Vesturland - 25.03.1995, Page 2
BLAÐ VESTFIRSKRA S|ÁLFSTÆÐ1SMANNA
Útgefandi: Kjördæmisráð Sjálfstseðisflokksins áVestíjörðum
Ritstjóri og Steinþór Gunnarsson
ábyrgðarra.: Sjálfttæðishúsinu Hafnarstræti 12 ísafirði. Pósthólf374
Skrifetofa:
Súmi: 94-4232
Fax: 94-5262
Blaðnefnd: Auðunn J, Guðmundsson, formaður Björgvin Björgvinsson Finnbogi R.Jóhannesson Jóhann Ólafson Steinþór Gunnarsson
Tölvuvinnsla og prentu n: H-prent hf., ísafirði
Blaðið er prentað í 3600 eintökum og er dreift fritt
inn á hvert heimili áVestfjörðum.
Samgöngur á Vestfjörðum
verða alltaf erfiðar að vetri til.
Hversu mjög sem við bætum
ástand vega í fjórðungnum.Avait
skapast það ástand í verstu
veðrum og óvenju erfiðum vetr-
um, að vegir verði kol ófærir um
lengri eða skemmri tíma. Vissu-
lega má sigla öflugustu skipum
milli staða með aðgát og góðri
skipstjórn, en það breytir hins
vegar ekki því að vegir út úr
fjórðungnum eru lokaðir íhverju
því ofsaveðri sem yfir gengur.
Við höfum stundum verið ósammála um hvaða áfangar ættu að
hafa forgang í vegagerð á Vestfjörðum. Ég býst þó við að flestir séu
sammála um að byggja upp þá vegi sem ætlaðir eru til suðurferða.
Hvort sem er yfir Kleifaheiði, Gilsfjörð eða um ísafjarðadjúp. í
kjölfar þess erfiða vetrar sem vonandi er senn liðinn hafa skoðanir
verið skiptar um hvort leggja eigi áherslu á uppbyggingu Djúpvegar
eins og fyrirhugað er, eða viðhalda og byggja upp fullkomna ferjuað-
stöðu.
í ljósi þess hvað mikið er ógert í Djúpvegi, tel ég að tekin hafi verið
rétt ákvörðun að hefja nú verulegt átak í vegagerð um ísafjarðar-
djúp.
Samt sem áður er samstaða um að trvggja að til staðar verði skip
til ferjusiglinga yfir erfiðasta tíma ársins og þá jafnframt lágmarks
aðstöðu til þess að koma bifreiðum um borð í inndjúpi. Hvað sem
slíkum neyðarleiðum líður, verður krafa okkar Vestfirðinga sú
sama og allra annara landsmanna, að vegakerfið verði gert akfært,
jafnt að sumri sem vetri.
Við skulum samt sem áður gera okkur grein fyrir því að vegir um
Vestfirði, þó góðir verði síðar í framtíð, munu lokaðir í verstu
veðrum og vegna legu Vestfjarða og landslags lokast oftar en vegir í
öðrum landshlutum. Ferjuleið um ísafjarðardjúp tryggir ekki að
fært verði suður úr ísafjarðardjúpi í vondum veðrum.
Við höfum iðulega séð það í vemr, að vegir sem liggja mun lægra en
Vestfjarðavegir út úr fjórðungnum, verða kolófærir í ofankomu og
skafrenningi og það mun gerast oftar hjá okkur. Um það er varla
deilt að vestan Dýrafjarðar eru allt önnur og minni snjóalög en á
norðanverðum Vestfjörðum. Á næsta vetri verða jarðgöngin undir
Breiðadalsheiði opin umferð. Spyrja má með fullum rökum hvort
ekki sé betri ferjuleið til Bíldudals og kostnaðarminni til þess
tryggja vetrarsamgöngur?
-Guöjón Amar Kristjánsson
Margirleggja leið sína á kosningaskrifstofu Sjálfstceðisjlokksins. Leifur
Pálsson íHnífsdal er einn þeirra og við eitt tækifærið smelltum við af
honum þessari mynd.
Var rétt að krefjast þessað sjávarúívegsstefnan verði tekin til
umræðu á nýjum grundvelli?
NÆR ALLIR
VESTFIRÐIN GAR
STYÐJA KRÖFUNA
Maður má ekki orðið útrýma fiskstof'ninum í friði fyrir þeim...
Rúmlega níu af hverjum tíu
Vestjírðingum telja aö það hajt
veriö rétt af frambjóöendum
Sjálfstœðisflokksins hér á Vest-
fjöröum aö krefjast þess aö
sjávarútvegsstefnan verði tekin
til umrœöu á nýjum grundvelli.
Þetta kemur fram í skoöana-
könnun sem Félagsvísindastofn-
un Háskóla íslands hefurgert.
Eins og kunnugt var settu fjórir efstu
menn á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins hér á Vestfjörðum fram nýjar
hugmyndir að sóknar- og flotastýringu
í stað þess miðstýrða kvótakerfis sem
við lýði hefur verið undanfarin ár.
Óhætt er að segja að þetta frumkvæði
vakti verulega athygli og kallaði fram
miklar umræður. Skoðanakönnunin
sýnir svo ótvírætt er að Vestfirðingar
eru lang flestir afar ánægðir með þetta
frumkvæði frambjóðendanna.
Jákvæð afstaða beggja kynja og
allra aldurshópa
Ekki er neinn merkjanlegur munur
á afstöðu kynjanna. Rúmlega 90
prósent kvenna sem karla eru ánægð
með frumkvæði sjálfstæðismanna.
Sama er að segja um einstaka aldurs-
hópa. Almennt er fólk á öllum aldri
ánægt með þetta mál. Þó er óhætt að
segja að yngra fólkið er alveg sérstak-
lega ánægt með að frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins vilji að sjávarút-
vegsstefnan sé tekin til umræðu á
nýjum grundvelli.
Almennur stuðningur
Ef skoðaðir eru kjósendur einstakra
lista og framboða vekur athygli að
undantekningarlaust lýsa allir kjós-
endur Alþýðubandalags, Kvennalista
og þeir sem ætla að kjósa einhvern
vinstri flokk en hafa ekki að öðru leyti
gert upp hug sinn, yfir fylgi við frum-
kvæði frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins. Tæp 98 prósent kjósenda
Sjálfstæðisflokksins eru þessarar
sömu skoðunar, 92 prósent kjósenda
Þjóðvaka og 91 prósent kjósenda
Alþýðuflokksins.
Aðeins efi í Framsóknar-
flokkunum tveimur
Það er einungis í röðum Fram-
sóknarflokkanna tveggja hér í kjör-
dæminu þar sem menn hafa merkjan-
legar efasemdir um að það hafi verið
rétt að krefjast endurskoðunar á fisk-
veiðistefnunni af hálfu sjálfstæðis-
manna. Þóerþaðsvoaðyfirgnæfandi
hluti kjósenda beggja framsóknar-
framboðanna er fylgjandi frumkvæði
sjálfstæðismannanna. Þó enn frekar í
Pétursarminum. 81 prósent þeirra
sem hyggjasts kjósa Pétursarm Fram-
sóknar eru málinu jákvæðir, en í
Gunnlaugsarmi Framsóknar eru sjö
af hverjum tíu jákvæðir því máli.
Ljóst er því að jafnt karlar og konur,
hinir yngri sem eldri og kjósendur
allraflokkaeru að miklum meirihluta
jákvæðirvegnafrumkvæðis frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins.
VIÐ ERUM KOMIN I GEGN
NÚ ER KOMINN TÍMI
TIL AÐ TENGJA
í tilefni af sprengingu lokahafts Vestfjarðagangnanna
bjóða frambjóðendur SJálfstæðisflokksins á Vestfjörðum
til almenns stjórnmálafundar um samgöngu- og byggðamál
I Stjórnsýsluhúsinu sunnudaginn 26. mars n.k. kl. 20:30.
Frummælendur:__________
Halldór Blöndal, samgöngi
og landbúnaðarráðherra
Einar K. Guðfinnsson,
alþingismaður
Fundarstjóri:__________
Hildigunnur L. Högnadóttir
- Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins
Sunnudaginn kl. 20:30 í Stjórnsýsluhúsinu
Bls. 2