. Nokkur brögð hafa verið að því að félagsmenn hafi neitað að gefa umbeðnar upplýsingar. Að sjálf- sögðu er ekki hægt að neyða neinn til að gefa þessar upplýs- ingar. Hins vegar ber að harma þetta. Hér er ekki um hnýsni um persénulega hagi að ræða, heldur tilraun til að safna á eina hendi upplýsingum, sem eru émet- anlegar og raunar émissandi í kj arasamningaviðræðum. I viðræðum undanfarin ár hefur skortur á haldgéðum upplýsingum verið samninganefnd SÍB fjötur um fét. - Því er vonast til að menn bregðist vel við. NÁMSKEIÐ NBU í DANMÖRKU í 6 . tbl. Sambandstíðinda var auglýst eftir þátttöku í nám- skeiði NBU fyrir trúnaðarmenn, sem haldið verður í Danmörku 31. ágúst til 4. september f haust. Sex umséknir bárust. Stjérn SÍB ákvað á fundi hinn 6. maí að gefa þeim Guðbjörgu Gísladéttur, Landsbanka Islands, og Oddrúnu Jénasdéttur, Seðlabanka Islands kost á að sækja námskeiðið. Fulltrúi stjérnar SlB I nám- skeiðsstjérn verður Benedikt E. Guðbjartsson. FRÉTTIR FRÁ NORÐURLÖNDUM SVlÞJJÐ: Bankamenn voru I verk- fa11i í 3 daga í aprfl og að því búnu ték við yfirvinnubann. 16. maf tékust samningar, sem gilda frá 1. janúar 1981 í 2 ár. Þeir gera ráð fyrir 3.5% almenn- ri kauphækkun frá 1.1.1981 og 3% hækkun 1.1.1982, auk ýmissa annarra atriða. FINNLAND: I apríl tékust samn- ingar eftir erfiðar viðræður og á tímabili leit út fyrir verk- fall. Samningar til 3ja ára. Gert er ráð fyrir 17.75% almenn- ri kauphækkun fyrstu 2 árin, auk sömu hækkana og aðrir hépar kunna að semja um. NOREGUR : Samningar um kaupliði fra T. inaí á þessu ári eru laus- ir og samningar ekki tekist. Krafa er um 10% hækkun kaupliða. DANMÖRK: Samtök starfsmanna danskra sparisjéða gerðu sam- komulag 20. mars, eftir erfiðar samningaviðræður. Starfsmenn fá um 23% kauphækkun á næstu 2 árum. A méti kemur, að fallið er frá vísitölutryggingarkerfi þvf sem gilt hefur. Að auki náðust fram þýðingarmikil ákvæði um meðákvörð unarrétt vegna tasknivæðingar . Samtök danskra bankastarfsmanna gerðu samninga sem gera ráð fyrir gildandi vísitölutrygginga- kerfi áfram, eh hins vegar lægri grunnlaunahækkun en starfsmenn sparisjéðanna sömdu um. I heild er búist við að báðir þessir samningar gefi svipaðar hækkanir. Einnig gerðu danskir bankastarfs- menn mikilvæga samninga vegna tæknivæðingar. ^m—J

x

Sambandstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sambandstíðindi
https://timarit.is/publication/1703

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.