SÍB tíðindi - 07.10.1993, Page 2

SÍB tíðindi - 07.10.1993, Page 2
varlegt brot yðar hvað varðar meðferð á fjár- munum bankans, þ.e. einkaafnot á sjóði og óheimil meðferð ávísana. Með vísan til greinar 11.2.4 í kjarasamningi bankamanna er yður hér með vikið úr starfl." Þessi fyrirvaralausa riftun kom gjaldkeran- um gjörsamlega í opna skjöldu og kannaðist hann ekki við þær ávirðingar sem honum voru gefnar að sök, enda hafði hann aldrei verið áminntur fyrir vanrækslu í starfi. Starfsmaðurinn fékk ekki að skýra mál sitt fyrr en tveimur mánuðum eftir uppsögnina. Hann taldi uppsögnina ólögmæta og mótmælti þeim ásökunum sem á hann voru bomar og óskaði eftir því að uppsögnin yrði dregin til baka, en á það var ekki fallist. í framhaldi af því stefndi hann bankanum til að greiða sér bætur. Mál bankans gegn starfsmanninum var byggt á hæstaréttardómi frá 1977. í honum felst m.a. að bankagjaldkeri megi ekki afgreiða sig sjálfnr. í dómsniðurstöðu imdirréttar segir að ekki hafi verið lögð fram ákæra á hendur banka- gjaldkeranum vegna meints fjárdráttarbrots og opinber rannsókn fór ekki fram á meintu broti gjaldkerans. Óumdeilt var að gjaldkerinn af- greiddi sig sjálfur. Ekki þótti þó sýnt fram á það af hálfu bankans að gjaldkerinn hefði gert það í auðgunarskyni. Ekki var heldur fallist á það að gjaldkerinn hafi með athöfnum sínum reynt að hylja ummerld eða leyna broti. Upp- lýst var að engar skriflegar reglur lágu fyrir um störf gjaldkera. Dómur undirréttar í þessu máli var á þá leið að bankinn greiði gjaldkeranum upphæð sem svaraði til launa í fjóra og hálfan mánuð, þ.e. þriggja mánaða uppsagnarfrestur og einn og hálfur mánuður vegna 20 ára starfsafmælis. Niðurstaða dómsins var staðfest í hæstarétti. Þrátt fyrir niðurstöðu dómsins, fékk gjaldk- erinn ekki enduráðningu. Staða samningamála Eins og kunnugt er hefur SÍB verið með lausa kjarasamninga frá því 1. mars sl. Síðan þá hefur hvorki gengið né rekið í samninga- gerðinni. SÍB gerði samninganefnd bankanna tilboð sem fólst í því að framlengja eldri samn- ingum óbreyttum gegn því að bankamir gripu ekki til uppsagna á starfsfólki vegna skipulags- breytinga á samningstímanum. Á þetta var ekki fallist. Landsbanldnn greip þvert á móti til sárs- aukafullra fjöldauppsagna þann 1. júní, eins og öllum er í fersku minni. Þar með var tilboð SÍB um framlengingu óbreyttra samninga úr gildi fallið. Samninganefndir SÍB og bankanna hafa þó fundað um framtíð Bankamannaskólans og aðild útibússtjóra að SÍB með gildistöku nýrra laga um viðskiptabanka og sparisjóði. Flest félög opinberra starfsmanna eru einnig með lausa samninga og engar viðræður um kjaramál hafa farið fram við ríkið um nokkuð langa hríð. BSRB, Kennarasambandið og fleiri aðilar, sem eru án kjarasamnings, hafa metið stöðuna með líkum hætti og SÍB, að miðað við óvissuna í atvinnumálum væri sterkara að vera ekki bundinn af kjarasamningi til langs tíma. Kjarasamningur á sömu nótum og ASÍ gerði í vor hefði heldur ekki fært félagsmönnum SÍB nema rúmlega 4500 króna eingreiðslu, að frá- dregnum sköttum, þann 1. júní. Nú bíða menn eftir því að sjá hvort Alþýðu- sambandsfélögin segi upp kjarasamningi sínum fyrir 10. nóvember, eins og þau hafa heimild til ef forsendur samninganna eru brostnar vegna aðgerða stjómvalda. Nokkur félög og lands- hlutasamtök innan ASÍ hafa þegar lýst yfir að til uppsagna á kjarasamningum muni koma. Ólíklegt er að nokkuð gerist í samningagerð- inni hjá SÍB fyrr en niðurstaða liggur fyrir hjá Alþýðusambandsfélögunum, en verði af upp- sögnum eru kjarasamningar ASÍ-félaganna lausir frá 1. janúar nk. Launafólk borgar brúsann Það er ekki ný saga á íslandi að launafólk sé látið greiða herkostnaðinn í glímunni við efna- hagsvandann. Óhætt mun þó að fullyrða að nú keyri úr hófi fram. Hrap kaupmáttar ráðstöfun- artekna á mann síðustu mánuði og horfur í þeim efnum, em með þeim hætti að samtök launafólks hljóta að fara að grípa til sinna ráða. Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar minnkaði kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 1,7% árið 1992. í spá Þjóðhagsstofnunar frá í júlí er reiknað með að kaupmátturinn rými um 6,7% í ár. Stofnunin gerir ráð fyrir að á næsta ári verði hann 3,9% minni en á þessu ári.

x

SÍB tíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍB tíðindi
https://timarit.is/publication/1702

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.