Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.12.1931, Side 17
»
17
k. GLETTINGANES
Lendingin er i norðaustur af Glettinganesbænum. Austan vi8
hana liggur Glettinganestangi í norður úr nesinu. Lendingin er i
suður. Malarbotn. Leiðarmerki eru engin. Norðaustanvert utan
við mynni lendingarinnar er boði. Þegar inn er komið, er lend-
ingin talin góð.
1. KJÓLSVÍK
Lendingin, kölluð „Ker“, er niður af Kjólsvíkurbænum,
sunnan við syðsta bökuhornið. Klapparbotn. Engin leiðarmerki.
Lendingin er slæm, en skárst um fjöru. Boði er rétt suður undir
bökuhorninu.
m. BREIÐAVÍK (Steinsfjörulending)
Lendingin er norðan við Dreiðuvík, utan við klettahlein, sem
er stutt utan við krókinn, þar sem víkin beygist lil austurs. Leið-
armerki eru engin. Lendingin er i norður. Malarbotn. Lending-
in er hrein, en talin miður góð, bezt um hálffallinn sjó.
n. LITLAVÍK (Kambsvíkurlending)
Lendingin er sunnan i Breiðuvík, í fyrsta bás sunnan við
Litlavíkurbæinn. Leiðarmerki eru engin. Lendingin er í suð-
vestur. Malarbotn, nokkuð stórgrýtt. í mynni bássins er sker.
Lendingin er talin miður góð.
o. HÚSAVÍK
Lendingin er sunnanvert við klöpp, sem liggur fram i sjó
fyrir miðri Húsavík, undir horninu á Húsavíkurkambi, sem er
beint upp af klöppinni. Lendingin er í norðaustur. Malarbotn og
kiappir. Leiðarmerki eru engin, en farið er eftir dæld, sem er
sunnan við Húsavikurkamb og á að bera í Dallandspart, sem er
miðbærinn i víkinni. Einn hoði er i lendingunni nærri fjör-
unni. Lendingin er talin góð, bezt um hálffallinn sjó.
106. GEITHELLNAHREPPUR
a. STYRMISHÖFN
Lendingin er suðaustan við Þvottárland. Stórgrýtt fjara.
Lendingin er grunn, betri um flóð en um fjöru. Talin slæm
vegna brims og grynninga.