Morgunblaðið - 20.09.2022, Síða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
STU
Ð 0
STU
Ð 1
STU
Ð
» Þarf stærri heimtaug?
» Hvaða lausn hentar best?
» Er kerfið búið álagasstýringu?
» Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi?
Erhleðsla rafbílahausverkur í húsfélaginu?
Við aðstoðumvið að leysamáliðmeð hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi
Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun.
Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir.
thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is
dreif hvarvetna að fólk, sem þekkti
nýja rúgbrauðið undir eins. Margir
sögðu okkur frá góðum minningum í
gamla rúgbrauðinu og tóku myndir
af því nýja. Að því leyti er ekki ann-
að að sjá en að það ríki mikil eftir-
vænting eftir þessum bíl.
Nú var raunar aðeins gefinn dag-
ur til þess að reyna bílinn og það er
ekki heldur á hreinu hvaða útgáfur
verði boðnar hvar og ekki komið
verð á hann ennþá, þó sennilega
byrji nýja rúgbrauðið í námunda við
8,5 milljónir króna.
Þau verða framleidd bæði sem
fjölskyldubílar með tveimur sæta-
röðum og sem sendibílar, en á næsta
ári verður kynnt lengri útgáfa með
þremur sætaröðum, sem verður
a.m.k. boðin vestanhafs, en víðar
þegar fram líða stundir. Á því kann
þó að verða einhver bið, því miðað
við forpantanir er nokkuð í að fram-
boð anni eftirspurn,
Sem fyrr segir er þetta fallegur
bíll, en hann er hagnýtur líka. Nýja
rúgbrauðið er ekki lítið og vel rúmt
að innan, en það er hægðarleikur að
leggja honum þótt stæðin séu ekki í
stærra lagi. Og ef það er ökumann-
inum ofviða getur tvenns konar
sjálfvirkni bætt þar úr. Þar sakar
ekki að stýrið er fislétt og beygju-
radíusinn miklu minni en maður á að
venjast af bílum í þessari stærð.
Ökumaðurinn situr hátt, útsýnið
er frábært og hann er þægilegur í
akstri, bæði á þröngum og stein-
lögðum götum og á lengri ferðum á
þjóðveginum. Við fengum ekki tæki-
færi til þess að reyna hann á malar-
vegi, en miðað við mýktina kæmi á
óvart ef þeir yrðu til vandræða frek-
ar en á ID.4, en undirvagninn er
nánast hinn sami.
Það lágu engar nákvæmar tölur
fyrir um orkuneysluna, en svona af
því hvernig gekk á hleðsluna, þá
virtist rúgbrauðið vera sparneytn-
ara en búast mætti við af bíl með
nokkra loftmótstöðu. En það þarf að
reyna hann við íslenskar aðstæður,
þegar það þarf að kynda miðstöðina
líka. Drægið er mismunandi miðað
við endanlega gerð, en má áætla að
það liggi í 330 km og 420 km, svo
stærri gerðin á að sleppa til Akur-
eyrar. Eins veltur auðvitað mikið á
því hvernig honum er ekið. Spar-
neytna stillingin er fullgóð en
kannski ekki mjög spennandi.
Að útliti er ýmislegt gert til þess
að vísa til fortíðar og þar gerir sitt að
rúgbrauðið er tvílitt. Jú, það má fá
einlitar útgáfur en þær eru ekki
hálft eins fallegar. Litirnir eru líka
harla einkennandi og vel valdir. Spái
því að þeim fækki ekki með árunum.
Fjölskyldu-, leigu- og sendibíll
Að innan er útlitið stílhreint og
praktískt. Það er nokkur áhersla
lögð á endurunninn efnivið í innrétt-
ingunni, svo það vantar ekki harð-
plastið, en það lítur vel út og virðist
vera auðvelt að þrífa það. Þetta er
nefnt af því að þetta er fyrst og
fremst fjölskyldubíll og ekki síður
þegar þriggja sætaraða útgáfurnar
taka að birtast. Þá kemur líka í góð-
ar þarfir að það eru USB-C hleðslu-
tengi um allan bíl, sætin fram í eru
gerð til þess að hengja iPad aftan á
þau og hugbúnaðurinn í tölvunni
virðist sprækari en í fyrri gerðum
frá VW.
Notin einskorðast þó ekki við fjöl-
skyldur, eins og reynslan af gamla
rúgbrauðinu ætti að kenna mönnum.
Þegar er hægt að fá ýmsar sér-
græjur í hann, svo sem dýnu til að
leggja yfir marflöt niðurfelld sætin
og einnig er hægt að fá innbyggða
gaseldavél, sem dregin er út um aft-
urhlerann, líkt og var svo vinsælt í
ferðaútgáfunni af gamla rúgbrauð-
inu, því bíllinn er rúmgóður og gott
pláss aftur í þó hann sé ekki gerður
til neinna þungaflutninga.
En það er heldur ekki útilokað að
nýja rúgbrauðið verði vinsælt meðal
leigubílstjóra og rennidyrnar eru
örugglega farþegum að skapi. Hvort
hið sama á við um iðnaðarmenn, sem
gætu haft not af sendibílsútgáfunni
á svo eftir að koma í ljós.
Volkswagen hefur tekist afar vel
upp við að gera úr garði bíl í góðu
jafnvægi í öllum skilningi. Nýja rúg-
brauðið er bíll sem við eigum eftir að
sjá miklu meira af.
Nýja rúgbrauðið er glaðlegt að sjá, en ekki þó með kringlóttar lugtir.
Það vantar ekki harðplastið, en það er vel og smekklega notað eins og ber í stílhreinum bíl. Rúgbrauðið opnast vel, sjálfvirkar rennihurðirnar saka ekki og auðvelt að stíga um borð í bílinn.
Gott rými er aftur í, sér í lagi ef sætin eru lögð niður, og þá má leggja sig.
Allt innan seilingar við stýri og stjórnborð, en skjárinn tekur svolítið til sín.
Það er full ástæða
til eftirvæntingar
eftir þessum
frísklega bíl