Skutull - 13.04.1983, Blaðsíða 4
Kjósum
Jafnaðarmenn til forystu
á Vestfjörðum
Sameiginlegir
fundir hafnir
Ófærð og veðrahamur
hefur sett strik í reikning-
inn í hinni opinberu
kosningabaráttu hér á
Vestfjörðum. Sameigin-
iegir fundir flokkanna
áttu að hefjast s.l.
fimmtudag í Stranda-
sýslu, en varð að fresta
þeim vegna óveðurs.
S.l. laugardag hófst
kosningbaráttan með
fundi á Tálknafirði. Sex
listar eru í kjöri, — flokk-
amir fjórir — sérframboð
sjálfstæðra, og bandalag
Vilmundar Gylfasonar.
Á sameiginlegu fund-
unum hefur hver flokkur
rúman hálftíma til að
kynna kjósendum stefnu
flokks síns — og afrek
síðustu þriggja ára. Er
heildartíma þessum skipt
í þrjár umferðir, (15
mín/10 mín/ 7 mín).
Þýðir þetta, að fundirnir
verða a.m.k. þriggja tíma
langir, sem sumum finnst
full langur tími.
Samkomulag hafði
orðið um það meðal full-
trúa flokkanna, að þessi
langi fundartími útilok-
aði fyrirspurnir fundar-
gesta, og var mikil ó-
ánægja ríkjandi með það
fyrirkomulag á Patreks-
firði og Tálknafirði. Var
þessu þá breytt þannig,
að fyrirspurnir úr sal eru
nú leyfðar í hálftíma,
strax eftir fyrstu umferð.
Þetta er af hinu góða,
enda óþolandi að skipa
málum þannig, að fund-
armenn fái ekki að bera
fram fyrirspurnir úr sal.
Fundirnir verða miklu
bragðdaufari án fyrir-
spurna. Ber því að fagna
þessari breytingu.
Næstu fundir flokk-
anna verða haldnir í
Súðavík og á Súganda-
firði, fimmtudaginn 14.
apríl kl. 20.30. Skutull
hvetur kjósendur til að
mæta á þessa — og aðra
fundi.
* SKUTULL
Blaö Aipýöuf lokksins í Vestfjaröakjördasmi
F orysturaunir
Þorvaldar Garðars
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
— Við þurfum nýja for-
ystu — við þurfum nýja
menn, tilkynnti Þorvaldur
Garðar Kristjánsson fund-
armönnum á Tálknafirði s.l.
laugardag. Það sama var
uppi á teningnum á Þing-
eyrarfundinum daginn eftir.
Ekki kom fram í máli
Þorvaldar Garðars hvort
hann ætti í þessu sambandi
við Sjálfstæðisflokkinn eða
stjórnmálin yfirleitt, eða
hvort hann meinti Sigur-
laugu Bjarnadóttur! Senni-
lega hvoru tveggja. Af mál-
flutningi þingmannsins á
þeim fundum, sem þegar
hafa verið haldnir, verður
nú ekki séð að forystu-
vandamál hái Sjálfstæðis-
flokknum, a.m.k. ekki hér í
kjördæminu. Frekar væri
hægt að segja, að með
Matthíasi Bjarnasyni væri
forystan í lagi, en það sem
þar kæmi á eftir þyrfti end-
urskoðunar við. Enginn ef-
ast um forystuhæfileika
Matthíasar Bjarnasonar, en
sumir eru óráðnir í afstöðu
sinni til næsta manns á
þessum lista Sjálfstæðis-
manna, enda boðaði þriðji
maður listans, Einar Kr.
Guðfinnsson það á fundi á
Flateyri s.l. sunnudags-
kvöld, að ekkert mætti út af
bregða ef tryggja ætti þing-
manninum áframhaldandi
setu við Austurvöll.
Er víst, að þeir sem hvað
ákafast biðja kjósendur, að
“láta atkvæði sín í té“ fagni
þessari varnarbaráttu móð-'
urskipsins í kjördæminu.
Kosningaskrifstofa A-listans
SKRIFSTOFAN OPIN DAGLEGA
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins er opin daglega frá
kl. 13:00. Á skrifstofunni má fá allar þær upplýsingar um
stefnumál Alþýðuflokksins, sem menn óska eftir, og fengið
sér kaffibolla í leiðinni. Skrifstofan er til húsa í Mjallargötu
5, og símarnir eru: 3944 og 4388
Gunnar R. Pétursson:
Þar er ekkert fólk
aðeins klíka
Nú er mikið rætt um
þjóðarsátt og samstöðu allr-
ar þjóðarinnar, gegn að-
steðjandi vanda, og ekki
skal um mig sagt að ég sé
ekki tilbúinn að taka þátt í
því. En við sem búum úti á
landi og erum í náinni
snertingu við öflun gjald-
eyris þjóðarinnar sem síðan
er eytt að megninu til á
stór-Reykjavíkursvæðinu,
okkur koma þau stundum
spánskt fyrir sjónir vanda-
málin sem þar ryðjast upp.
Og einstaka menn eru fljótir
að gleypa og nota sjálfum
sér til framdráttar. Flest
þessi vandamál eru að okk-
ar dómi léttvæg og lítilsvirði
og við eigum kannski erfitt
með að skilja að það sé
stórmál hvort videokerfi
verður áfram í Breiðholti,
okkur finnst meira mál
hvort afli heldur áfram að
minnka á Vestfjarðamiðum.
Okkur þykir lítið mál hvort
við getum hlustað á tvær
eða þrjár útvarpsrásir meó-
an við þurfum að borga
fimm til sex-faldan upphit-
unarkostnað húsnæðis,
hvort vægi atkvæða er einn
á móti fimm eða eitthvað
annað skiptir ekki máli,
meðan allstór hluti dreifbýl-
isbúa verða að notast við
lágmarksskólagöngu og
horfa jafnvel uppá að verið
sé að gera annarsflokks-
þegna úr börnum okkar
vegna þess að ekki er hirt
um að allir njóti sama réttar
þó mikið umrædd stjórnar-
skrá og grunnskólalög segi
svo. Kannski finnst okkur
heldur litlu varða hvort
þingmenn eru 60 eða 63
meðan haldið er áfram að
moka inn fiskiskipum fyrir
sportútgerðarmenn sem láta
skip sín sigla með allan afla
óunninn á meðan vantar
fisk í fiskvinnsluhúsin. Mér
finnst það stundum eins og
einskonar velmegunarsjúk-
dómur, þegar menn geta
varið tíma sínum og fjár-
munum í endalaust og ó-
merkilegt snakk um einskis-
verð efni á sama tíma og
áhöld eru um hvort íslenska
þjóðin eftir 12 ára sóun og
óstjórn heldur sjálfstæði
sínu. Það virðist svo að það
mat sem áður var á mönn-
um hvort þeir væru sér og
sínu landi og þjóð til gagns
sé að mestu gleymt, nú þyk-
ir það best sem vitlausast er.
Um árabil hefur það verið
ein vinsælasta íþrótt hæfi-
leikasnauðra fréttasnápa að
gera þá menn tortryggilega
sem með landsstjórn fara
hverju sinni, það þótti einu
sinni við hæfi að vara mjög
við kerfisköllum, embættis-
mönnum og möppudýrum,
nú er allt breytt nú er ógn-
valdurinn gömlu pólitísku
flokkarnir, „sem eru löngu
staðnaðir og eru öllum góð-
um mönnum viðurstyggð.“
Þar er engin endurnýjun
eða hvað? Þar er ekkert fólk
á bak við, aðeins klíka. Það
er meira að segja svo langt
gengið í dag að embættis-
menn, kerfiskallar og
möppudýr fóru að safna
undirskriftum um hvort
“þjóðin“ (á stór-
Reykjavíkursvæðinu) vildi
60 eða 63 þingmenn.
Við Islendingar erum
matvælaframleiðendur og
verðum vonandi. Vonandi
fer ekki fyrir okkur eins og
Dönum frændum okkar að
við teljum okkur of fín til að
vinna við undirstöðuat-
vinnuvegina, ég hef litlar
áhyggjur af atvinnuleysi
meðan þarf að flytja inn
erlent vinnuafl í fiskinn.
Iðnaðardraumar eru ágætir
en ég tel þó að meðan við
búum við eina dýrustu orku
í Evrópu til smáiðnaðar
(hér er allt kallað smáiðnað-
ur nema ísal og Járnblend-
ið), og flestar Evrópuþjóðir
GunnarR. Pétursson
sem byggja á iðnaði, búa
við gífurlegt atvinnuleysi,
þá eigum við íslendingar að
fara okkur hægt, við höfum
um allar aldir verið mat-
vælaframleiðendur og um
mörg ókomin ár vona ég að
mannkynið þurfi fæðu. En
ef hægt er að ná meiri nýt-
ingu úr sjávarafla og hugs-
anlega landbúnaði, og að
því ber að stefna, þá tel ég
að við séum vel settir ís-
lendingar um all mörg ó-
komin ár. Ég nefndi hér í
upphafi þjóðarsátt og frið,
ég er tilbúinn að taka þátt í
því öllu, en friður sem kost-
ar mig og mína atvinnu og
lífsafkomu er enginn friður.
Jafnaðarmenn til forystu á Vestfjörðum