Skutull - 13.04.1983, Side 2
SKUTTJLL
2_
r
SKUTULL
Blað Alþýðaflokluinf ifotQarftaljfirdani
Útgefandi Alþýðuflokkurinn í Vestfjarðakjördæmi.
BLAÐNEFND:
Björgvin Sighvatsson, Árni Sædal Geirsson, Gunn-
ar Pétursson, Kristján Örn Ingibergsson, Kristján
Þórðarson, Marías Þ. Guðmundsson, Þórður Pét-
ursson, Ægir Hafberg
Ábyrgðarmaður: Kristján Jónasson
Fram til sigurs
Það duldist engum er talið var upp úr kjörkössun-
um við síðustu sveitarstjómarkosningar, að Alþýðu-
flokkurinn átti víða í vök að verjast. Á þessu voru þó
undantekningar þ.á. m. á Vestfjörðum og á ísafirði
vantaði herslumuninn á að flokkurinn bætti við sig
manni.
Alþingiskosningarnar 23. apríl n.k. eru um margt
sérstæðar. Klofningur veður uppi í flokkum og fram-
boð eru fleiri en nokkru sinni fyrr. Vilmundi mislík-
aði að vera ekki kosinn varaformaður Alþýðuflokks-
ins og stofnaði eigin flokk, Sigurlaug sætti sig ekki við
vinnubrögð forustumanna og er nú “sjálfstæður“
sjálfstæðismaður og svo munu ýmsir hafa sagt upp
skipsrúmi hjá Kjartani Ólafssyni. Og eftir að úrslit
lágu fyrir í prófkjöri kratanna biðu menn spenntir
eftir einum klofningnum enn. Jafnvel fréttamenn
ríkisútvarps máttu ekki vatni halda og hringdu fyrir
kvöldfréttatíma inn á kjördæmisfund Alþýðuflokks-
ins og spurðu: Er ekki allt sprungið? En það var á
þeirri stundu, sem andstæðingar Alþýðuflokksins
urðu fyrir slíkum vonbrigðum, að þeir hafa ekki
jafnað sig enn þann dag í dag.
Vissulega skiptust menn á skoðunum á kjördæmis-
fundinum, en þegar upp va.f staðið hafði framboðs-
listinn verið samþykktur einróma. Karvel, Sighvatur
og Gunnar höfðu allir.tékið þau sæti, er þeir höfðu
hlotið í prófkjörinu. Og ekki minnkuðu vonbrigði
andstæðinganna er Ijóst var að í fjórða sætinu var
ungur ísfirðingur, Helgi Már Arthúrsson, sem óneit-
anlega hafði verið í sviðsljósi átaka innan flokksins
áður fyrr. Menn gerðu sér ljóst að seta hans á
listanum var aukinn styrkur og undirstrikaði að á
meðal alþýðuflokksmanna á Vestfjörðum ríkti eining
en ekki sundrung.
En andstæðingar Alþýðuflokksins hafa ekki lagt
árar í bát. Þeir hafa því tekið upp háttu Gróu gömlu
sem kennd var við Leiti og reyna að læða því inn í
raðir stuðningsmanna Alþýðuflokksins, að einingin sé
aðeins á yfirborðinu og að þessi og hinn muni ekki
styðja flokkinn í kosningunum. Allir, sem til þekkja
vita að hér er aðeins verið að sá illu fræi til að skapa
sama glundroðann og ríkir í þeirra eigin herbúðum.
Vera má að í kosningum sé allt leyfilegt, en stórmann-
legt telst þetta ekki.
í síðustu alþingiskosningum fékk Alþýðuflokkur-
inn nær 1200 atkvæði og tvo þingmenn á Vestfjörð-
um, þar af annan sem uppbótarþingmann. Sundr-
ungin meðal andstæðinganna gerir það að verkum að
atkvæði dreifast. Líkurnar á góðri útkomu Alþýðu-
flokksins hafa aukist að sama skapi.
Ef hver og einn stuðningsmaður Alþýðuflokksins
lætur sitt ekki eftir liggja heldur vinnur ötullega fram
til kosninga og skilar sér á kjördegi getur flokkurinn
vissulega verið bjartsýnn. VIÐ STEFNUM MARK-
VISST AÐ ÞVÍ AÐ ÞINGMENN FLOKKSINS
VERÐI BÁÐIR KJÖRDÆMAKJÖRNIR.
Að Alþýðuflokknum er nú sótt harðar en nokkru
sinni áður og andstæðingana dreymir fjarlæga
drauma um að ganga nú i eitt skipti fyrir öll milli bols
og höfuðs á flokknum. Þeir hafa lengi átt þann draum
og hann rætist ekki nú frekar en áður.
VESTFIRÐINGAR! Sýnum það og sönnum með
stuðningi við Alþýðuflokkinn í komandi þingkosning-
um að hér á flokkurinn ekki í vök að verjast heldur er
sem fyrr sterkasta vígi hans á öllu landinu.
Sérhvert atkvæði til Alþýðuflokksins er mikilvægt í
þeirri baráttu sem framundan er til endurreisnar
íslensku efnahagslífi og til jöfnunar búsetu í landinu.
JAFNAÐARMENN! FRAM TIL SIGURS, NÚ
MÁ ENGINN SKERAST ÚR LEIK.
Alþingi götunnar sent heim!
— “Alþingi götunnar“
þarf að sýna hrokagikkj-
um valdsins við Austur-
völl hver það er sem ræð-
ur...“
Muna menn þessi orð? Muna
menn eftir manninum, sem þau
reit í blað sitt 11. febrúar 1978?
Vita menn, að þetta er maðurinn,
sem ásamt Kjartani Ólafssyni,
frambjóðanda G-listans, bjó til
krorðið “kosningar eru kjara-
barátta"? Jú, vitaskuld vita menn
hver þessi maður er. Hann heitir
Svavar Gestsson og er félags-
málaráðherra í ríkssÓRN r.
Gunnak Thoroddsen. Hann hefur
farið með húsnæðismálin s.l. þrjú
ár. Þar hefur ríkisstjórnin brugðist
verst.
Þeir atburðir, sem gerst hafa
síðan 1978, hafa fært mönnum
heim sanninn um, að þessi foringi
Alþýðubandalagsins, er ekki að
hugsa um fólkið í landinu þegar
hann tekur svona til orða. Hann
er að hugsa um það eitt, hvernig
nota má stuðning kjósenda til að
koma sjálfum sér í valdaaðstöðu á
Alþingi !— til að geta setið þar í
ró og spekt!
Stjórnmálamenn annarra
flokka hafa stundum veigrað sér
við að skýra ást ráðherrasósíalist-
anna á stólum sínum með því að
þeim gengi það eitt til að sitja, án
þess nokkurn tíma að vilja reyna
að koma stefnumálum sínum
fram á löggjafarsamkundunni. En
sannleikurinn er nú einu sinni sá,
að þetta er ástæðan fyrir ríkis-
stjórnarþátttöku Alþýðubanda-
lagsins. Ráðherrarnir þrír vilja
fyrir alla muni sitja! Það er skýr-
ingin og er hún ekki ómerkilegri
en það sem skýrt er.
Þegar þannig viðrar reynir Al-
þýðubandalagið að telja kjósend-
um trú um. að í þessu landi séu
rekendur fyrirtækja bófar og
svindlarar og að kröfur um launa-
hækkun séu einfaldlega spurning
um að sækja gull í greipar þessara
aðila. Þeir hafa óspart látið skilja
á sér, að þá varðaði ekkert um
þjóðjqg. Þannig er það þegar
kommarnir eru utan stjórnar.
Þegar þeir hins vegar hafa
gengið til liðs við Framsókn og
myndað með henni ríkisstjórn
kemur annað hljóð í strokkinn.þá
verður staða atvinnuveganna
slæm. Þá versna viðskiptakjör. Þá
steðjar að mikill vandi — frá
útlöndum!
Þegar þannig stendur á fyrir
Alþýðubandalaginu boða þessir
sömu menn kjaraskerðingu með
lögum frá Alþingi.
Á fundi í Tálknafirði sagði
Matthías Bjarnason um þennan
loddaraleik: “Sveiattan“!
En hvað er það svo, sem fram-
bjóðandi G-listans boðar nú í
sínum ræðum hér á Vestfjörðum?
Talar hann um heildsalana og
innflutningsverslunina? Nei, það
gerir hann ekki!
Talar hann um gróða fyrirtækj-
anna, eins og 1979? Nei, fjarri því.
Eða talar hann um afstöðu flokks
síns í várnarmálum? Nei, það
dettur honum ekki til hugar. Og
af hverju?
Svarið er einfaldlega það, að
nú setur Alþýðubandalagið ekki
fram neinar kröfur — engin skil-
yrði fyrir hugsanlegri ríkisstjórn-
arþátttöku sinni! Þá langar til að
sitja áfram eftir kosningar komm-
ana — og þeir eru tilbúnir fyrir
tombóluverð. Það er nú kjarninn í
þeim málflutningi sem Kjartan
Ólafsson býður upp á fyrir þessar
kosningar.
Hann hefur tiltekið tvö skilyrði.
í fyrsta lagi, að raforkuverð til
Alusuisse hækki. Það eru allir
flokkar sammála um. Þar greinir
menn aðeins á um leiðir. Og í
öðru lagi, að samstarfsflokkar Al-
þýðubandalagsins verði að gera
sér grein fyrir því, að þjóðarbúið
þoli ekki launahækkanir og að
Veröbólgan í ísrael —
og þáttur samgönguráðherra!
Því miður hefur það verið
svo, að framsóknarmenn
lofa fyrir kosningar ein-
hverju, sem er meira og
minna úr öllu samhengi við
þau vandamál sem brenna
á fólkinu í þessu landi.
Menn muna t.d. að eitt
helsta innlegg Steingríms
Hermannssonar í síðustu
kosningabaráttu var, að
verðbólgan í ísrael væri mun
meiri en í Noregi. Stein-
grímur sagði í framhaldi af
þessari fullyrðingu, að hér
þyrftum við að fara leið
Norðmanna og ná verð-
bólgunni niður í áföng-
um—með niðurtalningu.
Steingrímur Hermanns-
son hefur nú farið fyrir rík-
isstjórn í þrjú ár. Og verð-
bólgan á íslandi elt verð-
bólguna í ísrael uppá við,
án þess að samhengi sé þar
á milli. Leið Norðmanna
var með m.ö.o. hafnað þeg-
ar á hólminn var komið
Framsóknarflokkurinn
bauð kjósendum sínum
uppá verðbólgu á þessu ári
uppá ca. 10%. Eftir stjórnar-
setu flokksins, undir forsæti
Dr. Gunnars Thoroddsen,
lætur nærri að þessi tala sé
tíföld. Formaður flokksins
gerði rétt í að útskýra af
hverju þetta er svo. Hann
getur þá í leiðinni sagt okk-
ur af hverju norska leiðin
var ekki farin.
X A
UTGERÐARMENN
Við tökum að vísu ekki þetta fley í slipp hjá okkur. En við tökum alla báta
upp að 150 tonnum. Sjáum um og útvegum alla þjónustu, svo sem
rafvirkja, vélvirkja, málara o. fl.
VIÐGERÐIR. ENDURBÆTUR, HREINSUN OG MÁLUN.
Dráttarbraut Sigluf jaröar
Símar 71516 eða 71655. Birgir Guðlaugsson framkvstj. heima 71225.