Skutull

Árgangur

Skutull - 03.05.1986, Síða 4

Skutull - 03.05.1986, Síða 4
Isafjarðarkaupstaður Hreinsunarvika 12. til 17. maí. 1986. Á tímabilinu 12. til 17. maí n.k. verður almenn hreinsunarherferð 1 bænum. Við biðjum þig að hreinsa allt rusl af lóðinni þinni, fegra hana og snyrta, en starfsmenn áhaldahúss bæjarins munu aðstoða þig við að koma ruslinu í burtu og mun sorphreinsunarbíll fara um íbúð- arhverfi bæjarins á eftirtöldum dögum og hreinsa það rusl, sem komið er út á götu: Mánudaginn 12. maí: Af svæðinu Suðurtangi að Austurvegi. Þriðjudaginn 13. maí: Af svæðinu Austurvegur að Sólgötu. Miðvikudaginn 14. maí: Af svæðinu efri bærinn ofan Sólgötu og Túnin. Fimmtudaginn 15. maí: Af svæðinu í Holtahverfi. Föstudaginn 16. maí: Af svæðinu í Hnífsdal. Laugardaginn 17. maí: Almennur hreinsunardagur. Dagana 12. og 13. maí n.k. geta þeir sem losna vilja við bílhræ eða kofa af lóðum sínum, fengið til þess aðstoð áhaldahúss bæjarins, eigendum að kostnaðarlausu. í því skyni skal hafa samband við Þorbjörn Jóhannesson bæjarverkstjóra í síma 3443. Öllum fyrirtækjum í bænum hefur verið sent bréf, þar sem hvatt er til að starfsmenn hreinsi lóðir viðkomandi fyrirtækja 9. maí n.k. Við hvetjum alla ísfirðinga til að leggja sitt af mörkum til að hreinsa og fegra bæinn og taka þátt í hreinsunarherferðinni. Minnumst þess að HREINN BÆR ER OKKUR KÆR. Minnumst þess að HREINN BÆR ER BETRI BÆR. Bæjarstjórínn á ísafirði. Starfsfólk — Sumarstarf Óskum eftir að ráða yfirflokkstjóra og flokk- stjóra við vinnuskóla og starfsvelli. Einnig vantar starfsmann við íþróttasvæði. (vallarstjóra). Vinnuskóli ísafjarðarkaupstaðar Vinnuskóli verður starfræktur í sumar, frá 2. júní — 31. júlí. Þeir unglingar er ætla að láta skrá sig geri það fyrir 20. maí '86. Aldur: Fæðingarár '71, '72 og '73. Skráning fer fram á afgreiðslu bæjarskrif- stofunnar. íþrótta- og æskulýðsfulltrúi. ATVINNA Trésmiðir, lærlingar og verkamenn óskast. Mikil vinna, næg verkefni. Eiríkur & Einar Valursf. ísafirði - símar 4289 og 4288 * SKUTULL Blaö Alpýöuflokksins í Vestfjaróakjðrdæmi --1 Smáa letrið í Vesturlandi Það vakti óneitanlega at- hygli bæjarbúa, er þeir hugðust lesa umfjöllun Guðm. H. Ingólfssonar, um fjárhagsáætlun ísafjarðar- kaupstaðar fyrir árið 1986 í síðasta Vesturlandi, að stór hluti greinarinnar hafði verið prentaður með svo smáu letri, að aðeins sjón- bestu menn gátu lesið alla greinina. Skyldi það hafa verið með vilja gert, því örugglega hefur ekki öllum frambjóð- endum líkað umfjöllunin. Sérstaða Sigrúnar Það fer ekki mikið fyrir, stefnufestunni meðal fram- bjóðenda sjálfstæðisflokks- ins. Það er nefnilega nokkuð athyglisvert. að í grein sinni í Vesturlandi þann 24. apríl sl., fer frambjóðandi Sigrún Halldórsdóttir, fögrum orð- um um ákvörðun um ráðn- ingu dagvistarfulltrúa og lýsir því hversu sammála hún og frambjóðendur í- haldsins eru þessari ráð- stöfun. Það er skrýtin samstaða, þegar Sigrún hælir sér af máli sem meðframbjóð- endur hennar eru andvígir, ef dæma má eftir afgreiðslu þeirra á málinu á bæjar- stjórnarfundi. Bláa línan hjá Þuríði formanni. Haft hefur verið á orði. að óvenjumikill sjálfstæðis- maður leynist í Þuríði Pétursdóttur, oddvita al- þýðubandalagsins. Þótti það koma óeðlilega mikið í ljós í viðtali við Þuríði sem birtist í Vestfirska frétta- blaðinu. Velta menn því nú fyrir sér hvort Þuríður sé að gefast upp á sinni eigin stefnu, eða hvort hún hafi verið að biðla til sjálf- stæðismanna um meiri- hlutasamstarf. Minnihluti bæjarstjórnar splundrast. Það kom ekki á óvart að Guðmundur H. Ingólfsson hefur nú tilkynnt opinber- lega að hann væri hættur að starfa sem bæjarstjórnar- fulltrúi sjálfstæðismanna. Menn veltu því hins vegar fyrir sér hvenær þetta myndi gerast, flestum var ljóst að að þessu kæmi. Allt þetta kjörtímabil hefur verið grunnt á því góða milli Guðmundar og flokksforustunnar hér í bæ, og er það almælt að bæjar- fulltrúi Árni Sigurðsson hafi staðið fyrir aðför að Guð- mundi í upphafi kjörtíma- bilsins og orðið vel ágengt með stuðningi stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðis- flokksins. Víst er um það að Guð- mundur H. Ingólfsson hefur verið settur til hliðar af forystu sjálfstæðismanna, og fullvíst má telja að hefði stjórn fulltrúaráðsins viljað ræða við Guðmund um á- greiningsmálin hefðu fram- boðsmál sjálfstæðismanna verið á annan veg. Nú standa yfir miklar samningaviðræður meðal frambjóðenda vegna niður- stöðu prófkjörsins, og er þar reynt að ná sáttum milli Olafs og Árna annars vegar og Sigrúnar og Geirþrúðar hins vegar. Georg "fimmti” á í miklum önnum, og á- kallar flokksforystuna syðra um aðstoð. Af þessum átökum. og uppgjöri Guðmundar H. Ingólfssonar er óhætt að fullyrða að mikil sundrung ríki í röðum sjálfstæðis- manna. Bestu menn flokksins hafa það nú á orði að æski- legast væri að Guðmundur gerði alvöru úr að koma fram með sjálfstætt framboð svo sem giskað hefur verið á að hann ætli sér. Ef af því framboði verður má ætla að það beinist gegn FLOKKSRÆÐI sjáíf- stæðisflokksins sem hefur nú bolað Guðmundi H. Ing- ólfssyni úr áhrifastöðum í bæjarmálum ísafjarðar. Verkalýðsfélagið Baldur ORLOFSHUS Verkalýðsfélagið Baldur lýsir eftir umsókn- um um dvöl í orlofshúsum félagsins. 1. Flókalundur 2. Illugastaðir 3. Einarsstaðir 4. Svignaskarð 5. íbúð á Akureyri Vikuleiga er nú kr. 3.000,00. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu félagsins í Alþýðuhúsinu á ísafirði, sími 3190 fyrir 15. maí n.k. Að venju verður dregið úr umsókn- um, ef þátttaka verður mikil. Verkalýðsfélagið Baldur, ísafirði. B BMX BMX BMX BMX BMX BMX BMX BMX B Nú hækkar sól á lofti ognúer rétti tíminn til að huga að hjólakaupum Ný sending á mánudaginn VELSMIÐJAN ÞÓR HF. SÍMI 3057 — ÍSAFIRÐI M M BMX BMX BMX BMX BMX BMX BMX BMX x

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.