Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1990, Síða 23

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1990, Síða 23
19 Hæfni fólks til starfa. I atvinnulífinu hafa orðið miklar breytingar frá því sem áóur var. Dregið hefur úr þungum og erfióum störfum vegna meiri vélvæðingar. I þess stað hafa komió störf er krefjast langrar reynslu, verk- og fagmenntunar. Almenn menntun vinnandi fólks er einnig meiri en áður. "Vinnugeta" eldra fólks helst þvi lengur en áður. Fyrirtækin hafa því ekki sömu þörf fyrir að "yngja upp" sem áður. Oft á tíðum er þaó því sóun aó láta 67 ára gamalt fólk hverfa aö fullu úr starfi. Núverandi ellilífeyrisreglur draga úr möguleikum atvinnulifsins að notfæra sér hæfni eldra fólks. Vilji fólks til starfa. Komið hefur fram að vinnuþátttaka eldra fólks er tvö-þrefalt meiri hér á landi en á öórum Norðurlöndum enda rikti ekki atvinnuleysi hér á landi á þessum tima (3,4)_ Flest eldra fólk hættir launavinnu "af illri nauðsyn" en ekki af eigin ósk(3). Er þaó mun hærra hlutfall en t.d. í Danmörku, þar sem aóeins 25% af ellilífeyrisþegum óska eftir þvi aó hefja vinnu aftur. Ellilifeyrisþegar eru oft einstæóingar og staóreynd er aó tveir komast betur af en einn. Margir veigra sér einnig viö aó hverfa úr vinnu vegna ótta vió einangrun, sakna vinnufélaga, tilbreytingar og þeirrar lifs- fyllingar sem starfió gefur - enda af kynslóó sem sjaldan féll verk úr hendi. Bætur almannatrygginga duga ekki til framfærslu nema við bestu aðstæður. Stjórnmálamenn veróa að gera sér ljóst aó þó aö ellilifeyrir sé miðaður við lægstu laun ófaglærðs fólks með smávegis prósentuhækkun, duga þau laun fáum til framfærslu enda án yfirborgana og yfirvinnu. Ellilifeyrisþegar bera þvi skaróan hlut frá borói. Án efa mundi atvinnuþátttaka t.d. margra ófaglæróra breytast verulega t.d. ef lifeyrisréttindi þeirra væru færð i sama horf og háskólamenntaóra (tafla 1).

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.