Morgunblaðið - 25.08.2022, Side 5

Morgunblaðið - 25.08.2022, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 5 Viltu skapa spennandi framtíð? Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að miðla orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi. Umsóknarfrestur er til 4. september 2022. Sótt er um starfið á landsnet.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar til að bætast í hópinn. Nánari upplýsingar veitir Jason Már Bergsteinsson, mannauðssérfræðingur, mannaudur@landsnet.is. Við leitum að nákvæmum, drífandi og ábyrgum einstaklingi í fullt starf greiðslu- og innkaupafulltrúa á starfsstöð okkar í Reykjavík. Greiðslu- og innkaupafulltrúi kemur til með að framkvæma allar greiðslur fyrir Landsnet, hafa umsjón með innheimtu viðskiptakrafna ásamt því að sjá um miðlæga rekstrar- og afsláttarsamninga, innflutning á vörum, gerð verðfyrirspurna og önnur verkefni sem falla undir starf innkaupafulltrúa. Helstu verkefni • Framkvæmd og undirbúningur greiðslna og eftirfylgni með samþykkt reikninga • Umsjón með innkaupakortum og samskipti við lánardrottna • Umsjón með miðlægum rekstrar- og afsláttarsamningum • Umsjón með innflutningi og samskiptum við flutningsaðila Hæfniskröfur • Reynsla af gjaldkerastörfum og þekking á bókhaldi • Gagnrýnin hugsun, skipulagning og sjálfstæð vinnubrögð • Drifkraftur, heilindi, þjónustulund og jákvæðni • Menntun sem nýtist í starfi Greiðslu- og innkaupafulltrúi Við leitum að rafiðnaðarnemum sem lokið hafa grunndeild rafiðna á samning. Rafiðnaðarnemar fá tækifæri til að kynnast fjölbreyttu starfi við tengivirki og háspennulínur. Starfsstöðvar okkar eru í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum og er starfsvettvangur um allt land. Helstu verkefni • Í starfinu fá nemar að kynnast vinnu við tengivirki og háspennulínur um allt land undir leiðsögn reynslumikils og hæfileikaríks rafiðnaðarfólks • Nemar njóta stuðnings, fá góða þjálfun, hafa tækifæri til að vaxa í starfsgreininni og eru hvattir til að hafa áhrif Hæfniskröfur • Hafa lokið grunndeild rafiðna • Sterk öryggisvitund • Metnaður og rík ábyrgðarkennd • Geta til að sinna verkefnum um land allt Rafiðnaðarnemar á spennandi samning Við leitum að sérfræðingi í nýtt starf innan netþjónustuteymis okkar þar sem áhersla er lögð á persónuöryggi á öllum sviðum og örugga afhendingu raforku í flutningskerfinu. Starfið snýst um að stuðla að hagkvæmum og skilvirkum rekstri stafræns búnaðar í flutningskerfinu með markvissu eftirliti, viðhaldi og endurnýjun. Stærstu verkefnin snúa að stjórn- og varnarbúnaði flutningskerfisins. Helstu verkefni • Eftirlit, viðhald og endurnýjun á stafrænum búnaði • Verkstýring stafrænna verkefna • Virk þátttaka í verkefnum þvert á svið • Þátttaka í viðbragðsáætlunum og æfingum Hæfniskröfur • Menntun á sviði tækni-, verk- eða tölvunarfræði • Góð samskiptahæfni, sköpunargleði og frumkvæði • Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun • Góð skipulags- og greiningarhæfni Sérfræðingur í viðhaldi stafrænna tengivirkja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.