Morgunblaðið - 20.09.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.09.2022, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ STU Ð 0 STU Ð 1 STU Ð » Þarf stærri heimtaug? » Hvaða lausn hentar best? » Er kerfið búið álagasstýringu? » Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi? Erhleðsla rafbílahausverkur í húsfélaginu? Við aðstoðumvið að leysamáliðmeð hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun. Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir. thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is dreif hvarvetna að fólk, sem þekkti nýja rúgbrauðið undir eins. Margir sögðu okkur frá góðum minningum í gamla rúgbrauðinu og tóku myndir af því nýja. Að því leyti er ekki ann- að að sjá en að það ríki mikil eftir- vænting eftir þessum bíl. Nú var raunar aðeins gefinn dag- ur til þess að reyna bílinn og það er ekki heldur á hreinu hvaða útgáfur verði boðnar hvar og ekki komið verð á hann ennþá, þó sennilega byrji nýja rúgbrauðið í námunda við 8,5 milljónir króna. Þau verða framleidd bæði sem fjölskyldubílar með tveimur sæta- röðum og sem sendibílar, en á næsta ári verður kynnt lengri útgáfa með þremur sætaröðum, sem verður a.m.k. boðin vestanhafs, en víðar þegar fram líða stundir. Á því kann þó að verða einhver bið, því miðað við forpantanir er nokkuð í að fram- boð anni eftirspurn, Sem fyrr segir er þetta fallegur bíll, en hann er hagnýtur líka. Nýja rúgbrauðið er ekki lítið og vel rúmt að innan, en það er hægðarleikur að leggja honum þótt stæðin séu ekki í stærra lagi. Og ef það er ökumann- inum ofviða getur tvenns konar sjálfvirkni bætt þar úr. Þar sakar ekki að stýrið er fislétt og beygju- radíusinn miklu minni en maður á að venjast af bílum í þessari stærð. Ökumaðurinn situr hátt, útsýnið er frábært og hann er þægilegur í akstri, bæði á þröngum og stein- lögðum götum og á lengri ferðum á þjóðveginum. Við fengum ekki tæki- færi til þess að reyna hann á malar- vegi, en miðað við mýktina kæmi á óvart ef þeir yrðu til vandræða frek- ar en á ID.4, en undirvagninn er nánast hinn sami. Það lágu engar nákvæmar tölur fyrir um orkuneysluna, en svona af því hvernig gekk á hleðsluna, þá virtist rúgbrauðið vera sparneytn- ara en búast mætti við af bíl með nokkra loftmótstöðu. En það þarf að reyna hann við íslenskar aðstæður, þegar það þarf að kynda miðstöðina líka. Drægið er mismunandi miðað við endanlega gerð, en má áætla að það liggi í 330 km og 420 km, svo stærri gerðin á að sleppa til Akur- eyrar. Eins veltur auðvitað mikið á því hvernig honum er ekið. Spar- neytna stillingin er fullgóð en kannski ekki mjög spennandi. Að útliti er ýmislegt gert til þess að vísa til fortíðar og þar gerir sitt að rúgbrauðið er tvílitt. Jú, það má fá einlitar útgáfur en þær eru ekki hálft eins fallegar. Litirnir eru líka harla einkennandi og vel valdir. Spái því að þeim fækki ekki með árunum. Fjölskyldu-, leigu- og sendibíll Að innan er útlitið stílhreint og praktískt. Það er nokkur áhersla lögð á endurunninn efnivið í innrétt- ingunni, svo það vantar ekki harð- plastið, en það lítur vel út og virðist vera auðvelt að þrífa það. Þetta er nefnt af því að þetta er fyrst og fremst fjölskyldubíll og ekki síður þegar þriggja sætaraða útgáfurnar taka að birtast. Þá kemur líka í góð- ar þarfir að það eru USB-C hleðslu- tengi um allan bíl, sætin fram í eru gerð til þess að hengja iPad aftan á þau og hugbúnaðurinn í tölvunni virðist sprækari en í fyrri gerðum frá VW. Notin einskorðast þó ekki við fjöl- skyldur, eins og reynslan af gamla rúgbrauðinu ætti að kenna mönnum. Þegar er hægt að fá ýmsar sér- græjur í hann, svo sem dýnu til að leggja yfir marflöt niðurfelld sætin og einnig er hægt að fá innbyggða gaseldavél, sem dregin er út um aft- urhlerann, líkt og var svo vinsælt í ferðaútgáfunni af gamla rúgbrauð- inu, því bíllinn er rúmgóður og gott pláss aftur í þó hann sé ekki gerður til neinna þungaflutninga. En það er heldur ekki útilokað að nýja rúgbrauðið verði vinsælt meðal leigubílstjóra og rennidyrnar eru örugglega farþegum að skapi. Hvort hið sama á við um iðnaðarmenn, sem gætu haft not af sendibílsútgáfunni á svo eftir að koma í ljós. Volkswagen hefur tekist afar vel upp við að gera úr garði bíl í góðu jafnvægi í öllum skilningi. Nýja rúg- brauðið er bíll sem við eigum eftir að sjá miklu meira af. Nýja rúgbrauðið er glaðlegt að sjá, en ekki þó með kringlóttar lugtir. Það vantar ekki harðplastið, en það er vel og smekklega notað eins og ber í stílhreinum bíl. Rúgbrauðið opnast vel, sjálfvirkar rennihurðirnar saka ekki og auðvelt að stíga um borð í bílinn. Gott rými er aftur í, sér í lagi ef sætin eru lögð niður, og þá má leggja sig. Allt innan seilingar við stýri og stjórnborð, en skjárinn tekur svolítið til sín. Það er full ástæða til eftirvæntingar eftir þessum frísklega bíl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.