Morgunblaðið - 20.09.2022, Síða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
U
m eitt og hálft ár er nú liðið
frá því þýski bílaframleið-
andinn Audi sendi frá sér
rafbíl undir heitinu e-tron
GT, en um er að ræða nokkurs konar
systurbíl Taycan-bílsins frá Porsche.
Bifreiðin nýtur einnig þess heiðurs
að vera sú fyrsta rafknúna frá Audi
til að vera framleidd í heimalandinu,
nánar tiltekið í Heilbronn í Baden-
Württemberg. Enda varð það ljóst
um leið og blaðamaður gaf honum
inn í fyrsta sinn að þýsku hraðbraut-
irnar eru heimavöllur þessa ökutæk-
is. En hvernig stendur hann sig á úti-
velli?
Fyrst ber að nefna það sem fyrst
kemur í hugann, þegar maður nálg-
ast bílinn og býr sig undir aksturinn.
E-tron GT er gullfallegur að sjá, en
lögulegar línurnar gefa á sama tíma
til kynna að hér sé á ferðinni kraft-
mikill gæðingur. Á hliðum bílsins eru
loftop til að minnka loftmótstöðu og
að aftan er vindskeið sem stillist sjálf
í samræmi við það hvernig bílnum er
ekið.
Að innanverðu er hönnunin engu
síðri. Framsætin eru þægileg og
veita góðan stuðning, auk þess að
vera rafstýrð, og því mjög auðvelt að
láta vel fyrir sér fara. Sú ákvörðun
virðist einnig hafa verið tekin að fela
ekki allar mögulegar stillingar inni í
risavöxnum flatskjá, heldur eru al-
vöru takkar til að stýra flestu því
sem maður vill breyta í flýti. Í stýr-
inu má finna góða stjórntakka fyrir
útvarpið en einnig á sleðanum á milli
framsætanna, í litlu hjóli sem hefur
að geyma nokkra takka auk skruns
til að stilla hljóðið.
Skjáirnir eru að sjálfsögðu einnig
til staðar, annars vegar fyrir miðju
og hins vegar á bak við stýrið, þar
sem allar nauðsynlegar upplýsingar
eru auðsjáanlegar og aðgengilegar.
Engin innilokunarkennd
Stýrikerfið sjálft er þægilegt en
býður einnig upp á tengingu í gegn-
um Android Auto og Apple Carplay,
og í það minnsta er Apple-tengingin
þráðlaus að fenginni reynslu blaða-
manns, eins og í mörgum nýjum bíl-
um um þessar mundir. Fjórar USB-
C-tengingar eru auk þess sjáanlegar,
þar af tvær ofan í hólfi í sleðanum og
tvær undir aftursætum.
Glerþak sem þekur nánast allt þak
bílsins er staðalbúnaður. Fyrir þá
sem frammi í sitja breytir það ekki
miklu en aftur í er munurinn mikill.
Því þó plássið sé ágætt í aftursæt-
unum, og þá sérstaklega fyrir fætur,
þá er bíllinn engu að síður sportlega
byggður og innilokunarkennd gæti
vel gert vart við sig ef ekki væri fyrir
glerþakið. Litlar afturrúður eiga þar
einnig hlut að máli.
Val er um leður eða leðurlíkis-
áklæði á sætum – möguleiki sem
virðist njóta sífellt aukinna vinsælda.
Leðurlíki prýðir enn fremur efri og
neðri hluta mælaborðsins og kemur
útfærslan smekklega út.
Fjórar sekúndur í lögbrot
Jæja, tökum af stað.
Hestöflin, 469 talsins, láta svo
sannarlega finna fyrir sér. Fjór-
hjóladrifnar fjórar sekúndur líða og
maður er kominn upp í hundraðið.
Hvers konar bíl hefði maður þurft að
kaupa fyrir tveimur áratugum, til að
ná sömu hröðun, er spurning sem
vaknar um leið. Framtíðin er núna,
það er ljóst, og hún er ekki alslæm.
En hestöflin eru í raun fleiri. Noti
maður svokallaða boost-stillingu
fjölgar þeim tímabundið, eða alla leið
upp í 522. Sem útskýrir meðal ann-
ars af hverju það tekur aðeins fjórar
sekúndur að brjóta umferðarlögin
íslensku. Rafmótorar eru á hvorum
öxli um sig og hafa tvo gíra, annars
vegar til að gefa bílnum mestu
mögulegu hröðun þegar tekið er af
stað og svo aftur þegar maður er
kominn á meiri hraða en vill samt
gefa honum vel inn.
Að aka þessum bíl um gatnakerfi
Reykjavíkur er eins og að mæta með
hundinn sinn ólarlausan í troðfullan
garð, þar sem hundar mega þó að-
eins vera í bandi. Meira að segja
þegar maður passar sig að gefa hon-
um bara venjulega inn, eftir að rautt
ljós víkur fyrir grænu, þá lítur maður
aftur fyrir sig að þremur sekúndum
liðnum og öll hersingin er óravegu í
burtu að því er virðist. Það er því
eins með e-tron GT og aðra kröftuga
rafbíla, að rauðu ljósin verða einfald-
lega skemmtilegri en áður og jafnvel
eftirsóknarverð, ef þannig liggur á
manni.
Á trylltan tvíbura
Og eins og maður finnur mikið fyr-
ir hröðuninni þá finnur maður ósköp
lítið fyrir hraðanum sjálfum, þegar
góðri tölu hefur verið náð. Bíllinn er
enda byggður á sama grunni og
Porsche Taycan, eins og fyrr sagði,
en sá grunnur nefnist J1. Raunar eru
bílarnir að nærri hálfu leyti sami bíll-
inn, en 40% hluta þeirra eru þeir
sömu að því er fram hefur komið í
umfjöllun þýska bílablaðsins Auto-
bild.
Þó e-tron GT hafi ekki farið á al-
mennan markað fyrr en á síðasta ári
þá hafði hann komið fyrir sjónir al-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að aka bílnum um gatnakerfi Reykjavíkur er eins og að mæta með hundinn sinn ólarlausan í troðfullan garð, þar sem hundar mega aðeins vera í bandi. Hraðbrautirnar eru heimavöllurinn.
„Rauðu ljósin verða
einfaldlega skemmtilegri“
Sportbíllinn Audi e-
tron GT hjálpaði blaða-
manni að finna ham-
ingjuna. Tony Stark og
Kjalnesingagoðar
koma einnig við sögu.
Að aftan er vindskeið sem stillist sjálf í samræmi við það hvernig bílnum er ekið. Hestöflin láta finna fyrir sér.
» 93 kWst rafhlaða
» 350 kW
» 469/522 hestöfl
» Sjálfskiptur
» Fjórhjóladrifinn
» Drægni allt að 488 km
(WLTP)
» 0-100 km á 4,1 sek
» Farangursrými:
486 lítrar
» Verð: 13.990.000 kr.
» Verð eins og prófaður:
16.700.000 kr.
Audi
e-tron GT