Skutull

Ukioqatigiit

Skutull - 01.01.2009, Qupperneq 5

Skutull - 01.01.2009, Qupperneq 5
Enn skelfilegri var aðbúnaður fanganna í Birkenau - þar voru húsakynnin hesthús þar sem hróflað hafði verið upp rúmstæðum - þremur kojuröðum upp undir loft. Fimm til átta sváfu þar saman í hverri koju, með eina ábreiðu. Mynd Ólína Þorv. rúmstæðum, þremur kojuröðum upp undir loft. Fimm til átta sváfu þar saman í hverri koju, með eina ábreiðu allir. Engin hreinlætisaðstað, engin upphitun, engin hitaeinangrun - kuldinn hýtur að hafa orðið ólýsanlegur yfir veturinn. í þessum búðum lágu brautarteinarnir beint að brennsluofnunum sem voru fyrsti viðkomustaður. Refsingar og tilraunir með fólk Meðferð fanganna í Auswitz-Birkenau var svo skelfileg að því verður vart með orðum lýst. í Auswitz-1 vorum við leidd að gálgunum þar sem brotlegir fangar voru teknir af lífi fyrir litiar sakir, oft margir saman. Við sáum einnig aftökustaðinn þar sem þeir voru skotnir til bana. Það var í portinu Einn gálginn. Mynd Ólína Þorv. milli skálanna þar sem yfirmennirnir höfðust við öðrumegin. Hinumegin var hið svokallaða „sjúkrahús" þar sem læknirinn Josef Mengele gerði sínar ómannúðlegu lyfja- og læknisfræðitilraunir á konum og börnum. Meðal tilrauna á konum voru ófrjósemisaðgerðir sem fólust m.a. í því að sprauta efnum í móðurlífi þeirra til að líma það saman. Mengele hafði ennfremur mikinn áhuga á eineggja tvíburum og gerði á þeim margar grimmilega tilraunirtil að kanna erfðafræðilega þætti. Ein tilraunanna fólst í að sprauta banvænum sýklum í annan tvíburann - deyða síðan hinn til að geta borið þá saman við krufningu. I búðunum fengum við að sjá refsiklefana þar sem fangarnir voru sveltir eða þeir kvaldir með því að standa örþreyttir eftir langan vinnudag. Já, við sáum klefa sem var 90 x 90 cm að þvermáli. Fanginn þurfti að skríða inn um lítið op sem var við gólfið, og rísa síðan upp og standa þar uppréttur, því ekki gat hann lagst, þartil næsti vinnudagur tók við. Menjar um eymd og þrótt Á göngum vinnuskálanna í Auswitz-I má sjá myndir af föngum sem komu í búðirnar á fyrstu þremur árunum sem þær voru starfræktar. Undir myndunum eru nöfn, fanganúmer og dánardægur hvers og eins. Margir létust fáeinum dögum eftir komuna, aðrir vikum eða mánuðum síðar. Flestir voru látnir áður en árið var liðið. Á þessum myndum sér maður líka börn sem hafa lifað mislengi. Hugrekki þeirra og þróttur, þar sem þau horfa framan í Ijósmyndarann snertir mann djúpt. Einn skálinn er helgaður þeim munum sem fundust eftir að búðirnar voru frelsaðar. í einu herberginu er gríðarstór haugur af ferðatöskum. Annar haugur af búsáhöldum ýmiskonar sem fólk tók með sér því það hélt að þarna biðu þess ný heimkynni. Sá þriðji af gleraugum, sá fjórði af skóm. í einu herberginu er haugur af mannshári - heilt tonn - aðallega kvenhári. Það notuðu þjóðverjarnir til þess að vefa fóður ( hermannabúninga. í loftinu er undarleg lykt - sambland af myglu og mölkúlum. Þarna er manni farið að líða verulega illa. í einu horninu eru bænasjöl sem gerð voru upptæk, einnig röndóttir fangabúningarnir, gauðrifnir og grófir, sem augljóslega hafa ekki haldið neinum hita í vetrarkuldum. Innar í þessu sama herbergi eru svo barnafötin, rifin og snjáð, snuddurnar, litlu barnaskórnir, bangsar og dúkkur sem höfðu verið teknar með í leiðangurinn - í helförina. Það verður enginn samur eftir að hafa komið á þennan stað.

x

Skutull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.