SÍB tíðindi - 07.10.1993, Síða 1
r
/
5\3
TIÐINDI
Útg.: Samband íslenskra bankamanna.
Tjarnargötu 14.
Pósthólf 488,121 Reykjavík.
Símar: 26944 og 26252. Telefax 21644.
Kennitala: 550269-7679.
24. árgangur
Fjórblööungur 4
7. október 1993
u.
I
z
LJ
d
Virðið starfsreglurnar
Að gefnu tilefni vill stjóm SÍB brýna fyrir
starfsfólki banka og sparisjóða að það kynni sér
vel og virði þær starfsreglur sem þeim ber að
fara eftir. Brot á þeim getur leitt til brottrekstrar
umsvifalaust.
Athygli er vakin á grein 12.4.2 í kjarasamn-
ingi: "Starfsmönnum er stranglega bannað að
skýra óviðkomandi frá málefnum bankans eða
nokkm, sem snertir viðskipti einstakra manna,
stofnana eða fyrirtækja við hann. Þagnarskyld-
an helst, þótt látið sé af starfi."
Auk hinna almennu vinnureglna í banka-
kerfinu, sem varða ofangreinda þagnarskyldu,
afgreiðslu sparisjóðsbóka, tékkameðferð
o.s.frv., geta bankamir skv. kjarasamningi sett
nánari starfsreglur fyrir starfsmenn sína. Leita
skal umsagnar stjómar SÍB, áður en þær taka
gildi. Á vinnureglum viðkomandi banka verða
allir starfsmenn að kunna skil.
Sérstök ástæða er til að minna bankamenn á
grein 11.2.4 í kjarasamningi, en hún hljóðar
svo: "Hafi starfsmaður brotið starfsreglur bank-
ans í verulegu atriði, má víkja honum úr starfi
fyrirvaralaust og fellur þá launagreiðsla niður
þegar í stað. Formanni hlutaðeigandi starfs-
mannafélags skal gefinn kostur á að fylgjast
með málsmeðferð."
Það ber því enn og aftur að vara starfsfólk
við hve alvarlegar afleiðingar það getur haft að
brjóta vinnureglur bankanna. En jafnframt er
nauðsynlegt að ítreka fyrir öllum að nýta þann
rétt sinn að kalla til formann starfsmannafé-
lagsins, ef eitthvað er borið á starfsmann um
brot í starfi.
Það að kalla til formann starfsmannafélags-
ins gildir líka um starfsmenn sem sagt er upp af
öðm tilefni. Grein 11.2.3 í kjarasamningi hljóð-
ar svo: "Starfsmanni, sem sagt er upp starfi,
skal veittur kostur á að tala sínu máli, áður en
lokaákvörðun um uppsögn er tekin. Formanni
viðkomandi starfsmannafélags skal gefinn
kostur á að fylgjast með málsmeðferð."
Hér á eftir skulu tilgreind tvö dæmi um upp-
sögn vegna brota í starfi:
DÆMII
Bankamaður hafði unnið 10 ár í banka. í
endurskoðun kom í ljós að hann hafði millifært
af reikningi bama sinna yfir á eigin reikning.
Millifærslumar vom framkvæmdar að beiðni
bamanna án þess þó að skrifleg heimild lægi
fyrir þessum millifærslum. Starfsmaðurinn
fékk áminningu þar sem hann hafði brotið
starfsreglur bankans.
Nokkmm mánuðum seinna bað starfsmað-
urinn um heimild á kreditkort sitt. Þegar hann
ætlaði að nota kortið þann sama dag kom í ljós
að ekki hafði verið sett heimild inn á kortið.
Þar sem sá starfsmaður sem sá um heimilda-
gjöf var í hlutastarfi og ekki hægt að ná til
hans, ákvað bankamaðurinn að setja sjálfur
heimildina inn á sitt eigið kort. Það er brot á
starfsreglum og því var honum vísað fyrirvara-
laust úr starfi og launagreiðsla felld niður þá
þegar.
í þessu máli "gleymdist" að láta formann
starfsmannafélagsins fylgjast með málsmeð-
ferð. Náðist því samkomulag við bankann um
að starfsmaðurinn fengi greidd laun á uppsagn-
arfresti. Á það ber þó að leggja áherslu, að ekki
var hægt að tryggja starfsmanninum endur-
ráðningu vegna þeirra mistaka að kalla for-
manninn ekki til.
DÆMIII
Bankagjaldkera sem unnið hafði 20 ár í
sama banka, þar af sem aðalféhirðir í útibúi í
10 ár og trúnaðarmaður starfsmanna í 5 ár, var
sagt upp störfum fyrirvaralaust, látinn afhenda
lykla sína og yfirgefa útibúið. í riftunarbréfi
segir: "Við skyndikönnun á sjóði kom í ljós al-
Umsjón: Baldur Óskarsson